Monitor - 19.01.2012, Page 19
19 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Monitor
Það er hverjum manni hollt að eiga sér fyrirmyndir, fólk sem hver og einn miðar að því að líkjast að einhverju leyti, hvort sem það lýtur að hegðun eða afrekum.
Stundum öðlast fyrirmyndirnar meira að segja meira gildi og
verða að svokölluðum átrúnaðargoðum. Undirritaður hefur
átt sér átrúnaðargoð frá æsku, til dæmis innan tónlistar og
fótbolta.
Síðan í æsku hafa átrúnaðargoð mín átt eitt og annað sameiginlegt. Ekki einungis leit ég upp til þeirra hvað varðar hæfi leika þeirra og stöðu heldur voru þau líka
öll eldri en ég. Ryan Giggs hefur strangt til tekið aldur til að
vera pabbi minn. Það er því ógnvænleg uppgötvun að átta sig
allt í einu á því að einstaklingar sem nú hafa tekið við stöð-
um átrúnaðargoða manns eru skyndilega orðnir jafnaldrar
manns eða manni yngri. Sú staðreynd fær mann nánast
til að falla í skammtímaþunglyndi yfi r vanmætti sínum á
þessari jarðarkringlu. Ég ætlaði alltaf að verða atvinnumaður
í fótbolta hjá Manchester United, hvað fór úrskeiðis?
Til að útskýra nánar vísa ég til atburðarásar sem ég upplifði fyrir skömmu. Ég sat með vinum mínum og horfði á Manchester United-leik. Þar komst Phil Jones
nokkur á blað yfi r markaskorara, gæi sem hefði getað verið
á yngra ári á meðan ég var á eldra ári þegar ég æfði fótbolta.
Því næst fór ég í bíó og sá þar Kristen Stewart í Twilight*
en ég hefði þess vegna getað verið með henni í leikskóla. Á
leiðinni heim kveikti ég á útvarpinu í bílnum og þá fékk ég
einfaldlega nóg. Strákur sem ég hefði getað tekið þátt í að
busa í menntaskóla, Justin Bieber, söng í sífellu: „Smábarn,
smábarn, smábarn, ó!“ (e. baby, baby, baby) líkt og til þess að
hæðast að því hve miklu yngri hann er en ég en er þrátt fyrir
það skærasta poppstjarna heims.
Ef til vill hljómar þetta biturlega og uppfullt af öfundsýki en það er óneitanlega skrýtið að geta ekki farið í bíó, horft á fótboltaleik eða hlustað á útvarp án þess að fá
þessa staðreynd beint á lúðurinn. Ég er núll og nix miðað við
þessa jafnaldra mína og ég sem hélt að gelgjuskeiðið ætti að
vera viðkvæmt aldursstig.
Ef lesendur Monitor eru í svipuðum hugleiðingum og ég langar mig að koma því að að líklega er best að tækla þessa lífsins krísu með jákvæðnina að vopni. Þangað
til að komið verður að okkur að slá í gegn eða skara fram úr
verðum við að hughreysta okkur við myndlíkingu. Við erum
einfaldlega blóm sem blómstrum seinna en önnur blóm, en
þegar það loks gerist verður það þeim mun meira sjónarspil.
Okkar tími mun koma. Já, við getum.
*Þessi hluti pistilsins var uppspuni.
Ég myndi aldrei horfa á
Twilight**.
**þ.e.a.s. í bíó.
Einar Lövdahl Gunnlaugsson
einar@monitor.is
ORÐ Í BELG
Mun minn tími koma?
Ég ætlaði alltaf að verða
atvinnumaður í fótbolta
hjá Manchester United, hvað fór
úrskeiðis?
HVAÐ KALLAR MAÐUR SAMBAND TVEGGJA HOMMA?
- MEN UNITED
Áfram Ísland!
Horfðu á enn fleiri EM leiki á stöð 97 og í háskerpu á
stöð 96 í Vodafone Sjónvarpi. Allt í opinni dagskrá!
Kynntu þér málið á vodafone.is
Handboltaveisla í Vodafone Sjónvarpi
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is