Monitor - 19.01.2012, Blaðsíða 7
Fyrir þetta leiktímabil NFL-deild-
arinnar var Tim Tebow varamaður
í liði Denver Broncos. Með
ævintýralegum innkomum vann
hann sér inn byrjunarliðssæti sem
aðalleikstjórnandi liðsins og þakkaði
hann frelsaranum sjálfum fyrir
í hvívetna. Þegar velgengni hans
varð hvað ótrúlegust töldu menn
að ekkert annað kæmi til greina en
að Jesús Kristur væri í raun og veru
á bak við leikmanninn. Í kjölfar
fjölmiðlafársins í kringum Tebow
varð bænastelling leikmannsins
eitt af aðalsmerkjum hans og þegar
aðdáendur leikmannsins byrjuðu að
deila myndum af sér í bænastelling-
unni á Facebook varð það samstund-
is æði sem svipar að mörgu leyti
til planksins sem skók heiminn í
sumar. Æðið er kallað „Tebowing“
eða „to Tebow“ (ísl. að „Tíbóa“) og er
aðalmiðstöð þess síðan tebowing.
com þar sem sjá má fjöldann allan
af fyndnum myndum af fólki að
Tíbóa úti um allan heim.
Vinsældir ameríska fótboltans og NFL-deildarinnar hafa aukist frá ári til árs
hérlendis.
Leikmaðurinn Tim Tebow hefur trúlega verið umtalaðasti leikmaður tímabi
lsins en
Monitor skoðaði nýjasta æðið vestanhafs sem kennt er við þennan skrautleg
a leikmann.
TIM TEBOW
Fæddur: 14. ágúst 1987 í Makati-borg,
Filippseyjum.
Hæð: 191 cm.
Þyngd: 111 kg.
Þrjár staðreyndir:
• Er strangtrúaður evangelisti og
hefur meðal annars ferðast um
Bandaríkin til að fræða samlanda sína
um trúna í skólum og fangelsum.
• Nú standa yfi r byggingarfram-
kvæmdir á sérstökum barnaspítala
í Filippseyjum sem samtök
leikmannsins, Tebow Foundation, og
barnahjálparsamtökin CURE standa
fyrir. Framkvæmdunum á að ljúka á
næsta ári.
• Á dögunum skrifaði sjálf Lady Gaga
á Twitter: „Ég held með New York
Giants en vá! #Tebow Svona líta
sigurvegarar út.“
MADONNA TREÐUR
UPP Á SUPERBOWL
Á sunnudaginn næstkomandi fara
fram eiginleg undanúrslit NFL
þegar Baltimore Ravens og New
England Patriots mætast í úrslit-
um AFC-deildarinnar og New York
Giants og San Fransisco 49ers
mætast í úrslitum NFC-deildarinn-
ar. Sjálf Ofurskálin (e. Superbowl)
fer fram í Indianapolis þann 5.
febrúar næstkomandi og fellur
það í hlut poppdrottningarinnar
Madonnu að skemmta í hálfl eik.
Plankið er dautt
ÞESSUM ÞYKIR EKKI
HUNDLEIÐINLEGT AÐ „TÍBÓA“
BRÚÐKAUPS-TEBOW
PERÚ-TEBOW
KAMBÓDÍU-TEBOW
STONEHENGE-TEBOW
GOLDEN GLOBE-TEBOW
7FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Monitor