Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 14

Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 14
14 FÓTBOLTINN 2012 BREIÐABLIK Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Það fer að verða fátítt hér á landi rétt eins og erlendis, að þjálfarar haldist í starfi í efstu deild í meira en fimm ár. Það er hinsvegar stað- reyndin með Ólaf Kristjánsson hjá Breiðabliki. Hann er að ýta úr vör sjöunda tímabil í röð sem þjálfari Blika en liðið varð í fyrsta skipti Ís- landsmeistari undir hans stjórn árið 2010. Ári áður varð liðið bikarmeist- ari. Væntingarnar fyrir síðasta tímabil voru miklar en þær eru minni að þessu sinni í Kópavogi. Spurður út í þessar minni væntingar segir Ólafur: „Þegar maður horfir í baksýnisspegil sést að maður áttaði sig ekki alveg á væntingum annarra í fyrra. Það var bæði þannig að við áttum að vera í toppbaráttu og svo þegar menn spáðu þá var það yfirleitt í kringum fjórða sætið. Íslandsmeistaratitillinn árinu áður varð til þess að menn ætl- uðust til að við værum í toppbaráttu en svo þegar við endum tveimur sæt- um neðar en okkur var oftast spáð, þá voru þetta gríðarleg vonbrigði. Nú er verið að spá okkur í þetta 7. til 8. sæti og þá veltir maður því fyrir sér hverjar raunverulegu vænting- arnar eru. Ég held að við séum svo- lítið óskrifað blað og aðrir eiga erfitt með að staðsetja okkur fyrir þetta tímabil.“ Ólafur sagði væntingarnar hófstilltari nú og að tímabilið í fyrra hefði verið gott spark í rassinn. Lykilmenn horfnir á braut Blikar hafa fengið til sín nokkra leikmenn úr 1. og 2. deildinni auk þeirra ungu leikmanna sem hafa far- ið í gegnum yngri flokka starf félags- ins. Þeir koma í stað sterkra leik- manna eins og Guðmundar Kristjánssonar, Kára Ársælssonar, Kristins Steindórssonar og Elfars Freys Helgasonar. Ólafur segir að breiddin í leikmannahópnum hafi aukist og að gæðin séu því öðruvísi. Spurður hvort þessir strákar þurfi ekki tíma til að aðlagast efstu deild, segir Ólafur: „Það er klárt að leikmennirnir sem fóru voru lykilleikmenn síðustu ár. Þar af leiðandi myndu menn segja að hópurinn hefði veikst en breiddin hefur hinsvegar aukist og samkeppnin er meiri en í fyrra. Þess- ar breytingar voru nauðsynlegar fyr- ir leikmennina og félagið. Þetta eru hinsvegar miklar hræringar sem hefðu að ósekju mátt gerast á tveim- ur árum en ekki einu. Mér finnst þó að hópurinn sé einbeittari en við er- um augljóslega reynsluminni en á síðasta ári. Við rennum því kannski svolítið blint í sjóinn.“ Elfar með nef eins og Gosi Ólafur segir jafnframt að mark- miðin séu skýrari sökum þess að þeir sem eru í kringum liðið hafi nú meiri hugmynd um hvar það stendur. „Við vitum núna hvaðan við erum að fara og hvert. Það er nauðsynlegt að vita hvar maður stendur og ég held að við höfum ekki gert okkur grein fyrir því í fyrra.“ Elfar Árni Aðalsteinsson reimaði svo sannarlega á sig markaskóna eft- ir að hann kom til félagsins í vetur frá Völsungi þar sem hann hefur spilað í 2. og 3. deild til þesssa. Hann gæti orðið sá leikmaður sem kemur mest á óvart í Pepsi-deildinni í sum- ar. Markanef hans virðist jafn langt og á Gosa þegar hann tekur upp á því að ljúga sem mest. Þetta gætu jafn- framt orðið kaup vetrarins ef Elfar heldur áfram á sömu braut, þegar sólin fer að skína í Kópavogi. Blikar vita hvar þeir eru Morgunblaðið/Ómar Fyrirliðinn Finnur Orri Margeirsson er aðeins 21 árs en hefur tekið við fyr- irliðastöðunni hjá Breiðabliki og getur spilað bæði á miðju og í vörn. Leikmenn árið 2012 Efsta deild Lands- Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá * var í láni 1 Ingvar Þór Kale 1983 83 0 0 Víkingi R. ‘09 25 Sigmar I. Sigurðarson 1983 10 0 0 Hvöt ‘09 Markverðir 2 Gísli Páll Helgason 1991 21 0 0 Þór ‘12 4 Renee Troost 1988 0 0 0 Apeldoorn ‘12 14 Höskuldur Gunnlaugsson 1994 2 0 0 15 Sverrir Ingi Ingason 1993 0 0 0 16 Adam Örn Arnarson 1995 0 0 0 19 Kristinn Jónsson 1990 77 1 1 21 Þórður S. Hreiðarsson 1986 42 2 0 HB ‘11 22 Hrannar Einarsson 1994 0 0 0 31 Guðmundur Friðriksson 1994 0 0 0 33 Ósvald Jarl Traustason 1995 0 0 0 34 Ingiberg Ólafur Jónsson 1995 0 0 0 Varnarmenn 3 Finnur Orri Margeirsson 1991 78 0 0 5 Sindri Snær Magnússon 1992 0 0 0 ÍR ‘12 9 Haukur Baldvinsson 1990 42 7 0 *Augnabliki ‘07 17 Jökull I. Elísabetarson 1984 129 3 0 Víkingi R. ‘10 10 Rafn Andri Haraldsson 1989 56 2 0 Þrótti R. ‘10 11 Olgeir Sigurgeirsson 1982 110 5 0 ÍBV ‘03 26 Páll O. Þorsteinsson 1995 0 0 0 27 Tómas Óli Garðarsson 1993 18 1 0 29 Viggó Kristjánsson 1993 0 0 0 Gróttu ‘12 30 Andri Rafn Yeoman 1992 46 4 0 32 Alexander H. Sigurðarson 1996 0 0 0 Miðjumenn 7 Elfar Árni Aðalsteinsson 1990 0 0 0 Völsungi ‘12 18 Arnar Már Björgvinsson 1990 43 13 0 Stjörnunni ‘11 20 Stefán Þór Pálsson 1995 0 0 0 ÍR ‘12 23 Árni Vilhjálmsson 1994 10 2 0 24 Guðmundur Pétursson 1986 71 8 0 KR ‘09 28 Petar Rnkovic 1978 0 0 0 Mjöndalen ‘12 Sóknarmenn  Meiri breidd en í fyrra  Gæðin eru öðruvísi  Hófstilltar væntingar Ólafur H. Kristjánsson hefur verið hjá Breiðablik síðustu sex tímabil og þetta verður því hans sjöunda. Hann er sá eini sem hefur gert félagið að bæði bikar- og Íslandsmeist- urum. Blikar náðu ekki að fylgja eftir á síð- asta ári góðum árangri sumarið 2010. Margir töl- uðu um vonbrigði og það ef til vill eðlilega. Íslands- meistararnir voru farnir að nálgast fallbaráttuna en góður lokasprettur tryggði þeim áframhaldandi veru á meðal þeirra bestu þar sem þeir hafa verið síðan 2006. Ólafur kemur væntanlega til með breyta um leikkerfi frá því síðasta sumar þar sem spilað verður hið sí- gilda 4-4-2. Ingvar Þór Kale og Sigmar Ingi Sigurðarson berjast um að leika milli stanganna. Það gerðu þeir seinni hluta síðasta tímabils og verð- ur væntanlega framhald á því. Gísli Páll Helgason sem kom frá Þór A. verður væntanlega í hægri bakverðinum og Kristinn Jónsson vinstra megin, það er öruggt mál. Í hjarta varn- arinnar verða Sverrir Ingi Ingason og Þórð- ur Steinar Hreið- arsson líklega þeir sem ráða ríkjum. Finnur Orri Margeirsson fyr- irliði liðsins verð- ur svo sá sem stjórnar umferð- inni á miðjunni. Þeir Andri Rafn Yeoman og Jökull I. Elísabetarson munu svo slást um hina stöðuna á miðri miðjunni. Á vinstri kanti er lík- legt að Rafn Andri Haraldsson komi til með að hlaupa fram og til baka enda sprækur strákur. Hann er að jafna sig af meiðslum í hné en ætti að vera orðinn góður þegar Íslands- mótið hefst. Haukur Baldvinsson og Tómas Óli Garðarsson verða svo báðir til taks á hægri vænginn. Elfar Árni Aðalsteinsson sem kom til liðsins frá Völsungi mun án nokkurs vafa eiga fast sæti í byrj- unarliðinu. Framganga hans í vetur hefur verið þannig að hann kæmist væntanlega að hjá flestum liðum deildarinnar. Með honum verður væntanlega Petar Rnkovic frá Nor- egi en hann kom frá Mjöndalen. Árni Vilhjálmsson ungur og efnileg- ur framherji þeirra Blika verður svo til taks verði einhver langur þurrkur hjá þeim Elfari eða Rnkovic. Blikar búa yfir frábæru yngri- flokkastarfi. Það hefur skilað sér í mörgum efnilegum leikmönnum og einhverjir slíkir munu eflaust fá tækifæri í sumar. Breiðablik Ólafur H. Kristjánsson Jökull I. Elísabetarson KOMNIR: Elfar Á. Aðalsteinss. frá Völsungi Gísli Páll Helgason frá Þór Petar Rnkovic frá Mjöndalen (Noregi) Renee Troost frá Apeldoorn (Hollandi) Sindri Snær Magnússon frá ÍR Stefán Þór Pálsson frá ÍR Viggó Kristjánsson frá Gróttu FARNIR: Guðmundur Kristjánsson í Start (Noregi) (lán) Kári Ársælsson í ÍA Kristinn Steindórsson í Halmstad (Svíþjóð) Marko Pavlov, óvíst Reynir Magnússon í ÍR (lán) Vignir Jóhanness. í Njarðvík (lán) Viktor Unnar Illugason í Hauka (lán) Breytingar á liði Breiðabliks Manual Therapy Valgeir Einarsson Mäntylä hefur hafið störf hjá Klínik Sjúkraþjálfun Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur. Áhugasvið: Íþróttasjúkraþjálfun og almenn sjúkraþjálfun. Á stofunni starfa einnig þeir Gísli Sigurðsson MT-sjúkraþjálfari og Einar Harðarsson sjúkraþjálfari sem hafa áralanga reynslu í meðhöndlun stoðkerfisvandamála og hafa starfað lengi fyrir íþróttafélög. Á staðnum er auk þess fullbúinn æfingasalur sem hentar vel fyrir endurhæfingu íþróttafólks og almenna skjólstæðinga. Hægt er að panta tíma í skoðun og meðferð í síma 445 4404 Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.