Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 1
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta er búið að vera í handritinu síðustu tvö ár og
núna er maður búinn að sjá myndina. Auðvitað er
þetta samt svakalega leitt þegar það munar svona
litlu, en þetta er stórt félag og vonandi tekst því að
komast aftur upp í úrvalsdeild sem fyrst,“ sagði
Grétar Rafn Steinsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, sem varð að horfa upp á félaga sína í Bolton
ná aðeins jafntefli við Stoke, 2:2, í gær sem þýddi að
liðið féll niður úr úrvalsdeildinni eftir 11 ára veru þar.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég fæ að upplifa svona
„ströggl“ en maður lærir bara af þessu. Það er gríð-
arlega erfitt andlega að standa í svona og vonandi
gerist það ekki aftur. Það sem drepur mann ekki
gerir mann sterkari og ég er orðinn helvíti sterkur,“
sagði Grétar léttur en hann gat ekki tekið þátt í síð-
ustu leikjum Bolton á leiktíðinni vegna meiðsla í
framanverðu læri. Sigurleikur gegn Aston Villa 24.
apríl var því síðasti leikur hans fyrir Bolton á leiktíð-
inni, og nær örugglega allra síðasti leikur hans fyrir
félagið sem hann gekk til liðs við í janúar 2008.
„Því miður náði ég ekki að taka þátt í þessum síð-
ustu leikjum og hjálpa til en það hefur verið klárt
lengi að þetta yrði síðasta tímabilið mitt. Það var vit-
að í fyrra líka. Þessi klúbbur stendur mér mjög ná-
lægt og það er leiðinlegt að enda þetta svona en stað-
an er þannig núna að samningurinn minn rennur út
um næstu helgi, og það eru 99% líkur á að ég fari
héðan,“ sagði Siglfirðingurinn þrítugi sem vill yf-
irgefa Bretlandseyjar og prófa sig á meira framandi
slóðum.
Stefni ekki landsliðsferlinum í hættu
„Enska deildin er náttúrlega frábær og gaman að
vera hér í þennan tíma en maður er ekkert að verða
yngri. Mig langar til að upplifa eitthvert ævintýri,
fara á nýjan stað og læra framandi tungumál. Þetta
yrði hins vegar að vera skref í góða deild, og ég vil
komast í lið þar sem ég þarf að glíma við erfiða
brekku, hvort sem það yrði í Englandi eða á ein-
hverjum framandi slóðum,“ sagði Grétar, en horfir
hann þá út fyrir Evrópu?
„Ég veit það ekki en ég mun bara horfa til þess að
spila í deild þar sem ég er áfram inni í myndinni fyrir
landsliðið. Ég mun ekki stefna landsliðsferlinum í
hættu með því að fara bara eitthvert, því það eru enn
markmið sem ég vil ná með landsliðinu. Ég get bara
náð þeim með því að spila áfram í deild þar sem
toppfótbolti er spilaður,“ sagði Grétar en hann verð-
ur sennilega ekki með landsliðinu í leikjunum gegn
Frakklandi og Svíþjóð í lok mánaðarins. Lars Lag-
erbäck mun tilkynna landsliðshóp sinn í hádeginu í
dag.
„Ég reyni núna að jafna mig af þessum meiðslum
sem hafa verið að hrjá mig framan í læri. Ég er bú-
inn að ræða við Lars og reikna ekki með að vera með
í leikjunum við Frakka og Svía en við tókum þó enga
lokaákvörðun um það. Ef þess þarf, og ég verð orð-
inn góður af meiðslunum, þá mun ég taka þátt í leikj-
unum en ég er ekki bjartsýnn á það núna,“ sagði
Grétar.
Flestir aðrir eru leikfærir fyrir þessa tvo vináttu-
leiki, þar á meðal Sölvi Geir Ottesen, Eiður Smári
Guðjohnsen og Kolbeinn Sigþórsson sem allir hafa
átt við meiðsli að stríða.
Stefnir á framandi slóðir
Grétar Rafn féll í fyrsta skipti um deild með liði Bolton Samingurinn rennur
út um helgina Missir líklega af landsleikjunum við Frakkland og Svíþjóð
AFP
Kveðjuleikur? Grétar Rafn Steinsson á fullri ferð í leik gegn Aston Villa í úrvalsdeildinni 24. apríl.
Nú bendir allt til þess að það hafi verið kveðjuleikur Siglfirðingsins með Bolton.
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
íþróttir
Afturelding Örn Ingi Bjarkason snýr aftur heim í Mosfellsbæinn eftir fjögur ár með
FH. Telur þetta rétta tímapunktinn til að hjálpa uppeldisfélaginu í baráttunni. 8
Íþróttir
mbl.is
Þórunn Helga
Jónsdóttir, lands-
liðskona í knatt-
spyrnu, varð í
fyrrakvöld
meistari með
brasilíska liðinu
Vitória. Lið
hennar vann þá
stórsigur á Sport
Recife, 8:0, í síð-
ari úrslitaleik lið-
anna um meistaratitil Pernambuco-
fylkis en Vitória hafði unnið fyrri
leikinn 4:0 á útivelli.
Þetta er þriðji meistaratitill Vit-
ória í röð og sá annar sem Þórunn
vinnur með liðinu en hún kom til
liðs við félagið á síðasta tímabili.
Þórunn hefur áður unnið meist-
ara- og bikartitla með Santos, og
varð jafnframt tvívegis Suður-
Ameríkumeistari með liðinu.
Vitória er jafnframt komið í und-
anúrslit í brasilísku bikarkeppn-
inni. Það er eina keppnin á lands-
vísu í Brasilíu en í henni taka þátt
meistarar allra fylkja landsins.
Dóra María Lárusdóttir lék með
Vitória framan af þessu tímabili og
skoraði 12 mörk fyrir liðið í deild-
inni en hún fór heim áður en að úr-
slitaleikjunum kom til að spila með
Val á Íslandsmótinu. vs@mbl.is
Þórunn Helga
vann enn
einn titilinn
Þórunn Helga
Jónsdóttir
Björn Bergmann
Sigurðarson
skoraði þrennu
fyrir Lilleström
gegn Brann í
norsku úrvals-
deildinni í gær-
kvöld. Hún dugði
þó skammt því
Lilleström tap-
aði, 3:4, og situr
eftir í næstneðsta
sætinu og hefur enn ekki unnið leik
á tímabilinu.
Þrennunni náði Björn á sér-
stakan hátt. Leikmenn Brann skor-
uðu „óvart“ hjá Stefáni Loga Magn-
ússyni, markverði Lilleström, í
byrjun síðari hálfleiks, þegar þeir
ætluðu að skila boltanum aftur eftir
að leikurinn var stöðvaður vegna
meiðsla. Boltinn fór yfir Stefán sem
var framarlega á vellinum og í net-
ið. Ekki ósvipað og markið fræga
sem Bjarni Guðjónsson, hálfbróðir
Björns, skoraði fyrir ÍA gegn Kefla-
vík um árið!
Leikmenn Brann leyfðu í staðinn
Birni að skora óáreittum og þar
minnkaði hann muninn í 3:4. Nema
hvað markvörður liðsins, Piotr Lic-
iejewski, var ekki sáttur við
ákvörðun samherja sinna og reyndi
að verja frá Birni, en án árangurs!
vs@mbl.is
Leyfðu Birni
að skora
þriðja markið
Björn Bergmann
Sigurðarson
Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, hafnaði í
26.-32. sæti á sínu fyrsta móti á þessu ári á
Áskorendamótaröð Evrópu þegar Opna Allianz-
mótinu lauk í Frakklandi í gær. Birgir lauk
keppni á samtals níu höggum yfir pari en
óvenjuhátt skor var í mótinu og aðeins þrír kylf-
ingar léku holurnar 72 undir pari samanlagt.
Slík tölfræði minnir nú bara á opna bandaríska
mótið.
„Það má eiginlega segja það. Þetta var þvílíkt
erfitt. Ef maður hitti ekki brautina þá var mað-
ur bara í vondum málum. Annaðhvort týndi
maður bolta eða fann hann og var þá bara í ein-
hverju hjakki,“ sagði Birgir þegar Morgunblaðið
náði tali af honum í gærkvöldi og hann sagði að
einnig hefði vindur sett svip sinn á mótið.
Æfingar á stutta spilinu að skila sér
Birgir lék hringina fjóra á 73, 69, 72 og 75
höggum og fékk 1.344 evrur fyrir árangur sinn í
mótinu. Hann er nokkuð ánægður með nið-
urstöðuna enda hafði Birgir ekki spilað keppn-
ishring síðan í lok nóvember. „Ég sló ekki mörg
léleg högg í mótinu en nokkur voru í meðallagi
og þau refsuðu mér mjög illa. Það var mínusinn
við mótið en það góða við mótið var að púttin og
vippin sem ég hef verið að vinna í voru mjög
fín. Það er mjög jákvætt og teighöggin voru yf-
irhöfuð fín. Það var gott að fá að spila 72 holur
og gaman að hafna ofarlega þannig lagað,“ sagði
Birgir en honum var refsað grimmilega á fyrstu
tveimur holunum á lokahringnum og notaði 7
högg á þeim báðum. „Ég rétt missti brautirnar í
teighöggunum og þurfti að taka víti í einhverju
drasli á fyrstu og sló þrjú högg á annarri í grasi
upp að hnjám rétt fyrir utan braut. Þetta var
alvöru prófraun,“ sagði Birgir sem lék síðustu
sextán holurnar á höggi undir pari eftir þessi
ósköp. kris@mbl.is
Alvöru prófraun hjá Birgi
Hafnaði ofarlega í fyrsta móti ársins Völlurinn var „þvílíkt erfiður“