Morgunblaðið - 14.05.2012, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari A-
landsliðs kvenna í handknattleik
hefur valið 20 leikmenn fyrir tvo
síðustu leiki Íslands í undankeppni
EM 2012. Leikið er við Spán hér
heima 30. maí og við Úkraínu á úti-
velli 3. júní.
Íslenska liðið þarf að vinna báða
leikina til að eiga möguleika á að
komast í lokakeppnina sem fer
fram í desember. Fyrir tvær síðustu
umferðirnar eru Spánn og Úkraína
með 6 stig hvort, Ísland 4 en Sviss
ekkert. Báðir keppinautar íslenska
liðsins eiga eftir einn leik við Sviss,
Spánn á heimavelli en Úkraína á
útivelli.
Steinunn Björnsdóttir er eini ný-
liðinn í hópnum en hún stóð sig vel
með Fram í úrslitakeppninni. Ís-
landsmeistarar Vals eiga flesta
leikmenn í hópnum eða sjö talsins.
Hópurinn er skipaður eftir-
töldum leikmönnum.
MARKVERÐIR:
Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Val
Guðrún Ósk Maríasdóttir, Fram
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir, HK
AÐRIR LEIKMENN:
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val
Arna Sif Pálsdóttir, Aalborg
Ásta Birna Gunnardóttir, Fram
Dagný Skúladóttir, Val
Hanna G. Stefánsdóttir, Stjörn.
Hildur Þorgeirsdóttir, Blomberg
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Val
Jóna Sigríður Halldórsdóttir, HK
Jóna Margrét Ragnarsd., Stjörn.
Karen Knútsdóttir, Blomberg
Karólína Bæhrenz Lárudóttir, Val
Ragnhildur Rósa Guðmundsd., Val
Rut Jónsdóttir, Tvis Holstebro
Steinunn Björnsdóttir, Fram
Stella Sigurðardóttir, Fram
Þórey Rósa Stefánsd., Holstebro
Þorgerður Anna Atladóttir, Val
Ágúst valdi tuttugu leikmenn
Morgunblaðið/Golli
Nýliði Steinunn Björnsdóttir er í landsliðshópnum í fyrsta sinn.
1. DEILDIN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Við komum okkur sjálfum ekkert á
óvart. Það er alveg eðlilegt að okkur
sé spáð falli, við erum nýliðar og
fengum mörg mörk á okkur á und-
irbúningstímabilinu þegar við vor-
um að prófa að pressa á andstæð-
ingana framarlega á vellinum. Það
kom oft í bakið á okkur í lok leikja
en er að skila sér núna því við erum
í góðu standi,“ sagði Óttar Steinn
Magnússon fyrirliði Hattar frá Eg-
ilsstöðum sem gerði góða ferð suður
í Laugardal á laugardag og vann 3:1
sigur á Þrótti í fyrstu umferð 1.
deildar karla í knattspyrnu.
Óttar segir sigurinn aldrei hafa
verið í hættu en Högni Helgason
skoraði fyrsta mark deildarinnar á
13. mínútu og Elvar Þór Ægisson
bætti við öðru í seinni hálfleik. Karl
Brynjar Björnsson minnkaði mun-
inn fyrir Þrótt en Stefán Þór Eyj-
ólfsson gulltryggði svo sigurinn
með marki úr víti.
„Við féllum vel til baka gegn
Þrótti og lokuðum vel á þá og sótt-
um svo hratt sem hentar okkar
sóknarmönnum vel. Þeir opnuðu
vörnina okkar einu sinni en áttu
annars engin opin færi,“ sagði Óttar
Steinn sem var með nýjan mark-
vörð á bakvið sig í leiknum, Ryan
Allsop, sem kom frá Millwall og á að
baki leiki með U17 landsliði Eng-
lands.
Lenti degi fyrir leik
„Hann lenti degi fyrir leik og fékk
bara nöfnin á öftustu fjórum [varn-
armönnum] á blaði og æfði sig í að
bera þau fram. Það gekk ágætlega,
hann reyndi alla vega að stjórna
okkur aðeins og það kom meira ör-
yggi í þetta með honum. Við fengum
fæst mörk á okkur af liðunum í 2.
deild í fyrra en þau voru samt svolít-
ið mörg því það var mikið skorað í
henni. Þá spiluðum við hátt uppi á
vellinum en við höfum engar sér-
stakar áhyggjur af varnarleiknum í
sumar,“ sagði Óttar Steinn sem seg-
ir mikið hafa breyst hjá Hetti með
tilkomu Eysteins Húna Haukssonar
sem sneri aftur austur fyrir síðustu
leiktíð til að þjálfa í fyrsta sinn
meistaraflokk.
Hugsa eins og atvinnumenn
„Það breyttist mikið. Hann hefur
gjörbreytt hugarfarinu. Þó að við
séum áhugamenn frá litlum stað úti
á landi þá er hægt að ná helvíti
langt með því að breyta hugarfarinu
og fá menn til að hugsa eins og at-
vinnumenn. Hann er að vinna í fullt
af litlum atriðum í kringum liðið til
að bæta menninguna í kringum það
og leggur mikið upp úr því. Þetta
gengur vel. Þetta er ungur hópur og
flestir líklega fæddir á árunum
1990 til 1988. Við erum ungir og
villtir en látum mjög vel að stjórn,.
það er ágætis blanda,“ sagði Óttar
Steinn sem var nýkominn af æf-
ingu í „skítakulda“ þegar Morg-
unblaðið heyrði í honum í gær. Það
er eflaust þess virði að fá að vera í
efsta sæti deildarinnar áfram.
„Það er kalt á toppnum í orðsins
fyllstu merkingu. Núna er alveg
hríðarbylur hérna. Við tókum ís-
bað áðan og fórum svo út að hlaupa
í snjókomu og 15 metrum á sek-
úndu. Við þurfum að skafa snjóinn
af gervigrasinu fyrir fyrstu heima-
leikina í vikunni,“ sagði Óttar létt-
ur.
Útileikmaður í mark Tindastóls
Hinir nýliðarnir í deildinni, Tinda-
stóll, gerðu Haukum erfitt fyrir
lengi vel á Ásvöllum en máttu sætta
sig við 2:0 tap. Hilmar Trausti Arn-
arsson kom Haukum yfir beint úr
hornspyrnu, og Magnús Páll Gunn-
arsson skoraði í blálokin en þá var
útileikmaðurinn Fannar Örn Kol-
beinsson kominn í mark Tindastóls.
Arnar Magnús Róbertsson hafði
fengið rautt spjald fyrir að senda
áhorfendum löngutöng.
ÍR vann dramatískan sigur á KA,
3:2, þar sem Elvar Páll Sigurðsson
skoraði sigurmarkið í lokin en Elvar,
sem er leikmaður Blika, var láns-
maður hjá KA í fyrra en hjá ÍR nú.
Nigel Quashie skoraði einnig í leikn-
um en margir muna eftir honum frá
því að hann lék með West Ham í
ensku úrvalsdeildinni fyrir fáeinum
árum.
Þór vann Leikni R. 2:0 í annars
tíðindalitlum leik fyrir norðan og
byrjar því vel í baráttu sinni um að
komast aftur upp í úrvalsdeild. Vík-
ingur R. náði hins vegar aðeins
markalausu jafntefli gegn BÍ/
Bolungarvík fyrir vestan. Víkingur
Ólafsvík og Fjölnir gerðu einnig
jafntefli, 1:1.
Markaskorarar í leikjunum eru
á bls. 6.
„Það er kalt á toppnum“
Nýliðar Hattar komu á óvart í fyrstu umferð Nýr markvörður fékk blað
með nöfnum varnarmanna Þór, Haukar og ÍR unnu einnig góða sigra
Morgunblaðið/Eggert
Reyndur Sigurbjörn Hreiðarsson, einn reyndasti knattspyrnumaður landsins, er kominn í raðir Hauka og spilaði
sinn fyrsta deildaleik með þeim á laugardag. Hér á hann í höggi við Árna Einar Adolfsson, fyrirliða Tindastóls.
Sölvi GeirOttesen
tryggði FC Kö-
benhavn stig
gegn Sönder-
jyskE á útivelli í
dönsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu í gær.
Hann lék með
meisturunum á ný eftir meiðsli, spil-
aði síðari hálfleikinn, og jafnaði í 2:2
fimm mínútum fyrir leikslok. Eyjólf-
ur Héðinsson skoraði fyrra mark
SönderjyskE sem komst í 2:0. Nú
getur FCK misst forystuhlutverkið
til Nordsjælland sem er tveimur
stigum á eftir en mætir OB í kvöld.
Að þeim leik loknum eru tvær um-
ferðir eftir í Danmörku.
Eiður Smári Guðjohnsen spilaðifyrsta heila leik sinn með AEK
frá Aþenu í gær, síðan hann fót-
brotnaði í október. AEK sótti þá At-
romitos heim í fjögurra liða úr-
slitakeppninni um eitt sæti í
Meistaradeild Evrópu og Atromitos
vann, 1:0. Panathinaikos er með 8
stig, PAOK 7, AEK 6 og Atromitos 5
í baráttunni um Meistaradeild-
arsætið. Tvær umferðir eru eftir af
keppninni.
Indriði Sigurðsson, fyrirliði Vik-ing Stavanger, skoraði dýrmætt
mark fyrir lið sitt í norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær. Hann
kom Víkingunum í 2:0 skömmu fyrir
leikslok þegar þeir unnu Sogndal 2:1
á útivelli, með marki af stuttu færi
eftir hornspyrnu. Viking lyfti sér
uppí miðja deild með sigrinum.
Auðunn Jóns-son kraft-
lyftingamaður úr
Breiðabliki varð á
laugardaginn í 5.
sæti í saman-
lagðri keppni á
Evrópumótinu í
kraftlyftingum í
Úkraínu. Auðunn
vann til silf-
urverðlauna í réttstöðulyftu þar sem
hann lyfti 357,5 kg, eftir að hafa lyft
407,5 kg í hnébeygju og 275 kg í
bekkpressu. Auðunn lyfti því sam-
tals 1040 kg sem er heimsmet í
flokki öldunga M1.
Spretthlauparinn Helgi Sveinssonsetti á laugardaginn nýtt og
glæsilegt Íslandsmet í 100 metra
hlaupi í flokki T42 á frjáls-
íþróttamóti fatlaðra á Ítalíu. Helgi,
sem keppir á koltrefjafæti frá stoð-
tækjaframleiðandanum Össuri,
hljóp á 14,82 sekúndum og bætti sig
um 48/100 úr sekúndu frá því í Túnis
í fyrra. Helgi stefnir ótrauður á að
komast á ólympíumót fatlaðra síðar
á þessu ári en þau mál skýrast betur
síðar í þessum mánuði. Árangur
Helga er sá tólfti besti í flokki T42
síðustu tvö ár.
Fólk sport@mbl.is