Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 31
FÓTBOLTINN 2012 31
Garðar Jóhannsson varð á síðasta
tímabili fyrsti leikmaður Stjörn-
unnar til að verða markakóngur í
efstu deild karla. Garðar skoraði 15
mörk í 21 leik Garðabæjarliðsins í
deildinni og átti drjúgan þátt í
óvæntri velgengni þess en Stjarnan
náði sínum besta árangri með því
að hafna í fjórða sætinu.
Garðar skoraði tveimur mörkum
meira en Atli Viðar Björnsson úr
FH, sem var með 13, en 12 mörk
skoruðu þeir Kjartan Henry Finn-
bogason úr KR og Halldór Orri
Björnsson, samherji Garðars úr
Stjörnunni.
Þrír leikmenn til viðbótar skor-
uðu tug marka en Kristinn Stein-
dórsson gerði 11 mörk fyrir Breiða-
blik og þeir Tryggvi Guðmundsson
úr ÍBV og Matthías Vilhjálmsson úr
FH skoruðu 10 mörk hvor.
Eins og sjá má hér fyrir ofan hafa
markakóngarnir dreifst vel á félög-
in undanfarinn áratug. Síðustu tíu
árin hefur aðeins Grindavík átt
markahæsta manninn oftar en einu
sinni.
Markamet deildarinnar stendur
hinsvegar óhaggað en nú eru liðin
15 ár síðan Tryggvi Guðmundsson
skoraði 19 mörk fyrir ÍBV og jafn-
aði með því met Péturs Péturs-
sonar, Guðmundar Torfasonar og
Þórðar Guðjónssonar. Þeir skoruðu
allir sín mörk í 10 liða deild og hef-
ur ekki verið ógnað þrátt fyrir
fjölgun liða úr tíu í tólf. vs@mbl.is
Garðar fyrsti marka-
kóngur Stjörnunnar
Skoraði 15 mörk fyrir Garðbæinga í fyrra
Markakóngar síðasta áratuginn
2011
Garðar Jóhannsson
Ár Leikmaður Mörk
2011 Garðar Jóhannsson, Stjörnunni 15
2010 Gilles Mbang Ondo, Grindavík 14
2009 Björgólfur Takefusa, KR 16
2008 Guðmundur Steinarsson, Keflavík 16
2007 Jónas Grani Garðarsson, Fram 13
2006 Marel Baldvinsson, Breiðabliki 11
2005 Tryggvi Guðmundsson, FH 16
2004 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 12
2003 Björgólfur Takefusa, Þrótti R. 10
2002 Grétar Ó.Hjartarson, Grindavík 13
Methafar með 19 mörk á tímabili:
Pétur Pétursson (ÍA) 1979
GuðmundurTorfason (Fram) 1986
Þórður Guðjónsson (ÍA) 1993
Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) 1997
EVRÓPUKEPPNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Að vanda taka fjögur íslensk
karlalið þátt í Evrópumótum fé-
lagsliða í sumar. KR fer í for-
keppni Meistaradeildar Evrópu en
FH, ÍBV og Þór taka þátt í for-
keppni Evrópudeildar UEFA.
ÍBV, FH og Þór fara öll í 1.
umferð forkeppni Evrópudeild-
arinnar. Nú fara bikarmeist-
ararnir ekki beint í 2. umferð eins
og undanfarin ár en þessu var
breytt fyrir keppnina í ár. Leik-
dagar í 1. umferðinni eru fimmtu-
dagarnir 5. og 12. júlí.
KR kemur síðan til leiks í 2.
umferð í forkeppni Meistaradeild-
arinnar en aðeins fjögur lægst
skrifuðu lið Evrópu taka þátt í
fyrstu umferðinni. Leikdagar í 2.
umferðinni eru miðvikudagarnir
18. og 25. júlí.
KR gengið best
undanfarin ár
KR-ingar hafa átt bestu gengi
að fagna af íslensku liðunum
undanfarin ár. Þeir hafa slegið út
andstæðinga sína í fyrstu umferð
forkeppni Evrópudeildarinnar,
Larissa frá Grikklandi sumarið
2009, Glentoran frá Norður-
Írlandi sumarið 2010 og ÍF frá
Fuglafirði í Færeyjum sumarið
2011.
KR-ingar fóru svo skrefi lengra
en oftast áður í fyrrasumar því í
2. umferð gerðu þeir sér lítið fyrir
og sigruðu Zilina frá Slóvakíu, 3:0,
á KR-vellinum. Slóvakarnir, sem
voru í riðlakeppni Meistaradeild-
arinnar haustið 2010, unnu seinni
leikinn 2:0 en KR fór áfram.
Vesturbæingar mættu svo
ofjörlum sínum í 3. umferð þegar
þeir töpuðu 1:4 og 0:2 fyrir Di-
namo Tbilisi frá Georgíu.
Frumraun hjá Þórsurum
Þórsarar þreyta frumraun sína í
Evrópukeppni og gera það sem 1.
deildar lið. Þeir komust í bikarúr-
slit gegn KR í fyrra og þar sem
KR varð einnig Íslandsmeistari
fengu Þórsarar keppnisrétt í Evr-
ópudeildinni, enda þótt þeir féllu
úr úrvalsdeildinni um haustið.
FH hefur leikið samfleytt í Evr-
ópukeppni frá 2004 en hefur ekki
tekist að komast áfram frá árinu
2008, hvorki í Evrópudeildinni né
Meistaradeildinni. FH hefur und-
anfarin þrjú ár fallið út í fyrstu
tilraun, gegn Aktobe frá Kasakst-
an, BATE frá Hvíta-Rússlandi og
Nacional frá Portúgal.
FH hefur fimm sinnum komist
áfram, þar af einu sinni í þriðju
umferð, árið 2004.
ÍBV tekur þátt í Evrópukeppni
annað árið í röð. Í fyrra lék ÍBV
við St. Patrick’s frá Írlandi og
vann heimaleikinn 1:0 en tapaði
útileiknum 0:2 og var þar með úr
leik. ÍBV hefur þrisvar komist
áfram, síðast árið 1999 þegar
Eyjamenn slógu út SK Tirana frá
Albaníu.
Morgunblaðið/Ómar
Evrópuleikir FH hefur tekið þátt í Evrópukeppni samfleytt frá 2004. Hér fagna Atli Guðnason, Pétur Viðarsson og
Hólmar Örn Rúnarsson samherja sínum Frey Bjarnasyni eftir að hann skoraði gegn Nacional frá Portúgal í fyrra.
Evrópuleikirnir spilaðir í júlí
FH, ÍBV og 1. deildarlið Þórs í 1. umferð Evrópudeildar KR-ingar í 2. umferð Meistaradeildar