Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 36
36 FÓTBOLTINN 2012 TWITTER Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Morgunblaðið gerði könnun á meðal knattspyrnuáhugamanna á sam- skiptavefnum Twitter og bauð þeim að spá um lokastöðuna í Pepsi- deildinni í sumar. Þar kom á daginn að þeir voru að stórum hluta sammála viðmæl- endum og fréttamönnum blaðsins um möguleika liðanna. KR, FH og Fram höfnuðu í þrem- ur efstu sætunum á Twitter, eins og í Morgunblaðsspánni. ÍA er í fjórða sætinu og Stjarnan í því fimmta og þar hafa liðin því sætaskipti miðað við hina spána. Mesti munurinn er á fallbarátt- unni en ljóst er að á Twitter hafa menn ekki trú á því að Keflavík haldi sæti sínu í deildinni en telja hinsvegar að Fylkir nái að vera fyrir ofan bæði Suðurnesjaliðin og haldi sæti sínu í deildinni. Selfoss síðan á botninum með fæst stig eins og annars staðar. Af 42 þátttakendum í Twitter- spánni telja 27 að KR verði Íslands- meistari, 8 spá FH-ingum titlinum, 3 telja að Stjarnan verði meistari í fyrsta sinn, 2 að nýliðar ÍA vinni mótið og 2 að Framarar hreppi tit- ilinn. Hvað fallbaráttuna varðar telja 29 að Selfoss falli, 18 spá Keflvíkingum niður, 17 Grindvíkingum og 14 telja að Fylkir falli. Morgunblaðið á Twitter Knattspyrnumenn og knattspyrnu- áhugamenn nota samskiptavefinn Twitter í auknum mæli. Þar eru fjöl- margir fjölmiðlar og meðal annars fara allar fótboltafréttir af mbl.is þangað inn, undir @mblfotbolti. Þar eru líka almennar fréttir af mbl.is, allar aðrar íþróttafréttir þar með- taldar, undir @mblfrettir. Ennfremur má einnig finna á Twit- ter marga þeirra sem skrifa um fót- boltann í Morgunblaðið og á mbl.is og það fer ekki á milli mála að Twitter er stöðugt meira notaður af þeim sem tengjast íþróttinni, bæði í sam- skiptum og fréttaöflun. Hafa meiri trú á Fylki en Keflavík Ljósmynd/Víkurfréttir Fallbarátta? Flestir reikna með því að Keflavík og Grindavík muni eiga erfitt uppdráttar og berjist ásamt Fylki og Selfossi á botninum. MOGGINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Viðmælendur Morgunblaðsins í þessu kynningarblaði og íþrótta- fréttamenn blaðsins ásamt lausa- pennum sem fjalla um fótboltann telja KR-inga sigurstranglegasta á Íslandsmótinu í sumar. Þeir eru jafnframt vissir um að Selfyssingar falli úr Pepsi-deildinni og það komi í hlut Fylkismanna að taka með þeim skrefin þungu niður í 1. deild- ina í haust. Viðmælendurnir eru þrettán tals- ins, einn frá hverju liði í deildinni og svo Ólafur Jóhannesson, fyrrv. landsliðsþjálfari sem er sérfræð- ingur blaðsins í ár. Hann fer vel yf- ir sínar skoðanir á liðunum á bls. 38. Þessir aðilar spáðu allir um röð liðanna, ásamt fjórtán Morg- unblaðsmönnum. Niðurstaðan frá þessum 27 að- ilum er hér til hliðar. Mesti munur á matinu á ÍA Viðmælendur og Moggamenn voru sammála um að KR og FH yrðu í tveimur efstu sætunum, og einnig um að Breiðablik og Kefla- vík yrðu í 8. og 9. sæti og að Sel- fyssingar myndu hafna í botnsæt- inu. Spárnar voru hinsvegar mismun- andi um hin sjö liðin í deildinni. Mestu munaði á mati þessara hópa á liði ÍA því Moggamenn töldu Skagamenn enda í 4. sætinu en við- mælendur spáðu því að nýliðarnir frá Akranesi yrðu í 6.-7. sæti. Heildarniðurstaðan var 5. sætið til Skagamanna. Viðmælendur töldu hinsvegar að Stjarnan yrði í 3. sætinu, á undan Fram, en Moggamenn settu hins- vegar Fram í 3. sætið, ÍA í 4. sætið og Stjörnuna í 5. sætið. Viðmælendur voru með Fylki og Grindavík hnífjöfn í 10.-11. sætinu en Moggamenn voru afgerandi í því að Grindavík myndi halda sér uppi á kostnað Fylkismanna. Átján telja KR vinna deildina Af þeim 27 aðilum sem tóku þátt í spánni töldu 18 að KR yrði Ís- landsmeistari. FH var í efsta sæt- inu hjá 4, Fram hjá 3, Stjarnan hjá einum og Skagamenn hjá einum en þess ber að geta að fulltrúar lið- anna tólf slepptu sínu félagi í spánni. KR var 18 sinnum í efsta sæti, 6 sinnum í 2. sæti, einu sinni í þriðja og einu sinni í 5. sæti í þessari spá. FH var 10 sinnum í 2. sæti og 4 sinnum í fyrsta sæti en tveir töldu að FH myndi enda í 5. sætinu. Fram var spáð 8 sinnum 3. sæt- inu og þrisvar meistaratitlinum, og allir nema einn töldu Fram verða í efri hluta deildarinnar. Stjarnan var af 11 manns talin ná einu þriggja efstu sætanna og þar af spáði einn liðinu Íslands- meistaratitli. Einn spáði hinsvegar Garðbæingum falli og fjórir töldu þá enda fyrir neðan miðja deild. ÍA er meistaraefni hjá einum, kandídat í annað sæti hjá tveimur og í þriðja sæti hjá þremur. Átta spáðu því hinsvegar að Skagamenn yrðu í neðri hluta deildarinnar, neðst í 9. sæti. Sammála um Hlíðarendaliðið Valur fékk ansi jafna kosningu um miðja deild. Einn spáði liðinu 3. sæti og tveir 9. sætinu en annars voru menn nokkuð sammála um Hlíðarendaliðið. ÍBV sveiflaðist mikið í spánni. Þrír telja liðið ná 3. sætinu, einn spáir því botnsætinu og tveir að það endi í 10. sæti deildarinnar. Breiðablik var á bilinu 6.-8. sæti hjá flestum. Einn spáði Kópavogs- liðinu falli og þrír 10. sætinu. Tveir töldu hinsvegar að Blikar næðu 3. sæti. Keflavík var í 9. til 10. sæti hjá langflestum. Fjórir töldu Keflvík- inga komast í efri hlutann, best í 5. sætið. Grindavík var líka í efri hlut- anum hjá fjórum aðilum, best í 5. sætinu. Hinsvegar spáðu 13 manns Grindvíkingum falli. Fylki var best spáð 7. sæti af einum aðila og 12 manns spáðu Ár- bæjarliðinu falli. Allir nema einn spáðu því að Sel- fyssingar féllu úr deildinni og þar af settu 19 nýliðana í neðsta sætið. Sá bjartsýnasti var með þá í 10. sæti. Ósammála um sjö liðanna  KR og FH efst í spá Morgunblaðsins  Stjörnunni bæði spáð titli og falli  ÍBV sveiflast frá þriðja til tólfta sætis Morgunblaðið/Eggert Toppslagur Ef spárnar í upphafi Íslandsmótsins ganga eftir verða það KR og FH sem slást um Íslandsmeistaratitilinn á komandi keppnistímabili. Hér eigast við þeir Egill Jónsson úr KR og Ólafur Páll Snorrason úr FH. Spá Morgunblaðsins og viðmælenda 1. KR 300 2. FH 269 3. Fram 247 4. Stjarnan 222 5. ÍA 201 6. Valur 179 7. ÍBV 173 8. Breiðablik 152 9. Keflavík 120 10. Grindavík 102 11. Fylkir 84 12. Selfoss 45 Spá áhugamanna á Twitter 1. KR 488 2. FH 444 3. Fram 392 4. ÍA 373 5. Stjarnan 363 6. Valur 284 7. ÍBV 255 8. Breiðablik 195 9. Fylkir 137 10. Grindavík 132 11. Keflavík 121 12. Selfoss 91 HREIN HOLLUSTA Berry drykkirnir eru verðlaunavara. Hreinir og án litar- og rotvarnarefna. Án viðbætts sykurs. Ber eru full af vítamínum og andoxunarefnum. Gojiberið er oft kallað Hamingjuberið! » Arka ehf | Sundaborg 1 | 104 Reykjavík | Sími 562 6222 | info@arka.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.