Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 27

Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 27
FÓTBOLTINN 2012 27 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Alls hafa 27 félög leikið í efstu deild karla frá upphafi Íslands- mótsins, árið 1912. Þeim fjölgar ekki í ár því báðir nýliðarnir, ÍA og Selfoss, koma á ný í deildina. Skagamenn léku þar síðast 2008 og eru þriðja stigahæsta félag deildarinnar frá upphafi en Sel- fyssingar léku í fyrsta skipti á meðal þeirra bestu árið 2010 og féllu þá aftur í 1. deild. KR-ingar eru bæði leikja- og stigahæstir frá upphafi og þeir verða nú í maímánuði fyrsta félag- ið sem leikur 1.000 leiki í efstu deild. Þeim áfanga ná þeir þegar þeir sækja Valsmenn heim á Hlíð- arenda í 4. umferðinni 20. maí en Valur er einmitt með bæði næst- flesta leiki og næstflest stig frá upphafi. FH spilar 500. leikinn Sama dag, 20. maí, nær FH þeim áfanga að spila sinn 500. leik í efstu deild, en þá fær Hafn- arfjarðarliðið Breiðablik í heim- sókn í Kaplakrikann. FH verður sjöunda félagið frá upphafi til að ná 500 leikjum í deildinni. Eftirtalin 27 félög hafa leikið á Íslandsmótinu 1912-1954 og í efstu deild frá 1955 en það ár var mótinu í fyrsta skipti skipt í tvær deildir. Leikjafjöldi þeirra og stig fylgja. Þess ber að geta að stigin eru reiknuð samkvæmt 3 stigum fyrir sigur, en sú regla var tekin upp hér á landi árið 1984. Fram að því voru gefin 2 stig fyrir sigur. Leikir Stig 1. KR 996 1615 2. Valur 955 1530 3. ÍA 822 1424 4. Fram 951 1364 5. Keflavík 757 1048 6. ÍBV 649 943 7. FH 496 758 8. Víkingur R. 563 611 9. Breiðablik 470 565 10. Fylkir 286 396 11. Grindavík 304 367 12. Þór 274 314 13. KA 255 287 14. Þróttur R. 265 227 15. ÍBA 177 194 16. Stjarnan 174 190 17. Leiftur 126 159 18. Víðir 72 61 19. Fjölnir 44 46 20. ÍBÍ 46 39 21. HK 40 34 22. Völsungur 36 26 23. Haukar 40 26 24. ÍR 18 17 25. Selfoss 22 17 26. Skallagrímur 18 15 27. ÍBH 21 7  ÍBA var sameiginlegt lið Þórs og KA á Akureyri.  ÍBÍ var lið Ísfirðinga.  ÍBH var sameiginlegt lið FH og Hauka í Hafnarfirði . KR spilar 1.000. leikinn í 4. umferð KR-ingar unnu deildabikar KSÍ í fimmta skipti í vor þegar þeir lögðu Framara að velli, 1:0, í úr- slitaleik í Kórnum laugardaginn 28. apríl. Þorsteinn Már Ragn- arsson, sem kom til Vesturbæinga frá Víkingi í Ólafsvík í vetur, skor- aði sigurmarkið og stöðvaði með því sigurgöngu Framara sem höfðu ekki tapað mótsleik á þessu ári. Fram átti þarna möguleika á að vinna deildabikarinn í fyrsta skipti en þarf að bíða enn um sinn eftir því að fá nafn sitt letrað á þann verðlaunagrip. KR og FH hafa nú unnið deilda- bikarinn oftast, eða 5 sinnum hvort félag, en keppnin fór fram í 17. skipti í ár og hét Lengjubikarinn, eins og mörg undanfarin ár. Skaga- menn hafa unnið þrisvar og Vals- menn tvisvar en ÍBV og Grindavík hafa sigrað einu sinni hvort félag. KR hefur aldrei náð að fylgja eft- ir sigri í deildabikarnum með því að verða Íslandsmeistari. Síðast þegar KR vann keppnina, vorið 2010, end- aði liðið í fjórða sæti á Íslands- mótinu. Reyndar er FH eina félagið frá 1998 sem hefur tekist að vinna bæði deildabikarinn og Íslandsmeist- aratitilinn sama árið en það hefur Hafnfirðingunum lánast í þrígang. vs@mbl.is Fimmti sigur KR-inga  FH og KR sigursælust í deildabikarnum frá upphafi Morgunblaðið/Kristinn Bikar Bjarni Guðjónsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Gunnar Þór Gunn- arsson með sigurlaunin eftir að KR lagði Fram í úrslitaleiknum í Kórnum. ÍS L E N SK A S IA .IS M S A 58 69 9 04 /1 2 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN HLEðSLA ER KJÖRIN FYRIR ALLA ÞÁ SEM TREYSTA Á HOLLA OG UPPBYGGILEGA NÆRINGU EFTIR GÓðA ÆFINGU, LANGT HLAUP EðA MILLI MÁLA. ÞAð ER ENGIN TILVILJUN Að HLEðSLA ER EINN VINSÆLASTI PRÓTEINDRYKKUR Á ÍSLANDI. HENTAR VEL FÓLKI MEð MJÓLKURSYKURSÓÞOL. MJÓLKURSAMSALAN WWW.MS.IS PRÓTEINDRYKKURINN SEM ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF NÚ EINNIG MEÐ BRÓMBERJABRAGÐI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.