Monitor - 19.01.2012, Qupperneq 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 19. janúar 2012 |
fílófaxið
fi mmtud19jan.
KREPPUKVÖLD
Bar 11
21:00 Hljómsveitirnar Náttfari, Heavy Experience og PORQU-
ESÍ halda tónleika á Bar 11. Alvörurokk hér á
ferð og frítt inn.
JANIS JOPLIN
TRIBUTE-TÓNLEIKAR
Gaukur á stöng
22:00 Söngkonan og nýjasta kærasta Fjölnis Þorgeirs,
Bryndís Ásmunds, heldur „tribute-tónleika“
til heiðurs Janis Joplin. Útvarpskonan Andrea
Jóns les upp fróðleiksmola um ævi rokkgyðj-
unnar frá kl. 21:00 en tónleikarnir hefjast
klukkustund síðar. Aðgangseyrir er 1.500 kr.
SÓLEY Á GOGOYOKO
WIRELESS
Kex Hostel
22:00 Tónleikaröðin Gogoyoko Wireless heldur göngu sinni
áfram en í þetta sinn á Kex Hostel. Söngkon-
an Sóley hefur fengið afar góð viðbrögð við
sinni fyrstu breiðskífu, We Sink, sem kom út
um mitt ár í fyrra. Miðinn kostar 1.500 kr.
Kvikmynd: Sú kvikmynd sem situr hvað
mest í mér er Passion of the Christ sem
Mel Gibson gerði um árið. Alveg ótrúlega
vel gerð mynd sem snertir við fl estum held
ég. Önnur í uppáhaldi er V for Vendetta en
annars horfi ég voða lítið á bíómyndir og
þarf yfi rleitt að klára þær í skömmtum.
Þáttur: Big Bang Theory og Mod-
ern Family! Það er eitthvað svo
ótrúlega fyndið við þessa þætti
og það besta er að þeir eru bara
20 mín. þannig að ég hef yfi rleitt
þolinmæði í að horfa á heilan
þátt án þess að stoppa.
Bók: Babettes gestebud hefur
verið í uppáhaldi hjá mér frá
því að ég las hana í MR. Svo
las ég bókina „Ég man
þig” eftir Yrsu síðasta
sumar og þetta er
eina bókin sem
hefur gert mig
myrkfælna
um hábjartan
júní. Hún var
alveg mögnuð!
Plata: Ekki spurning, Sam´s Town
sem The Killers gáfu út 2006.
Meistaraverk!
Vefsíða: Ætli það
sé ekki www.ruv.
is/songvakeppni þessa
dagana.
Staður: Laugarvatn!
Ég eyddi öllum
sumrunum mínum
í bústaðnum okkar
á Laugarvatni sem
krakki og á mínar
bestu minningar það-
an. Ef mig vantar að kúpla
mig út úr annríkinu
þá fer ég þangað og
hleð batteríin og
er einmitt
á leiðinni
í eina
slíka
ferð
næstu
helgi.
Síðast en ekki síst
» Greta Salóme Stefánsdóttir, fi ðluleikari og söngkona, fílar:
Erkifjendurnir í Party Zone á Rás 2 og Funkþættinum á X-inu 97.7
ætla að snúa bökum saman um helgina og frumfl ytja árslistana
sína á Kaffi barnum. „Með því að blanda þessum árslistakvöldum
saman í eina helgi þá held ég að við eigum eftir að fá allsvaðalega
helgi sem er nauðsynlegt á þessum dimmustu og verstu tímum
ársins,“ segir Don Balli Funk, umsjónarmaður Funkþáttarins. „Það
er gaman að gera þetta svona saman en það er ekki þar með sagt
að það sé búið að grafa stríðsöxina. Enda er þetta óttalegt píku-
popp sem þeir eru að spila þarna í Party Zone.“
Funk-menn eiga sviðið á föstudeginum en Party Zone sér um
stuðið á laugardeginum. Danstónlist er spiluð í báðum þáttunum
og fyrir skömmu síðan voru þeir á sama tíma á sitt hvorri rásinni.
Helgi Már, umsjónarmaður Party Zone var þó slakur yfi r yfi rlýsing-
um Baldurs. „Þegar ég kom í myndatökuna hélt ég að ég væri að
fara að hitta Þossa. Var hann ekki einhvern tímann með þennan
þátt á X-inu? Þetta er voðalega krúttlegt hjá þeim. Listinn þeirra
er bara eins og einn atkvæðaseðill á okkar lista. Þetta er búinn að
vera skemmtilegur derringur á milli okkar,“ segir Helgi og bætir
við: „Það er gaman að gera þetta svona saman og gera smá festival
úr þessu. Það er spurning um að tengja þessi partí saman og hafa
bara stanslausa dagskrá.“
Það borgar sig að mæta snemma enda er líklegt að slegist verði
um pláss á Kaffi barnum þessi kvöld. Þeir sem mæta snemma fá
glaðning hjá styrktaraðila Árslistahelgarinnar. „Fólk fer úr að ofan
á Kaffi barnum á miðvikudagskvöldum og er hangandi í ljósa-
krónum og skríðandi upp gluggatjöld svo það má búast við því að
eitthvað svakalegt gerist um helgina,“ segir Balli léttur í bragði.
Stríðsöxin grafi n?
FJALLABRÆÐUR OG GESTIR
Hof
20:00 Karlakórinn Fjallabræður fær Akureyrarbæ að öllum
líkindum til að nötra með kraftmiklum söng
á laugardagskvöldið. Með kórnum syngja
gestasöngvararnir Sverrir Bergmann og Jónas
Sig. Miðaverð er 3.500 kr.
TURIN BRAKES ÁSAMT
LAY LOW
Faktorý
23:00 Breska hljómsveitin Turin Brakes heldur tónleika
hérlendis þar sem búist er við að hún leiki
nýtt efni í bland við gamalt. Lay Low treður
einnig upp. Miðaverð er 2.500 kr. en vakin
er athygli á að engin forsala fer fram heldur
verða miðar seldir frá kl. 22:00 við hurð.
laugardag21jan.
ÁRSLISTAHELGI
Föstudaginn 20. janúar &
Kaffi barinn kl. 23
SYKUR
Bar 11
21:00 Rafstuðssveitin Sykur treður upp á Bar 11 en tónleikarnir
eru hluti af vetrartónleikaröð staðarins.
Heitasta lag hljómsveitarinnar um þessar
mundir, Reykjavík, hefur hlotið góða spilun
að undanförnu og er því þjóðráð að skella
sér á hljómleikana til að dilla sér allrækilega.
Frítt inn.
föstudagu20jan.
laugardaginn 21. janúar