Monitor - 19.01.2012, Page 16

Monitor - 19.01.2012, Page 16
kvikmyndir Mark Wahlberg Hæð: 173 sentímetrar. Besta hlutverk: Dirk Diggler í Boogie Nights. Staðreynd: Hann er með þrjár geirvörtur. Eitruð tilvitnun: „Ég lýg aldrei. Ég trúi öllu sem ég segi þannig að það getur ekki verið lygi.“ 1971Fæðist þann 5. júní í Boston, Massachusetts. 1984 Er einn af upprunalegu meðlimum strákahljómsveit- arinnar New Kids on the Block. Verður háður kókaíni og öðrum fíkniefnum. 1985Hættir í skóla og fer á götuna þar sem hann svindlar á fólki, stelur og selur eiturlyf. Hættir í New Kids on the Block. 1987Situr í fangelsi í 45 daga eftir að hafa verið kærður fyrir tilraun til manndráps vegna þess að hann réðst á mann frá Víetnam. 1991Stofnar rapp-sveitina Marky Mark and the Funky Bunch. Lagið Good Vibrations nær toppi Billboard Hot 100 vinsældarlistans. 1992 Gefur út tölvuleikinn Marky Mark and the Funky Bunch: Make My Video sem fékk slæma útreið og var af mörgum talinn einn versti tölvuleikur allra tíma. 1996Tilnefndur til MTV-kvikmynda- verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í Fear. 2001Kemur á fót góðgerðarfé- laginu Mark Wahlberg Youth Foundation sem ætlað er til að afl a fjár fyrir æskulýðsfélög. 2006Tilnefndur til Golden Globe- verðlaunanna sem og Óskars- verðlaunanna fyrir túlkun sína á varðstjóranum Sean Dignam í kvikmyndinni The Departed. 2009Giftist fyrir-sætunni Rhea Durham en þau byrjuðu saman árið 2001. 2010Tilnefndur til Golden Globe- verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í The Fighter þar sem hann leikur hnefaleikakappann Micky Ward. 2012 Leikur Chris Far-raday í Contra- band í leikstjórn Baltasars Kormáks. FERILLINN 16 Monitor FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 The Descendants er frumsýnd um helgina en á Golden Globe-hátíðinni fékk George Clooney verðlaun fyrir leik sinn í myndinni og myndin var valin besta dramatíska myndin. Um helgina verður fjórða Underworld-myndin, Awakening, heimsfrumsýnd. Sem fyrr skartar myndin stórfenglegum tæknibrellum sem fá áhorfendur til að grípa andann á lofti. Breska leikkonan Kate Beckinsale snýr hér aftur fl ottari en nokkru sinni fyrr í hlutverki hinnar mögnuðu Selenu sem hefur leitt baráttu vamp- íranna fyrir tilverurétti sínum hingað til í fyrri myndum og ávallt haft sigur. Nú þarf hún að horfast í augu við mestu ógnina sem hún og vampírurnar hafa nokkurn tíma haft yfi r höfði sér og sinn versta og máttugasta óvin til þessa, manninn. Árás mannanna er leidd af vísindamanninum Jacob (Stephen Rea) sem er harðákveðinn í að sýna hvorki vægð né miskunn. Hann hefur svarið þess eið að linna ekki árásinni fyrr en allar vampírurnar eru dauðar, og býr yfi r vopni sem á að tryggja það. En Selena og þeir sem eru með henni í liði eru heldur engin lömb að leika sér við og búast nú til varnar sem aldrei fyrr, vitandi að sókn er ávallt besta vörnin og eina leiðin til að sigra í þessu stríði er að ráðast beint í greni óvinarins. Stríðið á milli vampíranna og mannanna er því hafi ð. Upphafl ega stóð til að Len Wiseman myndi leikstýra myndinni en hann leikstýrði fyrstu tveimur Under- world-myndunum. Í nóvember 2010 varð hins vegar ljóst að leikstjórn yrði í höndum hinna sænsku Måns Mårlind og Björn Stein. FRUMSÝNING HELGARINNAR K V I K M Y N D 50/50 Aðrar frumsýningar: Contraband • J. Edgar • The Descendants FRUMSÝNDAR FÖS. 20. JANÚAR Underworld: Awakening Leikstjóri: Måns Mårlind and Björn Stein. Aðalhlutverk: Kate Beckinsale, Sandrine Holt, Theo James, Michael Ealy og India Eisley. Lengd: 88 mínútur. Aldurstakmark: Bönnuð börnum yngri en sextán. Kvikmyndahús: Smárabíó og Háskólabíó. Ágætis ræma 50/50 fjallar um Adam (Joseph Gordon-Levitt) og vin hans Kyle (Seth Rogen). Adam fær þær fréttir einn daginn að hann er með illkynja æxli nálægt mænunni. Atburðarásin einblínir því aðallega á bar- áttu hans við krabbameinið og hvernig fjöl- skylda hans og vinur hans Kyle, höndla frétt- irnar. Fyrir það fyrsta er 50/50 falleg saga en hún er einnig nokkuð fyndin. Hún er vel skrifuð, vel leikstýrð og fl estir leikarar standa sig nokkuð vel. Will Reiser skrifaði handritið en myndin er byggð á hans reynslu. Það var góð ákvörðun hjá honum að fara húmorsleiðina. Það hefði verið hægt að gera þessa mynd að þungri dramamynd en það er hún í raun ekki. Vissulega er eitthvað drama til staðar en það er frekar lítið miðað við hvað söguþráðurinn er alvarlegur. Seth Rogen er ekkert fyndinn Eftir að Christopher Nolan notaði Joseph Gordon-Levitt í Inception hefur ferill hans rokið upp á við. Hann stendur sig vel og fann ég mikið til með honum enda er hann óttalegt grey alla myndina. Hann á þessa mynd skuldlaust. Mér fannst hann samt ekki sýna neina stór- kostlega frammistöðu. Svona hlutverk eru alltaf vinsæl þegar kemur að verðlaunaafhending- um þannig að það kæmi ekkert á óvart ef hann fengi óskarstil- nefningu. Seth Rogen fer einnig með stórt hlutverk en ég get lofað því að hann fær ekki ósk- arstilnefningu. Rogen er gríð- arlega takmarkaður leikari og mjög ofmetinn sem grínleikari. Ég hef í rauninni aldrei hlegið almennilega að honum en hann átti engu að síður ágætis spretti. Ég gef honum það. 50/50 er áhrifamikil og hjartnæm saga sem lætur mann hugsa aðeins um lífi ð. Hún er ekkert tímamótaverk en fínasta mynd engu að síður. Tómas Leifsson facebook.com/monitorbladidVILTU MIÐA? Monitor ætlar að gefa miða á Under-world: Awakening, fylgstu með … Þegar menn tala um gamla Goldeneye-leikinn sem kom út á Nintendo 64 fyrir ca. 15 árum síðan er eins og þeir séu að tala um gamlan vin. Það er lygnt aftur augum, sælubros á varir og allur pakkinn. Allir James Bond-leikir sem gerðir hafa verið síðan hafa allir lent í „Goldeneye-samanburðinum“ og aldrei átt breik. Til að sjá til sólar í stóra „gerum góðan James Bond- leik“ málinu var ákveðið að endurgera Goldeneye- leikinn og er útkoman Goldeneye Reloaded. Fyrsta sem var gert til að fríska upp á þetta var að henda Pierce Brosnan út og inn kemur hinn gullfallegi Daniel Craig, en andlit hans og rödd eru í leiknum. Einnig inniheldur leikurinn glænýjan söguþráð sem inn á milli kemur þó með klassískar tilvitnanir í upp- runalega leikinn. Sem fyrr þvælist Bond heimshorna á milli og drepur þar eftirminnilega óvini sem ætla sér heimsyfi rráð ... ekkert breyst þar. Söguþráður leiksins er um það bil 10 klukkutímar í spilun og heldur manni vel við efnið. Spilunin er blanda af skotbardögum og atriðum þar sem maður þarf að fara hljóðlega um og ganga frá óvinunum án þess að nokkur taki eftir því. Þetta gerir spilun leiks- ins fjölbreyttari og heldur manni kyrfi lega við efnið. Ef leikmenn kjósa að spila leikinn að efsta erfi ðleikastigi þá verða óvinirnir mun erfi ðari og auk þess þá bætast við verkefni sem leikmenn þurfa að leysa. Fyrir utan söguþráðinn er hægt að spila með 15 öðrum í gegnum Netið og er það vel þess virði, enda eru stýringar leiksins þægilegar og borðin í netspiluninni eru vel útfærð. Ofan á þetta bætist að hægt er að spila leikinn fjórir saman á einni tölvu í „splitscreen“ og virkar það fáránlega vel, sérstaklega í góðra vina hópi í bland við nokkra kalda. Goldeneye Reloaded er einhver ánægjulegasta ferð mín í endurvinnsluna og klárt að Bond-leikirnir geta lifað góðu lífi . Grafíkin er góð, verkefnin fjölbreytt og fjölspilun leiksins gerir sitt. Ólafur Þór Jóelsson Bond… Endurvinnslu-Bond TÖ LV U L E I K U R Tegund: Skotleikur PEGI merking: 16+ Útgefandi: Activision Dómar: Gamespot 8 af 10 / IGN 8,5 af 10 / Eurogamer 6 af 10 GoldenEye 007: Reloaded

x

Monitor

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.