Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 21
FÓTBOLTINN 2012 21
MARKAHÆSTIR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Seinni hluta síðasta sumars benti allt
til þess að nýtt markamet yrði sett í
efstu deild. Tryggvi Guðmundsson úr
ÍBV saxaði á forskot Inga Björns Al-
bertssonar jafnt og þétt en Ingi hafði
átt markamet deildarinnar, 126
mörk, í tæpan aldarfjórðung, eða frá
1987.
Tryggvi hóf síðasta tímabil með
116 mörk og hann skoraði sitt tíunda
mark og jafnaði met Inga með marki
gegn Stjörnunni í 19. umferð. Þá voru
enn þrír leikir eftir en þeir dugðu
Tryggva ekki til að sigla framúr Inga
og skora 127. markið. Þessari öruggu
vítaskyttu brást meira að segja tví-
vegis bogalistin af vítapunktinum í
lokaleiknum, gegn Grindavík, þannig
að hann og Ingi deila áfram metinu.
Dramatíkinni í kringum Tryggva
er ekki lokið því seinnipart vetrar
fékk hann blóðtappa í fót þannig að
hann má ekki spila fótbolta fyrr en í
fyrsta lagi í júní. Í versta falli ekki
fyrr en síðla sumars. Við verðum því
að bíða og sjá til enn um sinn hvort
markametið falli á árinu 2012.
Arnar og Björgólfur
Arnar Gunnlaugsson er orðinn 8.
markahæstur í deildinni frá upphafi
með 82 mörk eftir að hafa skorað 7
mörk fyrir Fram. Hann er hinsvegar
hættur og bætir því ekki frekar við.
Björgólfur Takefusa er kominn í 10.
sætið með 80 mörk eftir að hafa gert
7 mörk fyrir Víking í fyrra. Hann er
nú kominn til liðs við Fylki og getur
því hæglega hækkað sig á listanum í
sumar.
Þessir fimmtán eru markahæstir
frá upphafi:
Ingi Björn Albertsson................ 126
Tryggvi Guðmundsson .............. 126
Guðmundur Steinsson ............... 101
Hermann Gunnarsson ................. 95
Matthías Hallgrímsson................ 94
Hörður Magnússon...................... 87
Ragnar Margeirsson.................... 83
Arnar Gunnlaugsson.................... 82
Steingrímur Jóhannesson........... 81
Björgólfur Takefusa .................... 80
Ríkharður Jónsson....................... 78
Atli Viðar Björnsson .................... 75
Guðmundur Steinarsson ............. 74
Pétur Pétursson ........................... 72
Steinar Jóhannsson...................... 72
Morgunblaðið/Kristinn
126 Tryggvi Guðmundsson fagnar eftir að hafa markamet Inga Björns Albertssonar í leik ÍBV gegn Stjörnunni.
Slær Tryggvi markametið?
Jafnaði met Inga Björns í fyrra Nýtti ekki tvær vítaspyrnur til að bæta það
31
28
25
24
23
21
21
21
n,
McShane fyrstur í 200
Tryggvi Guðmundsson er annar á
eftir Guðmundi Steinarssyni af þeim
sem spila í deildinni í ár. Einn til við-
bótar sem er á fullri ferð í sumar hefur
náð 200 leikjum en það er Paul
McShane, skoski miðjumaðurinn hjá
Grindavík. Hann hefur leikið 201 leik
og varð á síðasta ári fyrsti erlendi leik-
maðurinn til að ná 200 leikjum í efstu
deild hér á landi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
g er bæði leikja- og markahæsti leikmaður
nú skipa liðin tólf í deildinni.