Morgunblaðið - 21.01.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2012
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Kjarasamningarnir á almenna
vinnumarkaðinum gilda áfram. For-
ystumenn ASÍ og Samtaka atvinnu-
lífsins undirrituðu upp úr hádegi í
gær samkomulag þar sem sú
ákvörðun var staðfest að nýta ekki
uppsagnarákvæði samninganna 31.
janúar nk.
Fulltrúar hvorra tveggja samtak-
anna lýstu því yfir að rétt væri að
framlengja samningana þrátt fyrir
að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit
sem gefin voru í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar í tengslum við gerð
samninganna í maí sl.
Forsendan um efndir á fyr-
irheitum hefur ekki staðist
Forsendur samninganna sem
komu til endurskoðunar nú voru
fjórþættar; að kaupmáttur færi vax-
andi á árinu 2011, verðlag héldist
stöðugt, gengi krónunnar styrktist
marktækt og að ríkisstjórnin efndi
gefin fyrirheit.
„SA og ASÍ eru sammála um að
ekki sé ástæða til uppsagnar kjara-
samninga vegna þróunar kaupmátt-
ar, verðlags og gengis krónunnar en
að forsendan um efndir ríkisstjórn-
arinnar á gefnum fyrirheitum hafi
ekki staðist,“ segir í yfirlýsingu SA
eftir undirritunina í gær.
„SA telja að uppsögn samninga
leiði ekki til betri stöðu fyrir at-
vinnulífið eða samfélagið í heild.
Uppsögn kjarasamninga muni ekki
bæta skilyrði fyrir fjárfestingar í at-
vinnulífinu, fjölgun starfa og minna
atvinnuleysi. Fjölmörg fyrirheit rík-
isstjórnarinnar hafa ekki verið efnd
en veigamest er að væntingar um
auknar fjárfestingar og hagvöxt eru
ekki að ganga eftir. Nýleg ákvörðun
um skattlagningu lífeyrissjóða bæt-
ist síðan við sem gengur þvert á
markmið yfirlýsingarinnar um líf-
eyrismál og eykur ójafnræði milli al-
mennra lífeyrissjóða og þeirra sem
eru á vegum hins opinbera,“ segir í
yfirlýsingu SA.
Það kveður við sama tón í yfirlýs-
ingu samninganefndar ASÍ: „Þrátt
fyrir að tekist hafi að þoka málum
áfram eru það mikil vonbrigði og að
sama skapi ámælisvert að vinnu-
brögð ríkisstjórnarinnar séu með
þeim hætti að málum er hleypt í far-
veg átaka um efnisatriði sem sátt
hafði náðst um fyrir átta mánuðum.
Innan raða Alþýðusambandsins rík-
ir mikil gremja í garð stjórnvalda
vegna þessa. Það er ólíðandi að ís-
lenskt launafólk skuli ekki geta
treyst orðum oddvita ríkisstjórnar-
innar,“ segir í henni.
Næsta endurskoðun að ári
Kjarasamningarnir koma næst til
endurskoðunar í janúar á næsta ári.
Forsvarsmenn SA benda á að for-
sendurnar í janúar 2013 séu þær að
kaupmáttur hafi vaxið áfram, verð-
bólga verði 2,5% og að gengi krón-
unnar hafi styrkst þannig að geng-
isvísitalan fari í 190 en hún er núna
um 220.
„Þetta mun vart ganga eftir nema
með umtalsverðu innstreymi er-
lends fjármagns, einkum vegna
orkuframkvæmda og erlendra fjár-
festinga í orkufrekum iðnaði,“ segir í
yfirlýsingu Samtaka atvinnulífsins í
gær.
Mjög hörð gagnrýni hefur komið
fram á ríkisstjórnina bæði af hálfu
forystumanna í ASÍ og SA að und-
anförnu. Fulltrúar SA segjast hafa
lagt sig fram um að vinna með rík-
isstjórninni s.s. við gerð Stöðug-
leikasáttmálans í júní 2009 og við
gerð kjarasamninganna 5. maí í
fyrra en ekki haft erindi sem erfiði.
Hún er ekki traustsins verð
„Ríkisstjórnin hefur hins vegar
skapað mikið vantraust í sinn garð
hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum
sem mynda Samtök atvinnulífsins
og sýnt að hún er ekki traustsins
verð,“ segja forsvarmenn SA.
Fulltrúar SA áttu engin samskipti
við ríkisstjórnina í tengslum við end-
urskoðun kjarasamninganna en for-
svarsmenn ASÍ áttu samtöl við ráð-
herra til að reyna að knýja fram
frekari efndir á yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar. Sögðu þeir í gær að
tekist hefði að þoka ýmsum mikil-
vægum málum. Ríkisstjórnin tók
saman minnisblað um ýmsar að-
gerðir sem hún ætlar að beita sér
fyrir en það hefur ekki verið birt.
M.a. fengu launþegasamtökin lof-
orð um að þau fengju að koma að
endurskoðun laga um almanna-
tryggingar og tilraunaverkefni um
flutning á hluta þjónustu við at-
vinnulausa til stéttarfélaga er sagt
vera í höfn.
Í yfirlýsingu ASÍ í gær segir að
þegar kemur að atvinnumálum
standi enn margt út af borðinu og
fátt hafi verið gert. „Sérstök von-
brigði vekur sá seinagangur sem er í
afgreiðslu rammaáætlunar um nýt-
ingu vatnsafls og jarðvarma sem átti
að liggja fyrir í lok síðasta árs.“
Engu bættari með uppsögn
ASÍ og SA staðfestu í gær að kjarasamningarnir gildi áfram Gagnrýna stjórnvöld en ASÍ segir að
tekist hafi að þoka áfram mikilvægum málum SA segja ríkisstjórnina ekki traustsins verða
Morgunblaðið/Eggert
Staðfest Forystumenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins undirrituðu samkomulag í húsnæði ASÍ eftir hádegi í gær um að virkja ekki endurnýjunarákvæði
kjarasamninga. F.v. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Áframhaldandi gildi kjarasamn-
inganna þýðir að launþegar fá
3,5% launahækkun 1. febrúar.
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf
hækka úr 182 þús. kr. á mánuði í
193 þús. kr. Þá kemur 11 þúsund
kr. krónutöluhækkun á taxta um
næstu mánaðamót. Orlofs-
uppbót á orlofsárinu sem hefst
1. maí hækkar í 27.800 kr. og
desemberuppbótin hækkar hjá
flestum félögunum í 50.500 kr.
nema meðal verslunarmanna en
jólauppbót þeirra hækkar skv.
samningunum í 57.300. kr.
Laun hækka
um 3,5%
LAUN OG UPPBÆTUR 2012
Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ,
segir að yfirgnæf-
andi meirihluti
innan aðildar-
félaga ASÍ telji
mikil verðmæti í
þeim launahækk-
unum sem kjara-
samningarnir
tryggja og það
þjóni ekki neinum
tilgangi að grípa til uppsagna þeirra
við núverandi aðstæður. ASÍ gagn-
rýnir stjórnvöld fyrir vanefndir en
tekist hafi þó að þoka nokkrum mik-
ilvægum málum áfram gagnvart rík-
isstjórninni. Þau eiga þó eftir að skýr-
ast betur.
,,Við teljum að okkur beri skylda til
þess að reyna að vinna að því að fá
þetta fram,“ segir Gylfi en bendir á að
í því felist ekki að menn séu sáttir við
framgöngu stjórnvalda í tengslum við
kjarasamningana. „Ég hef ekki í þau
20 ár sem ég verið að starfa á þessum
vettvangi fundið jafn mikla gremju út
í nokkur stjórnvöld,“ segir Gylfi.
Vonir standa til að stjórnvöld falli
frá skattlagningu á eignir lífeyrissjóð-
anna og hafa þau lofað að skoða aðrar
leiðir af fullri alvöru en þar er einkum
rætt um þann möguleika sem for-
svarsmenn lífeyrissjóðanna hafa áður
sett fram til að komast hjá skattinum
að sjóðirnir kaupi eignir af ríkinu og
að hagnaði af þeim viðskiptum verði
varið til að standa undir hlut lífeyr-
issjóðanna í vaxtaniðurgreiðslum.
Niðurstaða í þessu liggur þó ekki fyr-
ir.
Launþegahreyfingin telur mjög
mikilvægt að þetta gangi eftir en reið-
in í garð stjórnvalda stafar ekki síst af
skattlagningunni á almennu lífeyris-
sjóðina.
Gylfi segist binda miklar vonir við
að atbeini ASÍ að þessu geri að verk-
um að þessar breytingar gangi eftir.
„Ef tekst að gera þetta þá ætlar rík-
isstjórnin að beita sér fyrir því að fella
þessi lög úr gildi.“
Innan ASÍ telja menn einnig mik-
ilvægt að sambandið fái aðild að nefnd
sem hefur verið að endurskoða al-
mannatryggingakerfið. Mjög miklir
hagsmunir séu í húfi að koma á frí-
tekjumarki vegna greiðslna úr lífeyr-
issjóðum því margir félagsmenn hafi
þurft að þola miklar skerðingar og
ávinningurinn mun meiri en sem
nemur grunnhækkun bóta.
Ekki fundið jafn mikla
gremju í tuttugu ár
Fallið frá skattlagningu lífeyrissjóða gangi ný áform eftir
Innsiglað ASÍ og SA urðu sammála
um að nýta ekki uppsagnarákvæðið.
Gylfi
Arnbjörnsson
Ný loforð
» Samkomulag mun vera að
nást um tilraunaverkefnið um
að stéttarfélög og atvinnurek-
endur komi í ríkara mæli að
þjónustu við atvinnuleitendur.
» Átak á að gera í baráttu við
félagsleg undirboð í tengslum
við kennitöluflakk og útboð. Þá
fær ASÍ að koma að endur-
skoðun almannatryggingalaga.
„Þegar upp er
staðið teljum við
að uppsögn samn-
inganna myndi
ekki leiða til neitt
betri stöðu fyrir
atvinnulífið,“
sagði Vilhjálmur
Egilsson, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka atvinnu-
lífsins, að aflok-
inni undirritun samkomulagsins við
Alþýðusamband Íslands í gær.
,,Við teljum hins vegar að loforða-
kvóti ríkisstjórnarinnar sé uppurinn
og það sé tilgangslaust fyrir okkur
að fara fram á einhver ný loforð af
hennar hálfu um að efna þau loforð
sem hún hefur áður gefið,“ segir
hann.
Koma fjárfestingu í gang
Vilhjálmur segir það mikið
áhyggjuefni að menn sjá ekki að at-
vinnulífið sé að taka við sér af þeim
krafti sem vonast var. ,,Það gerist
ekkert fyrr en fjárfestingarnar fara í
gang af einhverri alvöru. Það er lyk-
ill að því að koma hjólum atvinnulífs-
ins almennilega af stað. Því miður
má segja að of mörg hjól atvinnulífs-
ins séu ferköntuð vegna þessarar
ríkisstjórnar,“ segir hann.
Við gerð samninganna sl. vor lýstu
margir áhyggjum af því að um veru-
legar kauphækkanir væri að ræða
sem mörg fyrirtæki gætu illa ráðið
við nema aðstæður breyttust til hins
betra í atvinnulífinu. Um næstu
mánaðamót hækka laun á almennum
vinnumarkaði á ný um 3,5%. Spurð-
ur um þetta segir Vilhjálmur:
„Við sjáum að útflutningsgrein-
arnar munu eiga miklu auðveldar
með að bera þessar hækkanir heldur
en fyrirtæki sem starfa fyrst og
fremst á þröngum heimamarkaði.
Þar getur þetta verið mjög erfitt
og það sem þarf til að koma er í
fyrsta lagi hagræðing. Ef hún næst
ekki þá þarf að hækka verð og ef
menn geta það ekki, þá þurfa þeir
væntanlega að fækka starfsfólki.
Að sjálfsögðu vonumst við til þess
að menn nái að bregðast við sem
mest án þess að fækka fólki,“ segir
hann en bendir á að störfum hefur
ekki fjölgað að undanförnu.
„Eini ljósi punkturinn í starfa-
mælingunum er sá að fyrirtæki hafa
verið að fækka hlutastörfum og
fjölga í heilum störfum. Það er eina
tíran í myrkrinu,“ segir Vilhjálmur.
Mörg hjól atvinnu-
lífsins ferköntuð
Loforðakvóti stjórnarinnar uppurinn
Vilhjálmur
Egilsson