Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 19.01.2012, Qupperneq 7

Monitor - 19.01.2012, Qupperneq 7
Fyrir þetta leiktímabil NFL-deild- arinnar var Tim Tebow varamaður í liði Denver Broncos. Með ævintýralegum innkomum vann hann sér inn byrjunarliðssæti sem aðalleikstjórnandi liðsins og þakkaði hann frelsaranum sjálfum fyrir í hvívetna. Þegar velgengni hans varð hvað ótrúlegust töldu menn að ekkert annað kæmi til greina en að Jesús Kristur væri í raun og veru á bak við leikmanninn. Í kjölfar fjölmiðlafársins í kringum Tebow varð bænastelling leikmannsins eitt af aðalsmerkjum hans og þegar aðdáendur leikmannsins byrjuðu að deila myndum af sér í bænastelling- unni á Facebook varð það samstund- is æði sem svipar að mörgu leyti til planksins sem skók heiminn í sumar. Æðið er kallað „Tebowing“ eða „to Tebow“ (ísl. að „Tíbóa“) og er aðalmiðstöð þess síðan tebowing. com þar sem sjá má fjöldann allan af fyndnum myndum af fólki að Tíbóa úti um allan heim. Vinsældir ameríska fótboltans og NFL-deildarinnar hafa aukist frá ári til árs hérlendis. Leikmaðurinn Tim Tebow hefur trúlega verið umtalaðasti leikmaður tímabi lsins en Monitor skoðaði nýjasta æðið vestanhafs sem kennt er við þennan skrautleg a leikmann. TIM TEBOW Fæddur: 14. ágúst 1987 í Makati-borg, Filippseyjum. Hæð: 191 cm. Þyngd: 111 kg. Þrjár staðreyndir: • Er strangtrúaður evangelisti og hefur meðal annars ferðast um Bandaríkin til að fræða samlanda sína um trúna í skólum og fangelsum. • Nú standa yfi r byggingarfram- kvæmdir á sérstökum barnaspítala í Filippseyjum sem samtök leikmannsins, Tebow Foundation, og barnahjálparsamtökin CURE standa fyrir. Framkvæmdunum á að ljúka á næsta ári. • Á dögunum skrifaði sjálf Lady Gaga á Twitter: „Ég held með New York Giants en vá! #Tebow Svona líta sigurvegarar út.“ MADONNA TREÐUR UPP Á SUPERBOWL Á sunnudaginn næstkomandi fara fram eiginleg undanúrslit NFL þegar Baltimore Ravens og New England Patriots mætast í úrslit- um AFC-deildarinnar og New York Giants og San Fransisco 49ers mætast í úrslitum NFC-deildarinn- ar. Sjálf Ofurskálin (e. Superbowl) fer fram í Indianapolis þann 5. febrúar næstkomandi og fellur það í hlut poppdrottningarinnar Madonnu að skemmta í hálfl eik. Plankið er dautt ÞESSUM ÞYKIR EKKI HUNDLEIÐINLEGT AÐ „TÍBÓA“ BRÚÐKAUPS-TEBOW PERÚ-TEBOW KAMBÓDÍU-TEBOW STONEHENGE-TEBOW GOLDEN GLOBE-TEBOW 7FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Monitor

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.