Monitor - 08.12.2011, Page 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 8. desember 2011 |
Kvikmynd: Nei, nú veit ég ekki af
hverju ég samþykkti að taka þátt
í þessu. Það er svo erfi tt að velja
bara eitthvað eitt! Er að hugsa
um að taka MR Gettu Betur/70
mínútna taktíkina á þetta og öskra
það sem mér dettur fyrst í hug. Rain
Man!
Þáttur: Hér mun ég upp-
ljóstra alveg svakalegri
hlið á mér. Pretty Little
Liars héldu mér gjör-
samlega límdri við skjáinn
og líf mitt var ekki samt eftir
að ég kláraði síðasta þátt. Ég
meina, hver er A?
Bók: Ég vil ekki hætta á að
„jinxa“ jólaprófi n mín svo
ég segi skóla-
bækurnar.
Annars held
ég að fl estar
aðrar bækur
sem ég les
utan skólans
séu spennusögur.
Plata: Síðasta plata sem ég
keypti mér heitir Sagan og er
með hljómsveitinni 1860. Ég
kynntist þeirri hljómsveit nánast
óvart í haust og hefur þótt vænt
um hana síðan. Hugljúf plata,
notaleg og rómantísk.
Vefur: Það væri hræsni af
mér að segja ekki Facebook,
vefur dagsins í dag. Alveg
undarlegt hvað hann verður
líka sérstaklega áhugaverður
og mikilvægur þegar prófatíma-
bilið stendur yfi r.
Staður: Þessa dagana er
draumastaðurinn einhver
spennandi staður langt langt
í burtu þar sem sólin skín
og ég get verið temmilega
kærulaus í sumarkjól og
með hatt. Þá á ég mjög góðar
minningar frá
Valencia þar
sem ég lærði
spænsku fyrir
nokkrum árum.
Síðast en ekki síst
» Edda Sif Pálsdóttir, sjónvarpskona og nemi, fílar: