Morgunblaðið - 04.05.2012, Side 8
8 FÓTBOLTINN 2012
ÍBV
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV, er
nokkuð bjartsýnn á gott gengi Eyja-
manna í sumar. ÍBV hefur sett svip
sinn á toppbaráttuna síðustu tvö
sumur. Þó ekki hafi orðið mjög mikl-
ar breytingar á leikmannahópi liðs-
ins í vetur, þá nefna fáir knatt-
spyrnuspekingar liðið til sögunnar
sem meistaraefni.
Það kann að stafa af því að í upp-
hafi móts verður ÍBV án Andra og
Gunnars Más Guðmundssonar sem
eru meiddir auk Tryggva Guð-
mundssonar sem fékk blóðtappa.
„Gunnar Már og Tryggvi verða von-
andi klárir um mánaðamótin maí/
júní. Ég stefni einnig að því að koma
inn í hópinn um það leyti en það er
eftir að koma betur í ljós. Við erum
búnir að styrkja hópinn og erum
komnir með meiri breidd í sóknina.
Við gætum kannski verið svolítið
spurningarmerki í upphafi móts,“
sagði Andri í samtali við Morg-
unblaðið í vikunni.
Magnús aftur út í Eyjar
Magnús Gylfason sneri aftur til
Eyja í vetur og tók við af Heimi
Hallgrímssyni sem hafði verið lengi
við stjórnvölinn en Magnús þjálfaði
ÍBV 2003 og 2004. Andri segir
áherslubreytingar fylgja þjálf-
araskiptunum.
„Það eru ákveðnar áherslubreyt-
ingar og Maggi er með sínar hug-
myndir sem eru ekki endilega alveg
eins og hjá Heimi. Aðstoðarþjálf-
arinn er sá sami og það er ekki snið-
ugt að breyta allt of miklu þar sem
liðinu hefur gengið vel,“ sagði Andri
og hann segir nýju leikmennina hafa
spilað með liðinu í vetur. Þar af leið-
andi er ekki verið að púsla saman
liðinu korteri fyrir mót eins og dæmi
eru um í Eyjum í gegnum tíðina.
„Allir útlendingarnir voru komnir í
janúar og liðið hefur því spilað sam-
an síðan þá. Undantekningin er
Tonny Mawejje en hann þekkir liðið
vel. Ég hef ekki miklar áhyggjur af
þessu og tel okkur vera með sterkt
lið. Við höfum skipulagt okkur vel og
erum búnir að spila heilan haug af
æfingaleikjum. Það er því búið að
negla þetta saman hjá okkur,“ út-
skýrði Andri sem sjálfur hefur
reyndar lítið getað beitt sér vegna
meiðsla.
Gengi krónunnar herðir
baráttuna um Evrópusæti
ÍBV á forvitnilegan leik í 1. um-
ferð en þá fer liðið ekki langt upp á
land heldur mætir Selfossi í Suður-
landsslag. „Við byrjum á Selfossi og
þar verður örugglega hörkustemn-
ing enda fyrsti leikur þeirra í úrvals-
deild í tæp tvö ár. Það verður fjör en
ég reikna með því að við förum af
varkárni inn í mótið. Menn vita ekk-
ert af viti um Selfossliðið og maður
veit ekki almennilega hvað maður er
að fara út í,“ sagði Andri og hann
segir að deildin geti hugsanlega orð-
ið þrískipt.
„Þetta gæti orðið mikill pakki en
einnig gæti deildin orðið tví- eða þrí-
skipt. Það kæmi mér ekki á óvart ef
hún yrði þrískipt. Þá myndu fjögur
til fimm lið eiga möguleika á titlinum
fyrir lokaumferðirnar, nokkur lið
verða örugg með sitt sæti og nokkur
lið í fallbaráttunni. Baráttan um að
ná Evrópusæti er orðin hrikalega
mikil, meðal annars vegna gengis
krónunnar. Það hjálpar mikið til í
rekstrinum og það horfa örugglega
mörg lið til þess að ná Evrópusæti.
Mörg lið hafa styrkt sig mikið og
mér sýnist að deildin sé bara mjög
sterk,“ sagði Andri Ólafsson við
Morgunblaðið.
Skýrari línur
en oft áður
Morgunblaðið/Ómar
Fyrirliðinn Andri Ólafsson verður fjarri góðu gamni í fyrstu umferðum Ís-
landsmótsins ásamt fleiri lykilmönnum Eyjamanna að þessu sinni.
Leikmenn
árið 2012
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Abel Dhaira 1987 9 0 6 Walukuba ‘10
25 Guðjón Orri Sigurjónsson 1992 1 0 0 *KFS ‘11
Markverðir
2 Brynjar Gauti Guðjónsson 1992 12 1 0 Víkingi Ó. ‘11
3 Matt Garner 1984 88 2 0 Northwich ‘06
8 Yngvi Magnús Borgþórsson 1975 54 1 0 KFS ‘07
16 Jón Ingason 1995 2 0 0
19 Arnór Eyvar Ólafsson 1989 43 0 0
26 Bjarki Axelsson 1993 0 0 0 KFR ‘12
28 Rasmus Christiansen 1989 43 0 0 Lyngby ‘10
Varnarmenn
4 Gunnar Már Guðmundsson 1983 75 20 1 Þór ‘12
5 Þórarinn Ingi Valdimarsson 1990 61 11 1
6 Andri Ólafsson 1985 122 19 0
7 Guðmundur Þórarinsson 1992 38 1 0 Selfoss ‘11
14 Ragnar Leósson 1991 4 0 0 ÍA ‘12
15 Tonny Mawejje 1986 64 5 36 *GoldenArrows‘12
24 Óskar Elías Óskarsson 1995 1 0 0
30 Ian Jeffs 1982 125 20 0 Valur ‘11
Miðjumenn
9 Tryggvi Guðmundsson 1974 221 126 42 FH ‘10
10 Aaron Spear 1993 11 6 0 Newcastle ‘11
13 Kjartan Guðjónsson 1992 7 0 0 *KFS ‘10
20 Björn Axel Guðjónsson 1994 0 0 0
21 Christian Steen Olsen 1983 0 0 0 Skive ‘12
22 Gauti Þorvarðarson 1989 26 1 0 *KFS ‘12
23 Eyþór Helgi Birgisson 1989 22 2 0 HK ‘12
29 Víðir Þorvarðarson 1992 17 1 0 Stjörnunni ‘12
Sóknarmenn
ÍBV gat undirbúið sig vel í vetur að
þessu sinni Meiðsli hjá lykilmönnum
Magnús Gylfason
er kominn aftur í
efstu deild eftir
fimm ára hlé en
hann stýrði 1.
deildar liði
Hauka á síðasta
tímabili. Magnús
hefur áður þjálf-
að Víking frá
Ólafsvík, KR og
Víking úr
Reykjavík en hann hefur jafnframt
áður þjálfað lið ÍBV. Hann er því öll-
um hnútum kunnugur í Eyjum.
Skemmtikrafturinn Abel Dhaira
frá Úganda verður væntanlega á
milli stanganna hjá ÍBV en hann
vakti talsverða athygli í fyrra. Al-
bert Sævarsson virðist einnig vera
að endurskoða þá ákvörðun sína að
hætta knattspyrnuiðkun en er þó
ekki í hópi liðsins til að byrja með.
Fyrir framan þá eiga Eyjamenn
ekki mjög marga valkosti. ÍBV er
með fína breidd á miðsvæðinu og í
framlínunni en má ekki við miklum
skakkaföllum í vörninni. Liðið stend-
ur þó vel að vígi með Danann Ras-
mus Christiansen í hjarta varn-
arinnar enda var hann einn albesti
varnarmaður deildarinnar í fyrra.
Með honum gæti Ólsarinn Brynjar
Gauti Guð-
jónsson verið en
Andri Ólafsson
getur einnig farið
í miðvörðinn ef á
þarf að halda.
ÍBV fékk til sín
Sverri Garð-
arsson frá FH en
hann hefur tekið
ákvörðun um að
leggja skóna á
hilluna enda ekk-
ert leikið um nokkurra ára skeið.
Matt Garner er þekkt stærð í bak-
varðarstöðunni vinstra megin og
hægra megin verður væntanlega
Arnór Eyvar Ólafsson.
Á miðjunni eru margir fjölhæfir
leikmenn sem prófað hafa margar
stöður á vellinum. Auk Andra má
þar nefna Gunnar Má Guðmunds-
son, Ian Jeffs, Tonny Mawejje, Guð-
mund Þórarinsson, Tryggva Guð-
mundsson og Þórarin Inga
Valdimarsson. Ljóst er á þessari
upptalningu að Eyjamenn verða
sterkir á miðjunni og mun Guð-
mundur líklega leika sem mið-
tengiliður í sumar.
Nokkrir þessara leikmanna geta
einnig leikið frammi en þar hefur
Magnús einnig nokkra valkosti. Ar-
on Spear kom vel út seinni hluta
mótsins í fyrra og þá hefur liðið
fengið Danann Christian Steen Ol-
sen. Þá er Eyþór Helgi Birgisson
kominn aftur til ÍBV frá HK og
Skagamaðurinn Ragnar Leósson
mun reyna fyrir sér í Eyjum í sum-
ar. Baráttan um stöðurnar í byrj-
unarliðinu verður því hörð hjá ÍBV í
sumar.
ÍBV
Magnús
Gylfason
Þórarinn Ingi
Valdimarsson
KOMNIR:
Bjarki Axelsson frá KFR
Christian Steen Olsen frá Skive
(Danmörku)
Eyþór Helgi Birgisson frá HK
Gauti Þorvarðarson frá KFS
(úr láni)
Gunnar Már Guðmundsson frá
FH (lék með Þór 2011)
Ragnar Leósson frá ÍA
Sverrir Garðarsson frá FH
Víðir Þorvarðarson frá
Stjörnunni
FARNIR:
Anton Bjarnason í Hauka (lán)
Denis Sytnik í Petrolul
(Rúmeníu)
Finnur Ólafsson í Fylki
Breytingar á liði ÍBV
Fótboltasokkar frá kr. 1590.-
Fótboltabuxur frá kr 5990.-
Æfingapeysa vind-& regnvarin
frá kr. 5990.-
Úrval af hummel æfingafatnaði
fæst í sportvörurverslunum um
land allt.
www.hummel.net