Morgunblaðið - 04.05.2012, Side 32
INNRÁS/ÚTRÁS
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Sjö íslenskir knattspyrnumenn hafa
snúið heim á undanförnum vikum
eða mánuðum eftir mislanga dvöl í
atvinnumennsku erlendis. Við-
skiptajöfnuðurinn við útlönd er í
góðu jafnvægi að þessu sinni því
þeir koma í Pepsi-deildina í sumar
í staðinn fyrir sjö leikmenn sem
hafa yfirgefið íslensku liðin í vetur
og haldið á vit ævintýranna erlend-
is.
Innanlands er jöfnuðurinn þó
ekki til staðar því nýliðar Skaga-
manna hafa krækt í þrjá af þessum
sjö leikmönnum en hinir eru komn-
ir til liðs við FH, Stjörnuna, Val og
Grindavík.
Jóhannes Karl Guðjónsson er sá
sem lengst hefur dvalið fjarri ætt-
jörðinni því hann lék síðast með
Skagamönnum fyrir 14 árum, þá
aðeins 18 ára gamall, en hann hef-
ur verið atvinnumaður frá árinu
1998. Jóhannes lék með Genk í
Belgíu, MVV Maastricht í Hollandi,
Real Betis á Spáni, Aston Villa,
Wolves og Leicester í Englandi, þá
AZ Alkmaar í Hollandi, en var í
Englandi frá 2007 með Burnley og
Huddersfield.
Jóhannes Karl, sem á 34 lands-
leiki að baki, er að sjálfsögðu mikill
liðsauki fyrir nýliða Skagamanna,
enda gríðarlega reyndur og á að
baki 312 deildaleiki með liðum sín-
um erlendis.
Ármann Smári Björnsson er líka
kominn til liðs við Skagamenn en
þessi hávaxni og 31 árs gamli
Hornfirðingur hefur leikið í Noregi
og Englandi frá 2006. Fyrst í þrjú
ár með Brann, þar sem hann varð
norskur meistari, og síðan með
enska liðinu Hartlepool í tvö ár.
Hér heima lék Ármann áður með
Sindra, Val og FH, og varð meist-
ari með FH þrjú ár í röð áður en
hann hélt til Noregs.
Garðar B. Gunnlaugsson er sá
þriðji sem ÍA hefur fengið að utan,
en eins og Ármann hafði hann ver-
ið í fríi frá fótboltanum frá vorinu
2011. Garðar fór frá ÍA til Vals
2004 og þaðan til Norrköping í Sví-
þjóð 2006. Eftir það lék framherj-
inn með CSKA í Búlgaríu, LASK í
Austurríki og Unterhaching í
Þýskalandi.
Atli loksins í efstu deild
Atli Heimisson er kominn til
Valsmanna frá Asker í Noregi en
þar hefur Atli átt góðu gengi að
fagna undanfarin þrjú ár. Hann
skoraði 30 deildamörk á þremur
tímabilum, tvö ár í C-deildinni og
svo í B-deildinni á síðasta ári en
þar gerði Atli 6 mörk. Hann hefur
aldrei spilað í efstu deild á ferlinum
en Atli, sem er 24 ára, lék með Aft-
ureldingu og ÍBV áður en hann fór
út og skoraði 22 mörk í 37 leikjum
fyrir ÍBV í 1. deildinni árin 2007 og
2008.
Arnar Darri Pétursson mark-
vörður er kominn í Stjörnuna frá
SönderjyskE í Danmörku. Arnar,
sem er 21 árs, fór frá Stjörnunni til
Lyn í Noregi fyrir fjórum árum og
lék þar 15 leiki í tveimur efstu
deildunum en hefur verið vara-
markvörður SönderjyskE í dönsku
úrvalsdeildinni frá miðju sumri
2010.
Guðmann Þórisson er kominn til
liðs við FH eftir að hafa spilað með
Nybergsund í norsku B-deildinni
undanfarin tvö ár. Guðmann, sem
var í stóru hlutverki hjá Nyberg-
sund í fyrra, lék með Breiðabliki
áður en hann hélt til Noregs.
Marko Valdimar Stefánsson er
kominn aftur til Grindavíkur eftir
að hafa verið í láni hjá sænska lið-
inu Oscarshamn á síðasta ári.
Sjö til Norðurlandanna
Þeir sjö leikmenn sem eru farnir
af landi brott frá því í fyrra voru í
fjórum félögum, KR, FH, Val og
Breiðabliki, og fóru allir til liða á
Norðurlöndum.
Íslands- og bikarmeistarar KR
sáu á bak Guðjóni Baldvinssyni til
Halmstad í sænsku B-deildinni og
Skúla Jóni Friðgeirssyni til Elfs-
borg í sænsku úrvalsdeildinni.
Frá Breiðabliki fóru þeir Guð-
mundur Kristjánsson til Start í
norsku B-deildinni og Kristinn
Steindórsson til Halmstad þar sem
hann leikur með Guðjóni.
Frá Val fóru Haraldur Björns-
son markvörður til Sarpsborg í
norsku B-deildinni og Ingólfur Sig-
urðsson til Lyngby í dönsku úr-
valsdeildinni.
Þá fór Matthías Vilhjálmsson,
fyrirliði FH, til Start þar sem hann
er samherji Guðmundar.
Áttundi leikmaðurinn fer síðan á
miðju sumri en Hjörtur Her-
mannsson, fyrirliði U17 ára lands-
liðs Íslands og Fylkismaður, hefur
samið við hollenska félagið PSV
Eindhoven og gengur til liðs við
það 1. júlí.
Skagamenn fengu þrjá
heim úr atvinnumennsku
Sjö hafa snúið heim til Íslands í vetur Sjö hafa horfið af landi brott
Jóhannes Karl, Ármann Smári og Garðar komu til liðs við ÍA
Morgunblaðið/Golli
Heimkoma Jóhannes Karl Guðjónsson lék eitt tímabil með KA í 1. deild og átta leik með ÍA í úrvalsdeildinni áður en
hann gerðist atvinnumaður fyrir fjórtán árum. Hann fékk sig lausan frá Huddersfield í Englandi í lok apríl.
Morgunblaðið/Golli
Skagamaður Ármann Smári
Björnsson lék síðast á Íslandi 2006
og varð þá Íslandsmeistari með FH.
Morgunblaðið/Ómar
Stjörnumaður Arnar Darri Pét-
ursson kemur í mark Stjörnunnar
eftir fjögur ár erlendis.
• Virkur stuðningur
• Vandaður vefnaður
með góðri öndun
• Einstök hönnun
• Viðurkennd gæði
• Fjölbreytt úrval
Stórhöfða 25 • 569 3100
eirberg.is
Viðurkenndar
stuðningshlífar
Opið virka daga kl. 9 -18