Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 4
Á HLÍÐARENDA Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmót kvenna í handknattleik náði eiginlega nýjum hæðum á Hlíðarenda á laugardaginn þegar rúmlega 1.800 áhorfendur mættu í Vodafone-höllina til að berja oddaleik Vals og Fram augum. Stemningin var frábær og þessi fjöldi sýndi vel þá kosti sem fylgja því þegar áhorfendur geta setið hringinn í kring- um völlinn eins og í Valsheimilinu. Ekki hefur oft komið til þess þar sem stuðn- ingsmenn Vals eru nú ekki duglegir við að mæta á völlinn svona alla jafna. Þeir mega þó eiga það að þeir mæta þegar mikið liggur við og það gerðu stuðnings- menn Fram einnig. Úr varð alvöru um- gjörð í kringum hreinan úrslitaleik um titilinn sem Valur vann 24:21. Valur hafði yfir að loknum fyrri hálf- leik 11:8 og fyrir þá sem hafa gaman af tölfræði í íþróttum þá var hálfleiks- staðan sú sama í öllum sigurleikjum Vals eða 11:8 fyrir Val. Valur vann alla fimm titlana Valur varð þar með fimmfaldur meistari á keppnistímabilinu og var auk þess að vinna Íslandsmótið þriðja árið í röð. Liðið vann Meistarakeppni HSÍ í haust, FÍ-deildabikarinn í desember, N1-deildina, Eimskips-bikarinn og nú Íslandsmótið. Þessi afrek sýna auðvitað að um besta lið landsins er að ræða. Þó Fram hafi ekki staðið þeim langt að baki á síðustu árum þá tekst liðinu engu að síður ekki að vinna stóra titilinn og hefur liðið nú hafnað í 2. sæti fimm ár í röð. Þó það sé vissulega ákveðinn ár- angur út af fyrir sig þá er það engu að síður ömurlegt hlutskipti fyrir keppn- isfólk í íþróttum. Sterkir persónuleikar Þar sem Valsliðið hefur staðið upp úr á umliðnum misserum þá þarf ekki að rekja hér hversu sterkt lið Stefán Arn- arson hefur búið til. Eitt af einkennum liðsins er hversu sterka persónuleika er þar að finna. Merkilegt verður að telj- ast að í liðinu eru fimm leikmenn sem hafa snúið aftur í boltann eftir barns- burð og eiga þær raunar allar fleiri en eitt barn. Um er að ræða þær Guðnýju Jenný Ásmundsdóttur, Dagnýju Skúla- dóttur, Ágústu Eddu Björnsdóttur, Hrafnhildi Skúladóttur og Kristínu Guðmundsdóttir. Tími af skornum skammti Eitt er að fara aftur út í íþróttaiðkun eftir barnsburð en það er annað og meira að gera það þannig að þú vinnir alla titla sem í boði eru. Til þess þarf að leggja mikið á sig og ofan á líkamlega þáttinn bætist auðvitað sú staðreynd að handboltakonur á Íslandi eru ekki at- vinnumenn. Þær eru í störfum eða námi eftir atvikum og tíminn til þess að æfa aukalega hlýtur að vera af skornum skammti þegar börn eru komin í spilið. Morgunblaðið fékk þær Hrafnhildi og Kristínu til þess að varpa ljósi á hvernig hægt er að vinna alla titla undir þessum kringumstæðum. Hálft forræði um tíma „Þetta er auðvitað bara hægt með góða bakhjarla á bak við sig. Maður þarf að eiga góðan maka og fjölskyldu sem nenna að standa í þessu með manni. Það er ótrúlega mikið sem þarf að gera í kringum boltann eins og að fá pössun hér og þar. Á tímabili hélt ég til dæmis að tengdaforeldrar mínir væru komin með hálft forræði. Það er gríð- arlega mikið álag á fólkinu í kringum mig og ef þau gætu ekki aðstoðað þá væri þetta ekki hægt. Ég veit um mörg tilfelli þar sem stelpur hafa viljað halda áfram í boltanum en hafa einfaldlega ekki getað það þar sem þær hafa ekki þetta bakland,“ sagði Hrafnhildur við Íslandsbikarinn Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir lyfta bikarnum á Hlíðarenda á laugardaginn eftir sigurinn á Fram í oddaleiknum. Þriðji Mæður í meistar  Valskonur meistarar þriðja árið í röð eftir sigur á Fram í oddaleiknum  F eða þrjú börn  Kristín lítur á það sem forréttindi að geta æft og keppt í han 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Möguleikar Al- freðs Gíslasonar á að ná því tak- marki sínu að vinna þýsku 1. deildina með fullu húsi stiga jukust enn í gær þegar Kiel lagði meist- ara síðasta árs, Hamburg, á úti- velli, 38:34. Þar með eru sigurleikirnir orðnir 30 í jafnmörgum leikjum og fjórir leikir eftir en Kiel er þegar orðið Þýskalandsmeistari. Kiel á eftir að spila við Wetzlar, N-Lübbecke og Gummersbach heima og við Hildes- heim á útivelli og þar er ekki að sjá neinar hindranir í veginum fyrir því að Kiel fái 68 stig af 68 mögulegum í þessari sterkustu deild heims. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel í gær en Kim And- ersson var atkvæðamestur með 11 mörk og Momir Ilic gerði 9 mörk. Renato Vugrinec skoraði 7 mörk fyr- ir Hamburg og Domagoj Duvnjak 6. Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyrir Füchse Berlín sem burst- aði Grosswallstadt, 35:19, og stendur vel að vígi í þriðja sætinu. Sverre Jakobsson fyrirliði Grosswallstadt fékk rauða spjaldið í leiknum. Rúnar Kárason og félagar í Berg- ischer steinlágu í Flensburg, 37:20, og allt bendir til þess að þeir falli úr deildinni. Rúnar skoraði eitt mark í leiknum.  Úrslit, Íslendingarnir og staðan á bls. 6. vs@mbl.is Kiel stefnir á fullt hús stiga Alfreð Gíslason Einar Jónsson, sem þjálfað hef- ur kvennalið Fram í hand- knattleik síðustu ár, mun ekki stýra liðinu áfram á næstu leiktíð en þetta sagði hann eftir að liðið tapaði fyrir Val í úr- slitaleiknum um Íslandsmeistaratit- ilinn á laugardaginn. Einar tók við karlaliði Fram fyrir leiktíðina og stýrði því báðum lið- um í vetur en hann ætlar nú að ein- beita sér alfarið að karlaliðinu. Halldór Jóhann Sigfússon, fyrirliði karlaliðsins, mun taka við stjórn kvennaliðsins en hann var á meðal áhorfenda í Vodafonehöllinni á laugardaginn. kris@mbl.is Halldór tekur við liði Fram Halldór Jóhann Sigfússon Handknattleiks- maðurinn Sig- urjón Friðbjörn Björnsson er genginn til liðs við ÍR-inga á nýj- an leik eftir tveggja ára dvöl hjá HK en hann varð á dögunum Íslandsmeistari með Kópavogslið- inu. Hann samdi í gær við ÍR til tveggja ára. Sigurjón er 23 ára gamall horna- maður. Hann skoraði 20 mörk í 14 leikjum með HK í úrvalsdeildinni í vetur og var síðan drjúgur með lið- inu í úrslitakeppninni. ÍR-ingar sigruðu í 1. deildinni í vetur og leika því á ný meðal þeirra bestu næsta vetur. Þeir eru komnir vel af stað með að styrkja lið sitt því á dögunum gengu landsliðsmenn- irnir Ingimundur Ingimundarson og Sturla Ásgeirsson til liðs við þá. Þeir eru uppaldir ÍR-ingar, eins og Sig- urjón, og útlit er fyrir að fleiri slíkir gangi til liðs við Breiðholtsliðið. vs@mbl.is Sigurjón aftur til ÍR-inga Sigurjón Friðbjörn Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.