Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 35
FÓTBOLTINN 2012 35
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Framarar eru á toppnum með KR-
inga sem helstu keppinauta og ÍA,
Grindavík og Breiðablik eru í næstu
sætum en Fylkir, ÍBV og Selfoss
skera sig úr og eru á hraðleið í bull-
andi fallbaráttu. Þetta er ekki spá
heldur niðurstaðan ef úrslit í inn-
byrðis mótsleikjum úrvalsdeildarlið-
anna tólf á þessu ári eru skoðuð, þau
reiknuð saman og sett upp staða í
deildinni út frá þeim.
Þau hafa samtals háð 45 slíka leiki
sín á milli frá því í janúar, í Reykja-
víkurmótinu, Fótbolta.net-mótinu,
Lengjubikarnum og svo nú síðast í
Meistarakeppni KSÍ. Leikirnir eru
mismargir, eða frá fimm og upp í tíu
á lið.
Rennum yfir hvernig staðan
þeirra á milli er í upphafi Íslands-
mótsins og síðan er hægt að bera
þetta saman við helstu spár fyrir
tímabilið sem eru á bls. 36 og 37:
1. Fram hefur unnið 6 af 7 leikjum
sínum gegn liðum úr Pepsi-deildinni.
Þrír af þessum sex sigurleikjum eru
gegn Íslands- og bikarmeisturum
KR, og jafnframt líka eini tapleik-
urinn. Markatalan er 16:5 og vinn-
ingshlutfall 86 prósent.
2. KR hefur unnið 6 af 10 leikjum
sínum og gert eitt jafntefli en allir
þrír tapleikirnir eru gegn Fram.
Markatalan er 14:13 og vinnings-
hlutfall 65 prósent.
3. ÍA hefur unnið 3 leiki, gert 2
jafntefli og tapað tvisvar. Markatal-
an er 16:12 og vinningshlutfall 57
prósent.
4. GRINDAVÍK hefur unnið 3 leiki,
gert 2 jafntefli og tapað tvisvar.
Markatalan er 12:9 og vinningshlut-
fall 57 prósent.
5. BREIÐABLIK hefur unnið 4
leiki, gert 2 jafntefli og tapað þrisv-
ar, þar af tvívegis gegn KR. Marka-
talan er 13:14 og vinningshlutfall 56
prósent.
6. STJARNAN hefur unnið 4 leiki,
gert eitt jafntefli og tapað fjórum
sinnum. Markatalan er 16:16 og
vinningshlutfall 50 prósent.
7. KEFLAVÍK hefur unnið 4 leiki og
tapað 4. Markatalan er 12:15 og
vinningshlutfall 50 prósent.
8. VALUR hefur aðeins spilað
fimm leiki gegn liðum úr deildinni,
unnið tvo og gert eitt jafntefli en
tapað tvisvar. Markatalan er 10:7 og
vinningshlutfall 50 prósent.
9. FH hefur aðeins unnið 2 leiki af
9, en gert fjögur jafntefli og tapað
þrisvar. Markatalan er 14:15 og
vinningshlutfall 44 prósent.
10. FYLKIR hefur aðeins spilað
fimm leiki gegn liðum úr deildinni,
vann Val í þeim fyrsta, 3:2, en hefur
síðan gert eitt jafntefli og tapað
þrisvar. Markatalan er 8:12 og vinn-
ingshlutfall 30 prósent.
11. ÍBV hefur unnið einn leik af
sjö, 4:3 gegn Selfossi, gert eitt jafn-
tefli en tapað fimm leikjum. Marka-
talan er 13:18 og vinningshlutfall 21
prósent.
12. SELFOSS hefur unnið einn
leik af sjö, 1:0 gegn Keflavík, gert
eitt jafntefli en tapað fimm leikjum.
Markatalan er 6:14 og vinningshlut-
fall 21 prósent.
Stærstu tölur vetrarleikjanna eru
5:0 sigur Fram á KR í úrslitaleik
Reykjavíkurmótsins og 5:0 sigur FH
á Grindavík í Fótbolta.net-mótinu.
Mesti markaleikur vetrarins er
5:5 jafnteflisleikur ÍA og ÍBV í Fót-
bolta.net-mótinu.
Framarar með
besta stöðu
eftir veturinn
Með 86 prósenta vinningshlutfall
gegn öðrum liðum úr deildinni
Fylkir, ÍBV og Selfoss í vanda Morgunblaðið/Ómar
Öflugir Framararnir Samuel Hewson og Kristinn Ingi Halldórsson fagna einu marka liðsins í vetur.
TÓKSTU AÐEINS OF VEL Á ÞVÍ
Á ÆFINGU?
VÖÐVAVERKIR
BAKVERKIR
TÍÐAVERKIR
TOGNUN
HÖGG
OFREYNSLA
FÆST Í APÓTEKUM