Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 16
16 FÓTBOLTINN 2012 FYLKIR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Sumarið leggst mjög vel í mig og Árbæinga yfirhöfuð held ég. Það er alltaf góð stemning í Árbænum. Það vantar ekki,“ sagði Bjarni Þórður Halldórsson, markvörður Fylkismanna, í samtali við Morg- unblaðið. Fylkismenn enduðu í 7. sæti í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili undir stjórn Ólafs Þórðarsonar. Nú er Ásmundur Arnarsson við stjórn- völinn hjá Árbæjarliðinu en Ás- mundur hefur stýrt Fjölnisliðinu um árabil, eða samfleytt frá árinu 2005. Hann fór með Fjölni upp í efstu deild og í tvo bikarúrslitaleiki á þeim tíma. Fylkismenn hafa leikið í efstu deild frá árinu 2000 en þeirra besti árangur er annað sætið árin 2000 og 2002 og þá urðu þeir bik- armeistarar tvö ár í röð, 2001 og 2002. Erfiður vetur að baki ,,Erfiður vetur er að baki en með hækkandi sól þá tel ég allt mögu- legt hvað okkar lið varðar. Gengi okkar á undirbúningstímabilinu hefur ekki verið gott. Úrslitin hafa ekki fallið með okkur og þetta er ekki undirbúningstímabil sem við getum verið stoltir af. En við höf- um æft vel og ég held að menn mæti til leiks í toppstandi nú þegar alvaran er að hefjast. Við verðum klárir í bátana 6. maí,“ sagði Bjarni Þórður, sem mun verja mark Fylk- ismanna í sumar en í fyrra barðist hann um markmannsstöðuna við Fjalar Þorgeirsson, sem er genginn í raðir Íslandsmeistara KR. Þá sneri Bjarni aftur í Árbæinn eftir að hafa leikið með Stjörnunni í nokkur ár. Fylkismenn hafa misst sterka pósta úr liði sínu frá því í fyrra, reynslubolta á borð við Gylfa Einarsson, Val Fannar Gíslason og helsta markaskorara liðsins síðustu árin, Albert Brynjar Ingason, sem er kominn til FH-inga. Á móti hafa Fylkismenn fengið til að mynda sóknarmennina Björgólf Takefusa og Árna Frey Guðnason og miðju- manninn sterka Finn Ólafsson, sem gerði það gott með Eyjamönnum á síðustu leiktíð. Töluverð reynsla farin ,,Það hefur farið töluverð reynsla úr liðinu en við höfum fengið nokkra sterka leikmenn í staðinn auk þess sem við eigum helling af ungum og efnilegum leikmönnum sem hafa verið að stíga upp í vetur. Ég tel að það verði hægt að gera góða hluti með okkar lið,“ segir Bjarni um þessar breytingar. Spurður hvar hann staðsetji Fylkisliðið hvað deildina varðar segir Bjarni: ,,Við setjum okkur ekki langtíma- markmið. Nú er bara 6. maí sem skiptir máli og við hugsum ekkert lengra fram í tímann en það. Það er engin beygur í okkur. Það fullt af hæfileikum hér í Árbænum sem við höfum sparað fyrir mótið.“ Spurning hvað Fram gerir Bjarni býst við að sömu lið og undanfarin ár komi til með að berj- ast á toppnum. ,,Ég sé klárlega fyrir mér FH og KR í baráttunni um titilinn og ÍBV verður ofarlega og svo er spurning hvað Framararnir gera. Þeir hafa gert það gott á undirbúnings- tímabilinu en hvort þeir fylgja því eftir er eftir að koma í ljós,“ sagði Bjarni Þórður Halldórsson. Engin lang- tímamarkmið Morgunblaðið/Eggert Skorar Ingimundur Níels Óskarsson gerði 7 mörk fyrir Fylki í deildinni í fyrra en lék þó síðustu vikur tímabilsins með Sandnes Ulf í Noregi. Leikmenn árið 2012 Efsta deild Lands- Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá * var í láni 1 Bjarni Þ. Halldórsson 1983 94 0 0 Stjörnunni ‘11 12 Ísak Björgvin Gylfason 1993 1 0 0 31 Ólafur Íshólm Ólafsson 1995 0 0 0 32 Kristján Finnbogason 1971 265 0 20 Gróttu ‘12 Markverðir 2 Kristján Valdimarsson 1984 137 1 0 Grindavík ‘07 6 Þórir Hannesson 1986 78 6 0 Fjölni ‘06 11 Kjartan Ágúst Breiðdal 1986 87 15 0 13 Benedikt Óli Breiðdal 1993 0 0 0 20 Daníel Freyr Guðmundsson 1991 1 0 0 *Fjarðabyggð ‘12 25 David Elebert 1986 0 0 0 Hamilton ‘12 26 Andri Þór Jónsson 1991 16 1 0 29 Ásgeir Eyþórsson 1993 1 0 0 30 Hjörtur Hermannsson 1995 9 1 0 Varnarmenn 3 Ásgeir Börkur Ásgeirsson 1987 60 1 0 *Selfossi ‘09 4 Finnur Ólafsson 1984 67 1 0 ÍBV ‘12 5 Davíð Þór Ásbjörnsson 1992 27 2 0 7 Ingimundur N. Óskarsson 1986 74 21 0 KR ‘08 14 Magnús Þ. Matthíasson 1990 52 7 0 Keflavík ‘12 16 Tómas Þorsteinsson 1988 49 1 0 *Aftureldingu ‘09 17 Ásgeir Örn Arnþórsson 1990 31 4 0 19 Oddur Ingi Guðmundsson 1989 14 1 0 Þrótti R. ‘10 22 Andri Már Hermannsson 1993 16 0 0 24 Elís Rafn Björnsson 1992 5 0 0 27 Styrmir Erlendsson 1993 4 1 0 28 Emil Ásmundsson 1995 0 0 0 Miðjumenn 8 Árni Freyr Guðnason 1986 3 0 0 ÍR ‘12 9 Jóhann Þórhallsson 1980 139 39 0 KR ‘08 10 Björgólfur Takefusa 1980 151 80 3 Víkingi R. ‘12 15 Hákon Ingi Jónsson 1995 0 0 0 18 Hermann Ármannsson 1994 0 0 0 23 Rúrik Andri Þorfinnsson 1992 18 0 0 Fram ‘11 Sóknarmenn  Ekki gott undirbúningstímabil hjá Fylkismönnum  Efniviður til staðar Ásmundur Arnarsson er kominn í brúna í Árbænum og leiðir ungt lið Fylkis til leiks í sumar. Ásmundur tók við Fylkislið- inu af harðjaxl- inum Ólafi Þórð- arsyni, sem er kominn til Vík- ings, en Ásmund- ur hefur und- anfarin ár verið við stjórnvölinn hjá Fjölni í Graf- arvogi þar sem hann gerði góða hluti. Fylkismenn enduðu í 7. sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð og voru í neðri hluta deildarinnar allt tímabilið og í talsverðu basli. Ekki er óraunhæft að ætla að Ár- bæjarliðsins bíði svipað hlutskipti í sumar en hópur þeirra er frekar lítill og meiðsli hafa sett strik í reikning- inn á undirbúningstímabilinu, sem hefur verið erfitt hjá liðinu, en efni- viðurinn er til staðar í Árbænum. Bjarni Þórður Halldórsson verð- ur á milli stanganna hjá Fylkis- mönnum en hann missti nokkuð úr á síðasta tímabili. Reyndur og góður markvörður þar á ferð sem fær ef- laust mikið að gera í sumar. Kristján Valdimarsson, Þórir Hannesson og Skotinn David Elebert, sem Fylkir fékk fyrir skömmu, koma til með að spila í miðvarðarstöð- unum og í bak- varðarstöðunum Davíð Þór Ás- björnsson og Kjartan Ágúst Breiðdal. Hinn ungi Ásgeir Eyþórsson gæti líka komið við sögu í vinstri bakvarð- arstöðunni. Á miðjunni kemur til með að mæða mikið á hinum eitilharða Ás- geiri Berki Ásgeirssyni sem og Finni Ólafssyni en Fylkismenn fengu góðan liðsstyrk þegar þeir fengu Finn frá Eyjamönnum fyrir tímabilið. Með þeim verða Magnús Þórir Matthíasson, Kefl- víkingurinn sem kom í Árbæinn í vetur, og Elís Rafn Björnsson. Sóknarmennirnir sem Fylkir hef- ur úr að spila og koma til að spila mikið á leiktíðinni eru Ingimundur Níels Óskarsson, Jóhann Þórhalls- son og Árni Freyr Guðnason, markaskorari ÍR-inga síðustu árin. Kjartan Ágúst Breiðdal gæti spilað á vintri kantinum eins og í bakvarð- arstöðunni. Þá er ótalinn Björgólfur Take- fusa en þessi mikli markaskorari kemur til með að missa af fyrstu leikjum Fylkismanna vegna meiðsla. Um leið og hann verður kominn á skrið mun hann eflaust Árbæjarlið- inu drjúgur enda markaskorari af guðs náð. Fylkir Ásmundur Arnarsson Finnur Ólafsson KOMNIR: Árni Freyr Guðnason frá ÍR Björgólfur Takefusa frá Víkingi R. (lán) David Elebert frá Hamilton (Skotlandi) Finnur Ólafsson frá ÍBV Kristján Finnbogason frá Gróttu Magnús Þórir Matthíasson frá Keflavík FARNIR: Albert Brynjar Ingason í FH Baldur Bett í Reyni S. Fjalar Þorgeirsson í KR Gylfi Einarsson, hættur Hjörtur Hermannsson í PSV (Hollandi) (fer 1. júlí) Jóhann Andri Kristjánsson í Leikni R. (lán) Trausti Björn Ríkharðsson í ÍR Valur Fannar Gíslason í Hauka Breytingar á liði Fylkis – Bros með Hummel “Rapid Blade” takkaskórinn frá Hummel. Einstaklega léttur. Kr. 16.990.- “Junior Star” barnaskórinn elskar að sparka í bolta. Kr. 6.990.- Nýtt upphaf “Rapid X Blade” takkaskórinn frá Hummel hefur fengið frábæra dóma og viðtökur. Komið og prófið að stíga í þennan. Kr. 25.990.- Norðlingabraut 14 • 110 Reykjavík • Sími 569 9000 • www.bros.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.