Monitor - 19.01.2012, Side 12
12 Monitor FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
svo sem farið út í öfgar. Í dag er ég að fara að hitta fullt
af fólki og er þá með daginn rækilega skipulagðan en þá
liggur við að planið nái líka yfi r hvað við konan eigum að
borða saman í kvöld og hvaða mynd við ætlum að horfa
á. Það er mikilvægt að vera skipulagður, ég tala nú ekki
um þegar kemur að verkefnum eins og að ætla að verða
besti markmaður heims.
Þið Logi Geirs vöktuð mikla athygli á sínum tíma þegar
þið kynntuð hárgelslínuna Silver á markaði. Nú varst
þú síðan að stofna nýtt fyrirtæki, SportElítuna. Ert þú
algjör viðskiptajöfur?
Ég myndi ekki segja það, allavega ekki ennþá. Silver-
dæmið byrjaði náttúrlega bara í gríni. Það grín breyttist
í viðskiptahugmynd á fi mm mínútum og þá vaknaði
skipulagsfríkið og viðskiptagæinn í mér og við settum
þetta á laggirnar og það er orðið frábært fyrirtæki í dag.
Nýjasta hugmyndin, SportElítan, er eitthvað sem stendur
mér í raun enn nærri því hún er íþróttatengd. Þetta er
fjarþjálfun, sem er framtíðin í stað einkaþjálfunar sem
er rándýr, og grunnpælingin er bara að hjálpa fólkinu í
landinu, hvort sem það er að hugsa um að koma sér í
form eða ná langt í sinni íþrótt. Það hefur verið frábært
að fá svona magnaðan hóp með sér í lið og svona geggjuð
viðbrögð.
Er fl eira á teikniborðinu?
Ásamt kaffi húsahugmyndinni þá hefur mig langað að
koma einhverju af stað tengdu ADHD. Þótt ég hafi aldrei
verið greindur formlega með ADHD né athyglisbrest þá
hefur mér verið sagt það í seinni tíð að líklega hafi ég
glímt við það svo mig langar að miðla minni reynslu
í gegnum einhvern skóla eða slíkt. Ef börn eru rétt
meðhöndluð þegar kemur að ADHD eða öðru þá geta þau
orðið landsliðsmenn í handbolta, fl ottir framkvæmda-
stjórar, borgarstjórar eins og Jón Gnarr eða margfaldir
Ólympíumeistarar eins og Michael Phelps. Oft eru þetta
hugmyndafrjóir einstaklingar með mikla orku og mér
fi nnst BUGL kannski ekki endilega staðurinn fyrir þá.
Ég vil nú ekki umturna skólakerfi nu en ég væri til í að
framkvæma einhverja viðbót við það sem tengist þessum
málefnum og láta þannig gott af mér leiða.
Ég vona samt að
fólk banki í mig
eftir nokkur ár og skipi
mér að raka þetta af mér…“
Hvað kanntu best að meta við það að deila herbergi
með Björgvini Páli?
Það er nú bara aðallega hvað hann er hress og
skemmtilegur gaur sem hægt er að spjalla og djóka
eitthvað um allt milli alheimsins og jarðar. Svo er hann
ákafl ega hugmyndaríkur og spinnast oft hrikalega
gáfulegar umræður okkar á milli. Svo er hann duglegur
að passa upp á að ég mæti á réttum tíma í morgunmat,
það er líka mjög jákvætt.
Hvað fer mest í taugarnar á þér við það að deila
herbergi með Björgvini Páli?
Það fer nú satt best að segja ekkert í taugarnar á mér
við það. Helst að hann á fl eiri vini á Facebook en ég.
Hann er reyndar alltaf á geirunum þegar við erum bún-
ir að loka herberginu, það fer samt ekkert í taugarnar á
mér. Finnst það bara frekar krúttlegt.
Getur þú nefnt mér eitthvað eftirminnilegt atvik sem
hefur komið upp í sambúð ykkar Björgvins?
Það kemur fyrst upp í hugann þegar við vorum í Peking
og það var vandamál með rotþróna á klósettinu okkar
og fengum við því piss- og kúkalykt að gjöf frá öllu
þorpinu inn á klósettið okkar. Þið getið rétt ímyndað
ykkur lyktina frá öllu þessu fæðubótaefnaétandi
íþróttafólki sem smitaðist auðvitað líka að einhverju
leyti inn í herbergi. Við fengum svo að heyra það hvað
við værum ógeðslegir og hvað væri eiginlega að okkur
með þessa lykt. Það lagaðist svo eftir fyrsta daginn og
var bara rósailmur hjá okkur eftir það.
Hvað segir
Hreiðar Levý?
Hreiðar Levý Guðmundsson er herbergisfélagi
Björgvins á stórmótum. Monitor fékk hann til
að segja sér aðeins frá sambúð markmannanna.