Morgunblaðið - 04.05.2012, Page 26

Morgunblaðið - 04.05.2012, Page 26
26 FÓTBOLTINN 2012 ÍA Kristján Jónsson kris@mbl.is Skagamönnum tókst að endurheimta sæti sitt í efstu deild síðasta sumar en liðið eyddi þremur árum í 1. deildinni að þessu sinni. Er það allt of langur tími fyrir eitt af sigursælustu liðum Ís- lands að mati margra knattspyrnu- áhugamanna. ÍA mætir til leiks með mjög áhugavert lið sem gæti hæglega blandað sér í baráttuna um titilinn ef lykilmenn ná sér á strik. Í liðinu eru ungir og upprennandi leikmenn, öfl- ugir útlendingar og reyndir íslenskir leikmenn sem eru að koma heim úr at- vinnumennsku. Einn þeirra er Hornfirðingurinn Ármann Smári Björnsson sem leysir Reyni Leósson af hólmi í hjarta varn- arinnar. Ármann þekkir vel til á Skag- anum en þaðan er tengdafjölskylda hans og hann veit því út á hvað lífið gengur á Akranesi. „Jú jú, ég hef oft verið að sniglast hérna og ég æfði með liðinu þegar ég var í fríi frá Bretlandi. Ég vissi að hverju ég gekk varðandi félagið og spilaði auk þess með Þórði þjálfara hjá Val á sínum tíma. Þar af leiðandi þekkti ég hann og það er örugglega bara kostur. Hann og Dean Martin hafa séð til þess í vetur að menn séu á tánum,“ sagði Ármann þegar Morgunblaðið tók púlsinn á honum á dögunum. Stemningin að aukast Ármann getur ekki neitað því að stemningin í bænum er að aukast eftir því sem líður á vorið. „Maður finnur það nú alveg að fólk er farið að spá í deildina í sumar. Fólk er farið að spyrja hvort menn séu ekki klárir í slaginn og maður finnur það í bænum að þetta er allt að fara í gang. Ég held að það sé alveg pottþétt að Skaga- menn eigi eftir að flykkjast á völlinn og styðja sitt lið. Búa til smá- heimagryfju aftur og vera í efstu deild, þar sem allir vilja vera,“ sagði Ármann um stemninguna í fótboltabænum. Fóru snemma út á gras Nýliðar í efstu deild eiga oft erfitt uppdráttar og þó þekkt nöfn séu í Skagaliðinu þá stíga þeir engu að síð- ur varlega til jarðar svona fyrirfram. „Við erum nýliðar og verðum bara að taka því eins og menn og vera klárir fyrir sumarið. Spennustigið er farið að magnast aðeins hjá mönnum og mað- ur sér það á æfingum. Við erum auk þess byrjaðir að æfa á grasi og þá vita menn að mótið er að bresta á. Þetta verður vonandi skemmtilegt sumar og við förum í alla leiki til að vinna. Þann- ig er það nú með Skagamenn að þeir gefast ekkert upp. Við höfum ekki sett okkur önnur markmið en þau að halda sæti okkar í deildinni. Við byrjum alla vega á því eins og nýliðar gera alltaf en það er hörkureynsla í hópnum sem á vonandi eftir að nýtast okkur vel,“ sagði Ármann sem hefur verið á Skag- anum síðan fyrir áramót en hann hætti hjá Hartlepool í Englandi í maí 2011. Ekkert lið mun stinga af Hann hefur því séð liðin spila í vetur og á von á að deildin verði býsna jöfn. „Ég gæti alveg trúað því að þetta verði jöfn og spennandi deild. Mörg lið hafa misst eitthvað af leikmönnum og hafa ekki fengið sömu gæði til baka en eiga kannski eftir að gera það. Svö eru önnur lið sem hafa styrkt sig eins og til dæmis við og Selfoss sem eru að koma upp um deild. Ég held ekki að einhverju liði takist að stinga af því all- ir virðast geta unnið alla í þessari deild,“ sagði Ármann Smári Björns- son í samtali við Morgunblaðið en hann hefur áður leikið með bæði Val og FH í efstu deild auk þess að verða Noregsmeistari með Brann. Áhugavert lið á Skaganum Morgunblaðið/Eggert Leikmenn árið 2012 Efsta deild Lands- Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá * var í láni 1 Páll Gísli Jónsson 1983 29 0 0 Breiðabliki ‘05 12 Árni Snær Ólafsson 1991 0 0 0 30 Gísli Þór Gíslason 1993 0 0 0 Markverðir 2 Aron Ýmir Pétursson 1990 11 0 0 4 Kári Ársælsson 1985 70 5 0 Breiðablik ‘12 5 Heimir Einarsson 1987 53 1 1 6 Ármann Smári Björnsson 1981 67 14 6 Hartlepool ‘12 13 Sigurjón Guðmundsson 1992 0 0 0 15 Guðmundur B. Guðjónsson 1989 21 1 0 17 Hlynur Hauksson 1988 1 0 0 23 Einar Logi Einarsson 1991 0 0 0 24 Andri Geir Alexandersson 1990 0 0 0 27 Gylfi Veigar Gylfason 1993 0 0 0 28 Teitur Pétursson 1993 0 0 0 Varnarmenn 8 Jóhannes Karl Guðjónsson 1980 8 1 34 Huddersfield ‘12 10 Jón Vilhelm Ákason 1986 103 14 0 Val ‘12 11 Arnar Már Guðjónsson 1987 7 0 0 KA ‘10 18 Hallur Flosason 1993 0 0 0 22 Mark Doninger 1989 0 0 0 Newcastle ‘11 29 Jón Björgvin Kristjánsson 1992 0 0 0 Miðjumenn 7 Gary John Martin 1990 0 0 0 Middlesbrough‘10 9 Garðar B. Gunnlaugsson 1983 64 19 0 Unterhaching ‘12 14 Ólafur V. Valdimarsson 1990 0 0 0 16 Andri Adolphsson 1992 0 0 0 19 Eggert Kári Karlsson 1991 0 0 0 20 Fjalar Örn Sigurðsson 1994 0 0 0 21 Dean E. Martin 1972 86 7 0 KA ‘11 26 Atli Albertsson 1994 0 0 0 Sóknarmenn  Ármann Smári segir fyrsta mark- miðið að halda sætinu í deildinni Stemning Páll Gísli Jónsson markvörður, Mark Doninger og aldursforset- inn Dean Martin fagna sigri Skagamanna í 1. deildinni síðasta sumar. Þórður Þórðarson er þjálfari Skaga- manna en knattspyrnuunnendur muna væntanlega eftir honum á milli stanganna í liði ÍA á árum áður. Þórður er fer- tugur og tók við liðinu í 1. deild- inni á miðju sumri 2009. Þórður hefur Dean Martin sér til aðstoðar en Martin leikur jafnframt með liðinu. Páll Gísli Jónsson er markvörður og hefur reynslu úr efstu deild en meiðsli lituðu svolítið hans feril um tíma. ÍA teflir fram nýjum miðvörðum í sumar en það eru þeir Ármann Smári Björnsson og Kári Ársælsson fráfarandi fyrirliði Breiðabliks. Óljóst er hvort Heimir Einarsson geti beitt sér en hann hef- ur verið fyrirliði ÍA undanfarin ár. Heimir glímir við bakmeiðsli og hef- ur gert í nokkur ár en hann er einnig sterkur miðvörður. Síðast þegar Skagamenn voru í efstu deild voru hann og Árni Thor Guðmundsson miðverðir en báðir hafa farið illa út úr meiðslum. Guðmundur Böðvar Guðjónsson og Aron Ýmir Pét- ursson munu væntanlega berj- ast um hægri bakvarðastöðuna og vinstra megin hefur Einar Logi Einarsson, bróðir Heimis, leikið. Akurnesingar eru með gríð- arlega öfluga miðjumenn og fá lið verða sterkari á miðsvæðinu en nýliðarnir. Mark Doninger lék vel í 1. deildinni í fyrra og Jóhannes Karl Guðjónsson og Jón Vilhelm Ákason eru báðir komn- ir heim. Jóhannes ætti að geta verið einn allra besti leikmaður deild- arinnar með baráttugleði sinni og spyrnutækni. Auk þess eiga Skaga- menn Arnar Má Guðjónsson sem er vaxandi leikmaður. Á vinstri kant- inum verður væntanlega ungur leik- maður Andri Adolphsson en Ólafur Valur Valdimarsson er einnig kant- maður. Dean Martin getur hvort heldur verið hægri kantmaður eða hægri bakvörður. Margir bíða spenntir eftir því að sjá Gary Martin í efstu deild en hann hefur leikið mjög vel í 1. deildinni síð- ustu tvö sumur. Hann gæti verið á hægri kantinum en þegar liðið mun tefla fram tveimur framherjum þá verður hann væntanlega frammi með Garðari Gunnlaugssyni sem kom heim á Skagann í vetur. Þeir ættu ekki að vera í vandræðum með að skapa usla í vörn andstæðinganna auk þess sem Jón Vilhelm getur leik- ið í sókninni eins og hann gerði stundum á Hlíðarenda. Akranes Þórður Þórðarson Gary Martin KOMNIR: Ármann Smári Björnsson frá Hartlepool (Englandi) Garðar B. Gunnlaugsson frá Unterhaching (Þýskalandi) Jóhannes Karl Guðjónsson frá Huddersfield (Englandi) Jón Vilhelm Ákason frá Val Kári Ársælsson frá Breiðabliki FARNIR: Fannar Freyr Gíslason í Tindastól (lán) Guðjón H. Sveinsson, hættur Hjörtur J. Hjartarson í Víking R. Ragnar Leósson í ÍBV Reynir Leósson í Víking R. Zlatko Krickic, óvíst Breytingar á liði ÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.