Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 25
FÓTBOLTINN 2012 25 MEISTARAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KR-ingar bættu á síðasta ári sínum 25. meistaratitli í safnið en þeir hafa sem fyrr orðið Íslandsmeistarar karla oftast allra í sögu Íslands- mótsins í knattspyrnu, frá 1912. KR-ingar biðu í níu ár eftir þess- um titli en þann 24. í röðinni unnu þeir árið 2003. KR hefur nú unnið nákvæmlega fjórðung, eða 25 prósent, þeirra titla sem í boði hafa verið í 100 ára sögu Íslandsmótsins, frá 1912 til 2011. Valsmenn koma næstir með 20 prósent titlanna, ÍA og Fram með 18 prósent, en sex félög skipta 19 prósentum á milli sín. Reykjavíkurfélögin KR, Valur, Fram og Víkingur einokuðu Ís- landsmeistaratitilinn fyrri hluta síð- ustu aldar, eða til ársins 1950 þegar KR vann hann þriðja skiptið í röð. KR varð fyrsti Íslandsmeistarinn árið 1912 þegar Vesturbæingar sigruðu Fram í úrslitaleik á Mela- vellinum en Eyjamenn voru þriðja liðið sem tók þátt í þessu fyrsta Ís- landsmóti. KR vann sinn 20. titil ár- ið 1968 en þurfti síðan að bíða í hvorki meira né minna en 31 ár eftir þeim 21. Fram varð meistari næstu sex ár í röð, reyndar án keppni fyrstu tvö árin vegna ósættis félaganna. Um miðja síðustu öld voru Fram og KR jöfn með 13 meistaratitla hvort fé- lag. Framarar komu aftur upp með blómaskeið frá 1986 til 1990 þegar þeir urðu þrisvar meistarar. Víkingur varð þriðja félagið til að verða meistari árið 1920, og vann aftur 1924, en varð að bíða til 1981 eftir þriðja titlinum af þeim fimm sem félagið hefur unnið. Valur með ellefu titla á sextán árum Valsmenn komust loks fram úr hinum Reykjavíkurliðunum árið 1930. Þá upphófst mikil sigurganga því Valur varð 11 sinnum meistari á sextán árum og innbyrti þá meiri- hluta titlanna sem félagið hefur unnið til þessa. Söguleg umskipti urðu árið 1951 þegar Akurnesingar, undir stjórn Ríkharðs Jónssonar, fóru með Ís- landsbikarinn út fyrir borgarmörkin í fyrsta skipti. Þeir voru komnir til að vera því ÍA varð meistari sex sinnum næstu tíu árin og er það fé- lag sem hefur oftast orðið Íslands- meistari frá 1951, eða 18 sinnum. Keflvíkingar voru næstir en þeir unnu sinn fyrsta titil árið 1964. Þeirra blómatími stóð í tíu ár og skilaði fjórum meistaratitlum en Keflavík hefur ekki náð að sigra síð- an 1973. Sjöunda meistaraliðið í sögunni varð ÍBV en Eyjamenn lönduðu sín- um fyrsta titli árið 1979. Þeir bættu tveimur við rétt fyrir aldamótin. KA varð áttunda félagið til að verða Íslandsmeistari. KA-menn komu öllum á óvart, með Guðjón Þórðarson við stjórnvölinn, árið 1989 og stóðu uppi sem meistarar eftir mikla dramatík í lokaumferð- inni. FH missti þar af titlinum sem blasti við þeim en þó fimmtán ár liðu þar til hann komst loks í hús í Kaplakrikanum varð FH níunda fé- lagið til að verða meistari. Sig- urganga FH hófst árið 2004 og liðið vann fimm meistaratitla á sex árum. Breiðablik varð síðan tíundi Ís- landsmeistarinn árið 2010 en Ís- landsbikarinn fór þá í Kópavog í fyrsta sinn eftir æsispennandi bar- áttu við ÍBV og FH. KR-ingar hafa unnið fjórð- ung titlanna  Reykjavík einokaði mótið til 1950  Skagamenn sigursælastir frá 1951  Tíu félög orðið Íslandsmeistarar Íslandsmeistarar karla Skipti Lið Ár 25 KR 1912, 1919, 1926, 1927, 1928, 1929, 1931, 1932, 1934, 1941, 1948, 1949, 1950, 1952, 1955, 1959, 1961, 1963, 1965, 1968, 1999, 2000, 2002, 2003, 2011. 20 Valur 1930, 1933, 1935, 1936, 1937, 1938, 1940, 1942, 1943, 1944, 1945, 1956, 1966, 1967, 1976, 1978, 1980, 1985, 1987, 2007. 18 ÍA 1951, 1953, 1954, 1957, 1958, 1960, 1970, 1974, 1975, 1977, 1983, 1984, 1992, 1993, 1994, 1995, 1996, 2001. 18 Fram 1913, 1914, 1915, 1916, 1917, 1918, 1921, 1922, 1923, 1925, 1939, 1946, 1947, 1962, 1972, 1986, 1988, 1990. 5 FH 2004, 2005, 2006, 2008, 2009. 5 Víkingur R. 1920, 1924, 1981, 1982, 1991. 4 Keflavík 1964, 1969, 1971, 1973. 3 ÍBV 1979, 1997, 1998. 1 KA 1989. 1 Breiðablik 2010. KR 2011 Úrvalsdeild karla, Pepsi-deild: 1. KR 22 13 8 1 44:22 47 2. FH 22 13 5 4 48:31 44 3. ÍBV 22 12 4 6 37:27 40 4. Stjarnan 22 10 7 5 51:35 37 5. Valur 22 10 6 6 28:23 36 6. Breiðabik 22 7 6 9 34:42 27 7. Fylkir 22 7 4 11 34:44 25 8. Keflavík 22 7 3 12 27:32 24 9. Fram 22 6 6 10 20:28 24 10. Grindavík 22 5 8 9 26:37 23 –––––––––––––––––––––––––––––––––––– 11. Þór 22 6 3 13 28:41 21 12. Víkingur R. 22 3 6 13 24:39 15 1. deild karla: 1. ÍA 22 16 3 3 53:17 51 2. Selfoss 22 15 2 5 44:22 47 –––––––––––––––––––––––––––––––––––– 3. Haukar 22 10 6 6 33:23 36 4. Víkingur Ó. 22 10 4 8 35:26 34 5. Fjölnir 22 8 8 6 34:38 32 6. BÍ/Bolung. 22 9 4 9 27:37 31 7. Þróttur R. 22 9 3 10 34:45 30 8. KA 22 9 2 11 32:40 29 9. ÍR 22 6 4 12 27:42 22 10. Leiknir R. 22 5 5 12 31:32 20 –––––––––––––––––––––––––––––––––––– 11. Grótta 22 4 8 10 16:29 20 12. HK 22 3 7 12 23:38 16 2. deild karla: 1. Tindast/Hvöt 22 13 3 6 49:36 42 2. Höttur 22 12 5 5 48:31 41 –––––––––––––––––––––––––––––––––––– 3. Njarðvík 22 11 6 5 63:44 39 4. Afturelding 22 12 3 7 48:32 39 5. Dalvík/Reynir 22 12 2 8 50:51 38 6. KF 22 9 7 6 48:35 34 7. Fjarðabyggð 22 10 4 8 33:36 34 8. Reynir S. 22 10 2 10 61:57 32 9. Hamar 22 9 3 10 40:41 30 10. Völsungur 22 8 2 12 54:56 26 –––––––––––––––––––––––––––––––––––– 11. Árborg 22 2 5 15 20:54 11 12. ÍH 22 2 2 18 30:71 8  Tindastóll leikur í 1. deild 2012 í stað Tindastóls/Hvatar.  KV og KFR taka sæti Árborgar og ÍH í 2. deildinni 2012. Lokastaðan á Ís- landsmótinu 2011 Knattspyrnusamband íslands hvetur knattspyrnuáhugafólk til að mæta á völlinn, styðja sitt félag og njóta sumarsins knattspyrnusumarið 2012 er hafið!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.