Morgunblaðið - 04.05.2012, Síða 28
28 FÓTBOLTINN 2012
SELFOSS
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hinn þrautreyndi þjálfari, Logi
Ólafsson, er mættur aftur í efstu
deild og nú með Selfyssingum. Logi
hefur marga fjöruna sopið og hefur
unnið titla með fjórum félögum bæði
í karla- og kvennaflokki. Logi segir
að Selfyssingar ætli að reyna að festa
sig í sessi í efstu deild eins og nýliða
sé háttur en Selfoss féll úr deildinni á
fyrsta tímabili árið 2010.
Uppgangur Selfyssinga hefur ver-
ið mikill á undanförnum árum en
haustið 2007 komust þeir loks upp úr
2. deild eftir þrettán ára dvöl þar.
Þeir fóru beint í toppslag 1. deildar
og unnu sig upp í efstu deild í fyrsta
skipti haustið 2009 þegar þeir stóðu
uppi sem meistarar í 1. deildinni.
„Okkar markmið eru þau að
tryggja okkur sæti í þessari deild
eins og yfirleitt er með alla nýliða.
Við teljum okkur vera með mann-
skap til þess að ná því. Við erum með
Selfyssinga sem tóku þátt í þessu æv-
intýri 2009 og 2010 og koma reynsl-
unni ríkari til baka. Fyrir utan það
höfum við styrkt liðið en við höfum að
vísu misst menn eins og Sævar, Ari-
líus, Einar Ottó og Ingþór. Þetta eru
menn sem hafa spilað hérna í gegn-
um tíðina og búa yfir mikilli reynslu.
Við þurftum því að fá okkur nýja
menn og liðið er því töluvert breytt
frá árinu 2009 og ennþá meira frá
árinu 2010,“ sagði Logi þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann skömmu fyr-
ir Íslandsmótið.
Óttast ekkert
Þó breytingarnar á milli ára séu
töluverðar þá óttast Logi ekki að það
muni taka tíma að slípa liðið til. „Nei,
ég óttast í sjálfu sér ekki neitt. Við
fylgjum gömlum gildum og venjum í
þessu og einbeitum okkur að næsta
verkefni sem framundan er. Við lát-
um vaða í hverju tilviki fyrir sig og
reynum að gera okkar allra ítrasta til
að vinna hvern leik fyrir sig. Við
sjáum svo til hvernig þetta endar í
haust,“ sagði Logi en undir hans
stjórn vann Selfoss sig upp úr sterkri
1. deild í fyrra með sannfærandi
hætti.
„Þrátt fyrir að missa menn þá voru
aðrir menn utan við liðið sem koma
inn í þetta núna sem betur fer. Við
fáum auk þess menn með reynslu úr
efstu deild eins og Tómas Leifsson og
Ólaf Karl Finsen fyrir utan útlend-
ingana sem hafa ágætis reynslu líka.
Menn eru ekki alveg óvanir keppni
þegar þeir koma upp í efstu deild.“
Tók tíma að smala
Leikmannahópur Selfoss hefur
smám saman verið að taka á sig
mynd á síðustu vikum og spila-
mennska liðsins í undirbúningsmót-
unum gefur því líklega ekki mikla
vísbendingu um hvernig liðið verður í
sumar.
„Undirbúningurinn hefur gengið
nokkuð vel að því undanskildu að það
gekk svolítið brösuglega að safna
saman þeim mönnum sem við ætlum
að hafa í okkar hópi. Þeir hafa verið
að koma á síðustu vikum og við höf-
um ekki algerlega náð að stilla saman
okkar strengi en það kemur. Að öðru
leyti komum við mjög vel undirbúnir
til leiks,“ sagði Logi Ólafsson sem
vafalaust mun setja svip sinn á knatt-
spyrnusumarið.
Selfyssingar hafa fengið tals-
verðan liðsauka erlendis frá í vetur
en í hópinn hafa bæst þrír leikmenn
frá Noregi og tveir frá Senegal. Þeir
verða með stærstan hóp erlendra
leikmanna af öllum liðum í deildinni á
komandi keppnistímabili.
Mikið breytt
lið frá 2010
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Efnilegur Jón Daði Böðvarsson er tæplega tvítugur en hefur verið drjúgur í
sóknarleik Selfyssinga undanfarin tvö ár og leikur með 21-árs landsliðinu.
Leikmenn
árið 2012
Efsta deild Lands-
Nr. Nafn Fæddur Leikir/mörk leikir Kom frá
1 Istmet Duracak 1985 0 0 0 Hönefoss ‘12
12 Jóhann Ólafur Sigurðsson 1986 25 0 0 Fylki ‘09
16 Gunnar Már Hallgrímsson 1994 0 0 0
Markverðir
2 Sigurður E. Guðlaugsson 1990 10 0 0
4 Agnar Bragi Magnússon 1987 21 1 0 Fylki ‘07
5 Kjartan Sigurðsson 1989 3 1 0 Hamri ‘10
6 Andri Freyr Björnsson 1986 18 0 0
20 Robert Johann Sandnes 1991 0 0 0 Aalesund ‘12
21 Stefán R. Guðlaugsson 1991 18 1 0
22 Ivar Skjerve 1991 0 0 0 Rosenborg ‘11
30 Endre Ove Brenne 1988 0 0 0 Lillehammer ‘11
Varnarmenn
7 Jón Daði Böðvarsson 1992 21 3 0
8 Babacar Sarr 1991 0 0 0 Ndar Gunedj ‘11
10 Ingólfur Þórarinsson 1986 14 1 0 Víkingi R. ‘11
13 Þorsteinn D. Þorsteinsson 1994 0 0 0 *Árborg ‘12
17 Joe Tillen 1986 55 8 0 Fram ‘11
18 Svavar Berg Jóhannsson 1995 0 0 0 Ægi ‘11
19 Ingvi Rafn Óskarsson 1993 0 0 0 *Árborg ‘12
23 Ingi Rafn Ingibergsson 1983 31 2 0 ÍBV ‘10
24 Tómas Leifsson 1985 66 7 0 Fram ‘12
27 Jon Andre Royrane 1983 0 0 0 Kristiansund ‘12
Miðjumenn
9 Viðar Örn Kjartansson 1990 29 5 0 ÍBV ‘10
11 Ólafur Karl Finsen 1992 20 4 0 Stjörnunni ‘12
14 Moustapha Cissé 1991 0 0 0 RS Yoff ‘12
15 Abdoulaye Ndiaye 1991 0 0 0 Bouanes ‘12
25 Magnús Ingi Einarsson 1994 0 0 0
Sóknarmenn
* var í láni
Selfyssingar aftur í efstu deild
Markmiðið er að tryggja sætið
Þjálfari Selfoss er Logi Ólafsson og
er hann á sínu öðru tímabili með
Selfyssinga. Logi þjálfaði síðast í
efstu deild fyrri hluta sumars 2010
þegar hann
stýrði KR en lét
af störfum á
miðju sumri.
Logi er menntað-
ur íþróttakennari
og nam meðal
annars í Noregi
á sínum tíma.
Hann hefur
langa reynslu
sem knatt-
spyrnuþjálfari og er sá eini sem
stýrt hefur bæði karla- og kvenna-
landsliði Íslands. Í efstu deild karla
hefur hann þjálfað Víking, ÍA, FH
og KR en í efstu deild kvenna þjálf-
aði hann Val. Logi á auk þess að
baki 66 leiki í efstu deild með FH
og skoraði í þeim 2 mörk.
Jóhann Ó. Sigurðsson varði
mark Selfyssinga þegar liðið lék í
efstu deild fyrir tveimur árum og
stóð sig vel. Hann hefur nú fengið
samkeppni að utan frá Ismet Dura-
cak sem lék í Noregi.
Leikmannahópurinn á Selfossi
byggir ekki eins mikið á heima-
mönnum og hann gerði fyrir tveim-
ur árum. Telja margir að lið Selfoss
sé sterkara á pappírunum að þessu
sinni en gengi
þess mun velta
mikið á því
hversu sterkir
erlendu leik-
mennirnir eru.
Stefán Ragnar
Guðlaugsson
kemur vænt-
anlega til með að
vera fyrirliði í
sumar og verður
miðvörður ásamt
Norðmanninum Endre Ove Brenne
sem var hjá liðinu í fyrra. Norð-
mennirnir Ivar Skjerve og Robert
Sandnes geta leikið í bakvarðastöð-
unum en Ivar var einnig á Selfossi í
fyrra. Andri Freyr Björnsson kem-
ur til með að spila mikið sem bak-
vörður og Sigurður Eyberg Guð-
laugsson er einnig bakvörður.
Babacar Sarr frá Senegal vakti
nokkra athygli í 1. deildinni í fyrra
með góðri frammistöðu og verður í
stóru hlutverki á miðjunni. Þar hef-
ur popparinn Ingólfur Þórarinsson
einnig leikið á undirbúnings-
tímabilinu. Logi hefur hug á því að
nota Jón Daða Böðvarsson á miðj-
unni eða fyrir aftan framherjana en
gæti þurft að tefla honum fram í
framlínunni í upphafi móts.
Selfoss er með nóg af fram-
bærilegum kantmönnum. Joe Tillen
verður væntanlega vinstra megin
en hægra megin gætu Tómas
Leifsson, Ólafur Karl Finsen og
Jon Andre Royrane allir leikið.
Ólafur gæti jafnframt leikið í
fremstu víglínu og í þá stöðu eiga
Selfyssingar einnig Viðar Örn
Kjartansson.
Selfoss
Logi
Ólafsson
Viðar Örn
Kjartansson
KOMNIR:
Abdoulaye Ndiaye frá AS Bouanes
(Senegal)
Agnar Bragi Magnússon, byrjaður
aftur
Ismet Duracak frá Hönefoss
(Noregi)
Jon Andre Röyrane frá Kristian-
sund (Noregi)
Moustapha Cissé frá RS Yoff
(Senegal)
Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni
Robert Sandnes frá Aalesund
(Noregi)
Tómas Leifsson frá Fram
FARNIR:
Arilíus Marteinsson í Stokkseyri
Einar Ottó Antonsson, hættur
Elías Örn Einarsson í Árborg (lán)
Ibrahima Ndiaye til Malí
Ingþór J. Guðmundsson, hættur
Peter Klancar í Livar (Slóveníu)
Sidy Sow til Senegals
Sævar Þór Gíslason, hættur
Breytingar á liði Selfoss
Sveitarfélagið Árborg hvetur alla
til að mæta á Selfossvöll í Pepsi-deild
karla og kvenna sumarið 2012
og styðja við bakið á Umf. Selfoss.
Áfram Selfoss