Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 18

Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 18
KEFLAVÍK Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Keflavík hefur gengið í gegnum tölu- verðar breytingar frá því síðasta sumar. Uppbygging hófst í vetur þar sem ungir leikmenn úr 2. flokki fé- lagsins voru fengnir inn í æfingahóp- inn. Þar af leiðandi hefur undirbún- ingstímabilið ekki verið eins og venjan er hjá reynslumeiri leik- mönnum liðsins, eins og Guðmundi Steinarssyni markahrók. Hann segir að þrátt fyrir það hafi vel gengið. „Við erum að upplifa sömu tíma og þegar ég og Jóhann Birnir Guð- mundsson stigum okkar fyrstu skref með meistaraflokki en við vorum ein- mitt að tala um það fyrir skömmu. Við eldri og reyndari leikmenn fé- lagsins gerðum okkur allir grein fyrir því að framundan væru kyn- slóðaskipti. Í þau hefur verið farið með skipulögðum hætti og hefur okk- ur gengið vel að slípa hópinn saman. Þessi leið var nauðsynleg þar sem við höfum ekki sama fjármagn og önnur lið. Við höfum því þurft að treysta á okkar framleiðslu.“ Renna blint í sjóinn Það er nýr karl í brúnni hjá Kefla- vík en Zoran Daníel Ljubicic tók við stjórnartaumunum af Willum Þór Þórssyni. Zoran hefur þjálfað yngri flokka félagsins undanfarin ár við góðan orðstír. Hann mun ásamt Gunnari Oddssyni stjórna Keflavík í sumar og segir Guðmundur að það hafi verið besti möguleikinn í stöð- unni. „Yngri strákarnir hafa alist upp undir stjórn Zorans og þekkja því vel til hans. Ekki skemmir fyrir að hann spilaði að sjálfsögðu með liðinu hér á árum áður og þekkir því vel til félags- ins og þeirrar baráttu. Gunnar er svo hokinn af reynslu og mun vega upp reynsluleysi Zorans, af þjálfun meist- araflokks í efstu deild.“ Tímabilið í fyrra var miðjuþóf af bestu gerð þar sem liðið var ekki í baráttunni á toppnum en sogaðist reyndar hægt og rólega niður í fall- baráttuna á lokasprettinum. Guð- mundur upplifði þó ekki fallbaráttu eins og hún gerist verst. „Ég hef upp- lifað það áður með Keflavík og þetta var allt öðruvísi. Mér fannst eins og svo mikið þyrfti að gerast í fyrra til að við myndum falla. Pressan náði ekki inn í hópinn að því er mér fannst.“ Spurður um þetta tímabil og hvort eitthvað svipað muni einkenna tíma- bilið hjá Keflavík þetta sumarið, sagði Guðmundur: „Við rennum pínu blint í sjóinn þó við séum með reynda menn inn á milli. Það eru strákar hjá okkur sem þurfa að taka stórt hlut- verk að sér og við sem eldri erum þurfum að treysta þeim fyrir því. Það má því segja að þessir strákar þurfi að fullorðnast svolítið fljótt. Ég hef trú á því að þeir geti það og ef svo verður hef ég svo sem ekki miklar áhyggjur af sumrinu.“ Deyja fyrir klúbbinn Guðmundur viðurkennir þó að auð- vitað geti brugðið til beggja vona en segir jafnframt að það sé spennandi sumar framundan. Ljóst þykir að Keflavík er við- kvæmt fyrir meiðslum þar sem leik- mannahópur liðsins er ekki stór. Eins og staðan er glímir enginn leikmaður liðsins við alvarleg meiðsl og ætti Zoran því að geta stillt upp sínu sterkasta liði í byrjun móts. Það gæti svo hjálpað Keflavík hversu margir heimamenn spila með liðinu þetta sumarið. Vinsælasta slagorð eða hvatning síðasta sumars, „Deyja fyr- ir klúbbinn“, gæti verið í hávegum haft suður með sjó. Guðmundur segir mikilvægt að hafa endurheimt fyrirliða liðsins frá því í fyrra, Harald Frey Guðmunds- son sem stoppaði stutt í Noregi. Hann og Gregor Mohar sem kom frá Slóveníu í vetur gætu reynst dýr- mætir í vörn liðsins. Treysta á sína framleiðslu Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrirliði Haraldur Freyr Guðmundsson verður áfram í stóru hlutverki í vörn Keflavíkur en hann lék með Start í Noregi á lokasprettinum í fyrra. Leikmenn árið 2012 Efsta deild Lands- Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá 1 Ómar Jóhannsson 1981 125 0 0 Bunkeflo ‘05 12 Árni Freyr Ásgeirsson 1992 3 0 0 21 Bergsteinn Magnússon 1994 0 0 0 Markverðir 2 Viktor S. Hafsteinsson 1992 13 0 0 3 Jóhann R. Benediktsson 1980 44 1 0 Fjarðabyggð ‘12 4 Haraldur F. Guðmundsson 1981 88 4 2 Staet ‘12 5 Gregor Mohar 1985 0 0 0 Radomlje ‘12 15 Kristinn Björnsson 1987 0 0 0 Njarðvík ‘12 19 Ásgrímur Rúnarsson 1993 3 0 0 22 Magnús Þór Magnússon 1992 13 0 0 26 Grétar Atli Grétarsson 1988 12 0 0 Haukar ‘12 Varnarmenn 6 Einar Orri Einarsson 1989 68 1 0 7 Jóhann B. Guðmundsson 1977 106 27 8 GAIS ‘08 17 Arnór Ingvi Traustason 1993 14 1 0 23 Sigurbergur Elísson 1992 5 0 0 25 Frans Elvarsson 1990 6 1 0 *Njarðvík ‘11 Denis Selimovic 1979 0 0 0 Interblock ‘12 Miðjumenn 8 Bojan Stefán Ljubicic 1992 18 1 0 9 Guðmundur Steinarsson 1979 233 74 3 Vaduz ‘09 10 Hilmar Geir Eiðsson 1985 43 9 0 Haukum ‘11 11 Magnús S. Þorsteinsson 1982 181 26 0 Grindavík ‘06 13 Daníel Gylfason 1993 0 0 0 18 Theodór G. Halldórsson 1993 1 0 0 20 Þorsteinn Þorsteinsson 1988 0 0 0 *Reyni S. ‘12 29 Ísak Örn Þórðarson 1988 3 1 0 Haukum ‘11 Sóknarmenn * var í láni  Ungir strákar verða að fullorðnast hratt  Viðkvæmir fyrir meiðslum 18 FÓTBOLTINN 2012 Zoran Daníel Ljubicic tók við þjálf- un Keflavíkur eftir tímabilið í fyrra. Hann er eftirmaður Willums Þórs Þórssonar sem þjálfaði liðið und- anfarin tvö ár. Zorani til aðstoðar verður Gunnar Oddsson marg- reyndur þjálfari og leikmaður með Keflavík. Þetta er í fyrsta sinn sem Zoran stjórnar liði í efstu deild en hann hefur þjálf- að yngri flokka Keflavíkur und- anfarin ár og meðal annars gert þá að bikarmeist- urum. Hans fyrsta þjálfarastarf var hjá Völsungi árið 2005. Hann spilaði sex tímabil með Keflavík frá árinu 1999 til 2004. Ómar Jóhannsson mun verja mark liðsins í sumar eins og und- angengin ár. Fyrir framan hann mun Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði liðsins stjórna vörninni. Hann verður líklega með nýjan leik- mann, Gregor Mohar, sér við hlið en Mohar getur reyndar líka leyst stöðu bakvarðar. Í bakvarðastöð- unni hægra megin verður að öllum líkindum Grétar Atli Grétarsson. Hann kom frá Stjörnunni eftir að hafa verið í láni hjá Haukum síðasta tímabil. Hann á ættir að rekja til Keflavík- ur en faðir hans, Grétar Magn- ússson, var í gull- aldarliði þeirra upp úr 1970. Jó- hann Ragnar Benediktsson er svo líklegur til að leysa vinstri bakvarðastöðuna. Á miðjunni hjá Keflavík er nóg til af kantmönnum. En miðað við það kerfi sem er orðið vinsælast hér á Íslandi og víðar þá er líklegt að Ein- ar Orri Einarsson verði djúpur á miðjunni og Arnór Ingvi Trausta- son og Frans Elvarsson verði fyrir framan hann. Á köntunum verða svo líklega Jóhann Birnir Guðmunds- son og Magnús S. Þorsteinsson. Guðmundur Steinarsson verður svo án nokkurs vafa í framlínunni þar sem þessi markakóngur efstu deild- ar 2008 skorar mörk og leggur þau upp. Guðmundur er bæði marka- hæsti og leikjahæsti leikmaður liðs- ins í efstu deild og það mun áfram mæða mikið á honum. Hilmar Geir Eiðsson sem spilaði alla leiki liðsins í deildinni á síðustu leiktíð kemur án efa mikið við sögu í sumar en gæti spilað aðeins minna en í fyrra. Bojan Stefán Ljubicic mun einnig gera frekara tilkall til sætis í byrjunarliðinu. Ekki vegna þess að hann er sonur þjálfarans heldur vegna þess að þar er á ferð bráðefnilegur leikmaður. Keflavík Zoran Daníel Ljubicic Jóhann Birnir Guðmundsson KOMNIR: Denis Selimovic frá Interblock Ljubljana (Slóveníu) Gregor Mohar frá Radomlje (Slóveníu) Grétar Atli Grétarsson frá Haukum Jóhann Ragnar Benediktsson frá Fjarðabyggð FARNIR: Andri Steinn Birgisson í Leikni R. Árni Freyr Ásgeirss. í Reyni S. (lán) Brynjar Örn Guðmundsson, hættur Grétar Ólafur Hjartarson í Reyni S. Guðjón Árni Antoníusson í FH Magnús Þ. Matthíasson í Fylki Ómar Karl Sigurðsson, hættur Breytingar á liði Keflavíkur www.netto.is Mjódd Salavegur Hverafold Akureyri Höfn Grindavík Reykjanesbær Borgarnes Egilsstaðir Selfoss KRÆSINGAR & KOSTAKJÖR ÞAÐ ER FÓTBOLTA- SUMAR Í NETTÓ!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.