Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 33
FÓTBOLTINN 2012 33 Enginn leikmaður liðanna tólf í Pepsi-deild karla byrjar þetta keppnistímabil í leikbanni. Valur Fannar Gíslason og Baldur Ingimar Aðalsteinsson áttu óúttekið bann en hvorugur spilar í deildinni í ár. Stefán Þór Þórðarson hefði reyndar verið í tveggja leikja banni hjá ÍA en hann hefur lagt skóna á hilluna og afplánar því bannið án þess að það bitni á Skagaliðinu. Framkvæmdastjóri ÍA, Þórður Guðjónsson, má hinsvegar ekki vera á bekk Skagamanna í fyrsta leik vegna brottvísunar í lokaleik liðsins í 1. deild síðasta haust. vs@mbl.is Þórður byrjar í leikbanni Þeir Ólafur Páll Snorrason úr FH og Guðmundur Steinarsson úr Keflavík lögðu upp flest mörk allra í Pepsi- deildinni árið 2011. Þeir áttu 10 stoðsendingar hvor á samherja sína, Ólafur í 18 leikjum FH-inga en Guðmundur í 21 leik Keflvík- inga. Bjarni Guð- jónsson, fyrirliði KR, varð þriðji á þessum lista en hann lagði upp 9 mörk fyrir meistarana. Garðar Jó- hannsson, markakóngur deild- arinnar, lagði upp 7 mörk fyrir Stjörnuna og þeir Atli Sigur- jónsson úr Þór, Atli Guðnason úr FH, Guðmundur Kristjánsson og Rafn Andri Haraldsson úr Breiða- bliki og Tryggvi Guðmundsson úr ÍBV lögðu upp 6 mörk hver. vs@mbl.is Ólafur og Guðmundur Ólafur Páll Snorrason Keppnistímabilið 2011 var það fjórða í röð þar sem skoruð hafa verið meira en 3 mörk að meðaltali í leik í efstu deild karla en það gerir deildina hér á landi eina af þeim marksæknustu í Evrópu. Meðaltal í sterkustu deildum álfunnar er á bilinu 2,5 til 2,7 mörk í leik. Aukning marka hér á landi varð áþreifanleg eftir að liðum var fjölg- að úr 10 í 12 fyrir árið 2008. Fram að því hafði það aðeins gerst einu sinni síðustu tíu árin að meðal- skorið í deildinni næði þremur mörkum í leik, en síðan hefur það verið reglan. Hinsvegar var markaskorið í fyrra, 2011, það lægsta á þeim fjór- um árum sem liðin eru frá fjölg- uninni. Þá voru skoruð 3,04 mörk að meðaltali í leik en þau voru 3,12 árið 2008, 3,42 árið 2009 og 3,33 ár- ið 2010. vs@mbl.is Enn rúm þrjú mörk í leik Útlit er fyrir að svipaður fjöldi er- lendra leikmanna leiki í Pepsi- deildinni í sumar og í fyrra. Þremur dögum fyrir mót voru þeir 38 talsins en á árinu 2011 tóku alls 44 erlendir leikmenn þátt í leikjum í deildinni. Samkvæmt fenginni reynslu bætast einhverjir við áður en lokað er fyrir félagaskiptin um miðjan maí og síð- an geta liðin að vanda bætt við sig mönnum frá 15.-31. júlí. Dean Martin er aldursforsetinn og sá sem hefur spilað lengst hér á landi en þessi sprettharði enski kantmaður mætir til leiks sem spil- andi aðstoðarþjálfari ÍA. Hann verð- ur fertugur síðsumars og þetta er hans 18. tímabil á Íslandi en Martin lék fyrst með KA árið 1995. Scott Ramsay í Grindavík gefur honum lítið eftir en Skotinn leikni kom hingað 1996, þá til Reynis í Sandgerði, og hefur spilað á Íslandi síðan. Þá er liðsfélagi hans og landi, Paul McShane, að hefja sitt 15. tímabil hér á landi en þessir þrír hafa allir sett svip sinn á íslenska fótboltann. Englendingar fjölmennastir Þeir eru þrír af 17 Bretum sem nú eru á mála hjá íslensku liðunum. Englendingar eru fjölmennastir er- lendra leikmanna hérlendis, tíu tals- ins í deildinni, og síðan koma fimm Skotar og fimm Norðmenn. Fjórir af þeim norsku eru samherjar með ný- liðum Selfyssinga. Það eru einmitt Selfyssingar sem eru með flesta erlenda leikmenn í upphafi móts, níu talsins. Þar af fjóra frá Noregi og þrjá frá Senegal. Eyjamenn koma skammt á eftir með sjö og voru enn að leita fyrir sér þegar þetta blað fór í prentun. Þar eru þrír Englendingar, tveir Danir og tveir frá Úganda. Erlendir leikmenn eru til staðar í öllum liðum deildarinnar að þessu sinni en í fyrra voru Fylkismenn með eina „alíslenska“ liðið. Þeir eru nú komnir með írska miðvörðinn David Elebert. FH, KR og Valur eru líka aðeins með einn erlendan leik- mann hvert félag. vs@mbl.is Átjánda ár Martins á Íslandi  Englendingurinn snöggi spilar áfram með ÍA  Verður fertugur í sumar  Öll lið með útlendinga www.regenovex.is Gel Perlur Plástur Icepharm a ERU ÆFINGARNAR AÐ FARA ILLA MEÐ LIÐINA? Regenovex vinnur gegn verkjum og bólgum í liðum á náttúrlegan hátt. Regenovex dregur úr sársauka af völdum álags á liði. Gel: Fljótvirk staðbundin verkun Perlur: Viðhalda heilbrigðum liðum og liðleika Plástur: 12 tíma staðbundin verkun fæst í apótekum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.