Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 34
34 FÓTBOLTINN 2012
ÞJÁLFARAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Bjarni Jóhannsson úr Stjörnunni
er leikjahæsti þjálfarinn í efstu
deild karla á þessu ári og sá eini
af þeim sem stýra liðunum 12 sem
á yfir 200 leiki að baki sem þjálf-
ari í deildinni. Hann stýrir sínum
220. leik í deildinni þegar Stjarn-
an heimsækir Íslandsmeistara KR
í fyrstu umferðinni.
Bjarni er að hefja sitt fimmta
tímabil sem þjálfari Stjörnunnar
en undir hans stjórn vann Garða-
bæjarliðið sig upp úr 1. deildinni
haustið 2008 og hefur leikið í efstu
deild síðan. Stjarnan náði þar sín-
um besta árangri í fyrra þegar
liðið endaði í fjórða sæti og litlu
munaði að það hirti þriðja sætið
af Eyjamönnum í lokaumferðinni.
Þeir Logi Ólafsson hjá Selfossi
og Guðjón Þórðarson hjá Grinda-
vík munu að öllu óbreyttu stjórna
sínum 200. leik í deildinni í fyrri
umferð Íslandsmótsins.
Tveir nýliðar eru í þjálf-
arahópnum í ár. Þórður Þórðarson
hjá ÍA og Zoran Daníel Ljubicic
hjá Keflavík hafa ekki áður stýrt
liði í efstu deild. Þórður hefur
þjálfað Skagamenn í 1. deildinni
frá 15. júlí 2009 en Zoran á aðeins
eitt ár að baki sem meist-
araflokksþjálfari. Það var árið
2005 þegar hann var spilandi
þjálfari Völsungs í 1. deild.
Leikjafjöldi þjálfaranna tólf í
efstu deild er sem hér segir:
Bjarni Jóhannsson, Stjörnunni............ 219
Logi Ólafsson, Selfossi ......................... 194
Guðjón Þórðarson, Grindavík .............. 192
Ólafur H. Kristjánsson, Breiðabliki .... 142
Þorvaldur Örlygsson, Fram................. 142
Kristján Guðmundsson, Val ................. 138
Heimir Guðjónsson, FH ......................... 88
Magnús Gylfason, ÍBV ........................... 84
Ásmundur Arnarsson, Fylki .................. 44
Rúnar Kristinsson, KR .......................... 33
Zoran Daníel Ljubicic, Keflavík .............. 0
Þórður Þórðarson, ÍA............................... 0
Þjálfararnir eiga síðan allir feril
að baki í efstu deild, nema Krist-
ján. Heimir hefur spilað flesta
leiki í deildinni, 254, og Guðjón er
næstur með 215, en Magnús er
með fæsta, 2 talsins. Sex þjálf-
aranna hafa spilað A-landsleiki
fyrir Ísland. Rúnar á flesta, enda
handhafi landsleikjametsins sem
er 104 leikir.
Guðjón með flesta sigurleiki
og Rúnar besta hlutfallið
Guðjón Þórðarson er með flesta
sigurleiki í deildinni af þessum
tólf þjálfurum, 99 talsins, einum
meira en Bjarni Jóhannsson og
tveimur meira en Logi Ólafsson.
Það verður því fróðlegt að sjá
hver þeirra verður fyrstur að ná
100. sigurleiknum.
Rúnar Kristinsson er hinsvegar
með besta sigurhlutfallið af þjálf-
urunum í deildinni og Heimir
Guðjónsson er skammt á eftir
honum.
Sigrar og sigurhlutfall þjálfar-
anna tíu sem hafa reynslu af efstu
deild er sem hér segir:
Guðjón Þórðarson, Grindavík . 99 61,5%
Bjarni Jóhannsson, Stjörnnni . 98 56,2%
Logi Ólafsson, Selfossi ............ 97 61,3%
Heimir Guðjónsson, FH .......... 57 73,3%
Ólafur H. Kristjánsson, Breiðab ........... 54
51,4%
Þorvaldur Örlygsson, Fram .... 54 48,6%
Kristján Guðmundsson, Val .... 53 53,3%
Magnús Gylfason, ÍBV ............ 28 44,6%
Rúnar Kristinsson, KR............ 21 77,3%
Ásmundur Arnarsson, Fylki ... 13 37,5%
Zoran Daníel Ljubicic, Keflavík .............. 0
Þórður Þórðarson, ÍA............................... 0
Morgunblaðið/Kristinn
Sjóaður Bjarni Jóhannsson þjálfaði fyrst í efstu deild árið 1995 og stjórnaði sínum 200. leik á þeim vettvangi síðasta sumar.
Bjarni leikjahæsti þjálfarinn
Stýrir sínum 220. leik í efstu deild þegar Stjarnarn mætir KR í 1. umferð Stutt í 200. leikinn hjá
Loga Ólafssyni og Guðjóni Þórðarsyni Þórður og Zoran Daníel eru nýliðar í deildinni
Morgunblaðið/Ómar
Mættur Guðjón Þórðarson er kominn í efstu deild á ný. Sjálfur spilaði hann
215 leiki í efstu deild og hefur því verið þátttakandi í 407 leikjum alls.
KR-ingar voru enn og aftur með
bestu aðsóknina á leikjum efstu
deildar karla síðasta sumar. Þeir
fengu þá þriðja mesta áhorfenda-
fjölda í deildinni frá upphafi en að
meðaltali komu 2.148 manns á 11
heimaleiki KR-inga sumarið 2011.
Sjálfir gerðu þeir betur árið
1999 þegar meðalaðsóknin var
2.501 áhorfandi á þeirra heima-
leikjum en það ár varð KR Ís-
landsmeistari í fyrsta skipti í 31
ár. FH er síðan í öðru sæti en
2.306 manns að meðaltali mættu á
leiki Hafnarfjarðarliðsins í Kapla-
krika sumarið 2007.
KR hefur nú verið á toppi að-
sóknarlistans fjögur ár í röð en þar
á undan hafði FH skákað þeim
þrjú ár í röð, frá 2005 til 2007. Það
eru einu þrjú árin frá 1997 sem
KR hefur ekki verið með flesta
áhorfendur í deildinni. Síðastir fyr-
ir utan FH til að gera betur en
Vesturbæingar á þessu sviði voru
Skagamenn árið 1996.
Í fyrra mættu að meðaltali 1.122
áhorfendur á hvern leik í Pepsi-
deild karla. Það er þriðja besta að-
sóknin í efstu deild frá upphafi.
Best var hún árið 2007 þegar 1.329
manns mættu að meðaltali á hvern
leik og næstbest árið 2010 þegar
áhorfendur voru 1.205 að meðaltali
á leik.
Þess má geta að árið 2001 fór
meðalaðsókn á leik í deildinni í
fyrsta skipti yfir þúsundið en þá
komu 1.076 manns að meðaltali á
völlinn. vs@mbl.is
KR-ingar enn með
bestu aðsóknina
Þriðja besta aðsókn hjá íslensku liði
frá upphafi KR fékk 2.148 á leik
Morgunblaðið/Golli
Aðsókn Í fyrra komu 1.122 áhorf-
endur á völlinn að meðaltali.