Monitor - 19.01.2012, Side 3

Monitor - 19.01.2012, Side 3
Á NETINU Heimasíðan einstein.is er stórsniðug síða fyrir tölvu- og græju- áhuga- menn. Þar er að fi nna fréttir um tæki svo sem iPod, iPad, MacBook og Android síma svo eitthvað sé nefnt. Fréttirnar hafa iðulega að geyma góð ráð sem gera notendum kleift að fá sem mest út úr fínu tækjunum og tölvunum sínum. FYRIR NÁMSMENN Nú stendur yfi r leit að skipulagðasta námsmanni landsins. Skipulagðir námsmenn eru því hvattir til að skella sér inn á Facebook-síðu Námunnar og kynna sér leikreglur en sá sem sýnir mestu skipulags- hæfi leikana fær iPad 2 að launum. Þð hefur löngum borgað sig að vera skipulagður, rétt eins og Björgvin Páll. Í HÁLFLEIK Maður vex aldrei upp úr því að leika sér í boltaleik og þykjast vera einn af „strák- unum okkar“. Nú eru hins vegar slæmar aðstæður til boltaleiks utandyra og því er tilvalið að spila einfaldlega sokkahandbolta heima í stofu eða frammi á gangi. Nota má einhverjar góðar dyr á heimilinu sem mark en munið bara að passa fínu stofustássin. Monitor mælir með Vikan á … Maggi Mix Fór í sund skellti mér í pottinn drullu kaldur potturinn enda kallt í veðri. Sá feitann mann sem rann á klaka öskraði hátt. Er mikið að spila og skemmta þessa dagana enda ýlla frægur gvutti. Tjá Tjá Mixarinn á stjá. 18. janúar kl. 13:48 3FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Monitor Feitast í blaðinu Kristján Sturla er á leið til Kaup- mannahafnar í lok mánaðarins að spila tónlist. Björgvin Páll Gústavsson dúxaði bakarann og vill ekki raka af sér píkutryllinn. Jóhanna Björg bjó sér til draumastarfi ð sitt sjálf og ritstýrir nú Nude magazine. 8 Kristmundi Axel fannst óþægilegt að vera í þröngum buxum í Evróvisjón. 14 Strákarnir okkar eru fl ottir í tauinu eins og Stíllinn fékk að kynnast. 12 Þetta er ekkert fl ókið þessa vikuna. Áfram Ísland. 4 fyrst&fremst 6 MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is) Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Lísa Hafl iðadóttir (lisa@monitor.is) Umbrot: George K. Young (george@mbl.is) Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Sigurgeir Sigurðsson (sigurgeir@mbl.is) Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136 Efst í huga Monitor Salt í lagi? Mamma hringdi í mig í gær og bauð mér að koma heim í grjónagraut og slátur. Ég var náttúrulega alveg uppi með mér og fylltist tilhlökkun þar sem ég sá fyrir mér einn af mínum uppáhaldsréttum á borðinu heima í foreldrahúsunum. Ég vissi líka að það yrði enginn matur á boðstóln- um heima hjá mér sökum anna heimilisfólksins. Ég segi samt við mömmu að það væri mögulegt að ég yrði upptekinn og kæmist ekki í matinn. Því hefði ég betur sleppt því það kom á daginn að eftir fótboltaæfi ngu þurfti ég að sinna ákveðnum erindum og var ekki klár í slaginn fyrr en um níu. Þá vippaði ég upp símanum og hringdi í múttu en viti menn, grauturinn var búinn. Ég var þá kominn í gríðarlegt grjónagrautsstuð svo ég skaust í Hagkaup í Garðabæ til að ná mér í eitt stykki MS-grjónagraut. Hann er nefnilega ljúffengur mjög þó svo að einfalt sé að framreiða hann. En eftir að hafa labbað fram og til baka í mjólkurvörunum í rúmar sjö mínútur án þess að reka augun í grautinn góða þá spurðist ég fyrir um hvar hann væri að fi nna. Afgreiðslumaðurinn horfði á mig og sagði: „Er ekki allt í lagi? Halló. Wake up. Það er búið að innkalla hann því hann inniheldur iðnaðarsalt“ (hann reyndar sagði þetta ekki heldur benti mér á skilti með upplýsingunum. Sagan er betri svona). Þá sagði ég bara: „Saltu kjafti, drengur. Er ekki salt í lagi heima hjá þér“ (ég sagði þetta ekki heldur en var vissulega vonsvikinn. Fékk mér reyndar 1944 graut í staðinn. Hann var fínn). En ég vona heitt og innilega að ykkar uppáhaldsvörur hafi ekki verið innkallaðar sökum iðnaðarsaltsins. Svo eru þeir víst að fara að innkalla töluvert af lykla- borðum því að mörg innihalda svokallað iðnaðaralt og slíkir takkar eru víst hættulegir. Vá, hvað þessi var slakur. Eru ekki allir slakir? Jónsson Björgvin Páll Gústavsson Nú er allt undir! Ísland-Noregur! Wish me luck! ;) 18. janúar kl. 16:45 Logi Geirsson Lyfta Sofa Éta EM Lyfta Éta Sofa þetta er ekki flókið líf... 18. janúar kl. 16:26 „Það er kannski pínulítið kvikindislegt að spyrja svona,“ svarar Ólafur Darri Ólafsson, leikari, og hlær þegar hann er spurður hvort hin íslenska Reykjavík-Rotterdam eða Hollywood-endur- gerðin Contraband standi honum nærri hjarta. Leikarinn geðþekki fer með hlutverk í báðum myndunum. „Þessu er erfi tt að svara af því að eðlilega hafði maður aldrei grun um það þegar maður lék í Reykjavík-Rotterdam að maður myndi nokkurn tímann leika í einhverri endur- gerð á ensku með Balta sem leikstjóra. Reykja- vík-Rotterdam-ferlið var fyrsta skiptið í langan tíma sem við Balti lékum saman, hann hafði aðallega leikstýrt mér, svo að því leyti þótti mér mjög vænt um þá mynd. Auðvitað var samt líka ótrúlega spennandi að fara að leika í bíómynd í New Orleans, leika á ensku og svo framvegis. Ég held að ég geti ekki gert upp á milli enda er þetta náttúrlega alveg sitthvor myndin. Þótt Contra- band sé endurgerð þá er hún alveg sér bíómynd. Ætli þær séu ekki bara jafnnærri hjartanu en bara sitthvorum megin? Það er líklega besta svarið.“ En hver er helsti munurinn á því að leika í kvikmynd ytra og að leika í kvikmynd á hinu litla Íslandi? „Munurinn felst fyrst og fremst í aðbúnaði og þeim fjármunum sem menn hafa yfi r að ráða. Allt annað hérlendis jafnast í raun á við það sem gert er úti. Það á við um leikstjórn, leik, handrita- skrif, vinnubrögð, „krúið“ og allt. Eini munurinn er eiginlega hversu mikið fólk fær borgað, þetta er ekki mikið fl óknara en það. Wahlberg er fyrirmyndarmaður Eins og venja er á Íslandi er nauðsynlegt að fá umsögn Ólafs Darra um stórleikarann Mark Wahlberg. „Við mig var hann afskaplega kurteis, almennilegur og bara algjör fyrirmyndarmaður,“ er svarið en nánast allar senur myndarinnar sem Ólafur Darri leikur í innihalda einnig Wahlberg. Þegar blaðamaður náði tali af leikaranum var hann yfi r sig spenntur yfi r að sjá Contraband en hann var á leiðinni á forsýningu síðar það kvöld. Hann sagðist ekki kvíðinn, þótt hann hefði ekki hugmynd hvort allar senurnar hans hafi haldist inni í lokaútgáfu myndarinnar. „Ég hef ekki hugmynd um það en ég veit að mér bregður allavega fyrir í henni. Ég er alveg bjartsýnn á að ég sé eitthvað í myndinni en ég er náttúrlega í litlu hlutverki og vissi það frá upphafi . Aðallega hlakka ég til að sjá myndina og hvet fólk til að gera slíkt hið sama. Ég hlakka til að sjá verkið hans Balta og vinnuna hennar Elísabetar (Ron- aldsdóttur),“ en sú síðarnefnda klippti myndina. Að Contraband undanskilinni munu lands- menn næst berja Ólaf Darra augum í kvikmynd- inni Djúpinu, sem Baltasar Kormákur leikstýrir einnig, en hún verður frumsýnd á fyrri hluta ársins. elg Ólafur Darri Ólafsson leikur í tekjuhæstu mynd síðustu helgar vestanhafs, Contraband, í leikstjórn Baltasars Kormáks. Hann lék líka í íslensku gerð myndarinnar, Reykjavík-Rotterdam, og segir hann Wahlberg fyrirmyndarmann. megin við hjartað M yn d/ G ol li Myndirnar sitthvorum ÓLAFUR DARRI Á 30 SEKÚNDUM Fyrstu sex: 030373. Uppáhaldsstaður í heiminum: Vestfi rðir. Uppáhaldssælgæti: Súkkulaði. Æskuátrúnaðargoð: Duran Duran. Versta kvikmynd sem ég hef séð: Teen Wolf 2 skýst upp í kollinn á mér, ekki það að ég haldi að Teen Wolf 1 sé mikið betri. Thorunn Antonia Magnusdottir Af hverju vill enginn koma með mér í hot yoga?? Fer alveg að fara að taka þetta persónulega.. 17. janúar kl. 3:47

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.