Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 24
24 FÓTBOLTINN 2012
GRINDAVÍK
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Grindvíkingar fóru til Vestmanna-
eyja í lokaumferðinni síðasta haust,
sóttu þangað sigur, og björguðu sér
þannig frá falli úr Pepsí-deildinni.
Liðið hefur ekki bætt við sig mörg-
um leikmönnum en sigursælasti
þjálfarinn í íslenskri knattspyrnu,
Guðjón Þórðarson, er tekinn við lið-
inu. Ólafur Örn Bjarnason hafði áð-
ur látið af störfum og mun fyrir vik-
ið einbeita sér að því að spila.
Grindvíkingar hafa orðið tölu-
verða reynslu af því að vera í efstu
deild en þar lék liðið í fyrsta skiptið
sumarið 1995. Grindvíkingar hafa
tvívegis náð þriðja sæti í deildinni
en sjaldnast hafa þeir verið í efri
hluta deildarinnar. Það liggur því
kannski beinast við að spyrja Guð-
jón að því hvort Grindavík geti tekið
næsta skref á komandi árum og
blandað sér í hóp betri liða deild-
arinnar?
Stíga þarf fastar til jarðar
„Það er hlutur sem við þurfum
náttúrlega að gera. Við þurfum að
stíga fastar til jarðar í allri vinnunni
í kringum félagið og við allt sem
gert er. Það eru margir jákvæðir og
góðir hlutir í Grindavík en það þarf
samt að bæta ýmislegt. Það þarf
markviss vinnubrögð og það þarf að
vera faglega að því staðið. Það má
ekki vera að sveiflast með persónu-
legar tilfinningar í því heldur þarf
að vera faglegur rammi sem er lát-
inn ráða,“ sagði Guðjón þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í að-
draganda mótsins.
Spurður um hvað hann hafi lagt
mesta áherslu á í vetur nefndi Guð-
jón hugarfar og líkamlegt ástand
leikmanna. „Að reyna að breyta
hugarfarinu og koma mönnum í
betra form. Ég hef reynt að gera
mönnum grein fyrir vinnuseminni
og aganum sem því fylgir að breyta
hugarfarinu. Það skiptir geysilega
miklu máli að vera agaður í efstu
deild því hún er það erfið að menn
þurfa að gá að sér allar rúmlega 90
mínúturnar í hverjum einasta leik.“
Sóknarmennirnir tæpir
Guðjón segist miða við að tuttugu
frambærilega leikmenn þurfi í leik-
mannahóp í efstu deild. Meiðsli
sóknarmanna hafa valdið honum
áhyggjum að undanförnu. „Alexand-
er Magnússon þurfti að fara í spegl-
un og það er svolítið kjaftshögg að
fá á lokaundirbúningnum. Tomi
Ameobi og Pape Mamadou Faye
hafa báðir átt í meiðslum sem veld-
ur mér smááhyggjum,“ sagði Guð-
jón en hann útilokar ekki að safna
frekara liði. Hann fékk til sín tvo
leikmenn á dögunum.
„Gavin Morrison er blint stefnu-
mót en Jordan var hjá okkur í
nokkra daga og ég ákvað að taka
hann. Það er strákur sem getur spil-
að fleiri en eina stöðu og breikkar
hópinn hjá okkur. Það veitir ekki af
þar sem nauðsynlegt reyndist að
skoða hnéð á Alexander. Við höfum
skoðað leikmenn í vetur og sent
menn til baka. Það er alltaf vand-
meðfarið að sækja liðsstyrk en það
þarf að hafa sterkan tuttugu manna
kjarna til að fara í jafn erfiða deild
og Pepsí-deildin er. Það er viðmiðið
eins og ég les í stöðuna,“ sagði Guð-
jón og segist jafnframt hafa komið
auga á unga leikmenn í Grindavík.
„Það er til að mynda ungur strákur
sem er nýr í hópnum hjá mér sem
er 16 ára. Auk þess eru tveir til þrír
strákar í 2. flokki sem eru spenn-
andi. Þeir eru þar undir öruggri
handleiðslu Milans Jankovic,“ sagði
Guðjón Þórðarson.
Markviss
vinnubrögð
Ljósmynd/Víkurfréttir
Töframaður Scott Ramsay þykir einstaklega flinkur með boltann og hefur
lengi verið í stóru hlutverki í sóknarleik Grindavíkurliðsins.
Leikmenn
árið 2012
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
* var í láni
1 Óskar Pétursson 1989 57 0 0
12 Ægir Þorsteinsson 1992 0 0 0
Markverðir
2 Loic Mbang Ondo 1990 17 0 0 *BÍ/Bolungarv.‘12
3 Ray Anthony Jónsson 1979 161 5 24 *Völsungi ‘00
5 Bogi Rafn Einarsson 1988 43 1 0 *Njarðvík ‘11
18 Ólafur Örn Bjarnason 1975 154 18 27 Brann ‘10
20 Guðmundur Egill Bergsteins. 1992 8 0 0
21 Steven Old 1986 0 0 17 Basingstoke ‘12
22 Marko V. Stefánsson 1990 17 0 0 *Oscarshamn ‘12
23 Jósef K. Jósefsson 1989 70 3 0 Chernomorets ‘11
30 Björn Berg Bryde 1992 0 0 0 FH’12
Varnarmenn
4 Paul McShane 1978 201 25 0 Keflavík ‘11
7 Alex Freyr Hilmarsson 1993 0 0 0 Sindra ‘12
8 Páll Guðmundsson 1986 28 3 0 *Reyni S. ‘09
9 Matthías Örn Friðriksson 1986 30 1 0 Þór ‘10
10 Scott Ramsay 1975 177 26 0 Víði ‘07
15 Gavin Morrison 1990 0 0 0 Inverness ‘12
19 Óli Baldur Bjarnason 1989 58 6 0
24 Daníel Leó Grétarsson 1995 0 0 0
25 Alexander Magnússon 1989 32 1 0 Njarðvík ‘10
27 Hafþór Ægir Vilhjálmsson 1986 91 12 0 Val ‘10
29 Jordan Edridge 1990 0 0 0 New Mills ‘12
Miðjumenn
6 Pape Mamadou Faye 1991 38 5 0 Leikni R. ‘12
11 Tomi Ameobi 1988 0 0 0 BÍ/Bolungarv.‘12
17 Magnús Björgvinsson 1987 45 11 0 Haukum ‘11
Sóknarmenn
Agi og vinnusemi hjá Guðjóni
Reynir að breyta hugarfarinu
Guðjón Þórð-
arson snýr nú
aftur í efstu deild
en hann lét af
störfum hjá ÍA á
miðju sumri 2008.
Í fyrra fór hann
vestur á firði og
var næstum bú-
inn að koma Vest-
firðingum í bik-
arúrslit. Guðjón
hefur langa reynslu eins og flestir
knattspyrnuáhugamenn vita. Hann
hefur gert bæði KA og ÍA að Ís-
landsmeisturum og vann auk þess
bikarinn með KR. Hann var ráðinn
til Grindavíkur síðasta haust.
Óskar Pétursson ver mark
Grindavíkur og stóð sig með prýði
síðasta sumar. Mikilvægt er fyrir
Grindavíkurliðið að honum takist vel
upp. Óskar er 23 ára en hefur orðið
nokkra reynslu.
Ólafur Örn Bjarnason er vita-
skuld í lykilhlutverki í hjarta varn-
arinnar. Heimamaður sem er öllum
hnútum kunnugur hjá félaginu og
með mikla reynslu. Loic Ondo verð-
ur sjálfsagt einnig í miðverðinum, en
Guðjón þjálfaði hann fyrir vestan í
fyrra. Ef að líkum lætur mun
Grindavík annaðhvort spila 3-5-2 eða
4-3-3. Ef liðið
spilar með þrjá
miðverði þá er
spurning hver
verður sá þriðji.
Steven Old frá
Nýja-Sjálandi
gæti bæst í hóp-
inn og þá er
Marko Valdimar
Stefánsson er
einnig kominn
aftur til félagsins.
Í gegnum tíðina hafa þeir Ray Ant-
hony Jónsson og Jósef K. Jósefsson
verið bakverðir í Grindavík.
Alexander Magnússon spilaði
talsvert í bakverðinum í fyrra en
verður nú í nýju hlutverki sem varn-
artengiliður. Paul McShane er
vinnusamur og verður væntanlega
einnig á miðjunni. Nýi Skotinn Ga-
vin Morrison spilar væntanlega á
miðjunni og eins voru horfur á að
Englendingurinn Jordan Edridge
myndi bætast í hópinn. Þá er ótalinn
snillingurinn Scott Ramsay sem get-
ur verið inni á miðjunni eða á kant-
inum og mætir til leiks í hörkuformi
þetta sumarið. Auk þess er Hafþór
Ægir Vilhjálmsson farinn að beita
sér á ný og gæti komið við sögu í
sumar.
Ef Guðjón leikur 3-5-2 þá mun
hann líklega tefla fram Tomi
Ameobi og Pape Mamadou Faye
saman í framlínunni en þeir eru báð-
ir nýir hjá félaginu. Magnús Björg-
vinsson hefur mikinn hraða og
reyndist liðinu ágætlega á síðustu
leiktíð. Þá getur Óli Baldur Bjarna-
son einnig spilað frammi eða úti á
vinstri kantinum.
Grindavík
Guðjón
Þórðarson
Ólafur Örn
Bjarnason
KOMNIR:
Alex Freyr Hilmarsson frá Sindra
Björn Berg Bryde frá FH
Gavin Morrison frá Inverness
(Skotlandi)
Hafþór Ægir Vilhjálmsson,
var meiddur 2011
Loic Mbang Ondo frá BÍ/-
Bolungarvík (úr láni)
Marko Valdimar Stefánsson frá
Oscarshamn (Sví) (úr láni)
Pape Mamadou Faye frá Leikni R
Tomi Ameobi frá BÍ/Bolungarvík
FARNIR:
Elías Fannar Stefnisson í KFS
Guðmundur A. Bjarnason, hættur
Jamie McCunnie í Stirling Albion
(Skotlandi)
Jóhann Helgason í KA
Michal Pospísil til Tékklands
Orri Freyr Hjaltalín í Þór
Breytingar á liði Grindavíkur
Hvetjum Grindvíkinga
að mæta á völlinn
og styðja sína menn
...áfram Grindavík