Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 37
FÓTBOLTINN 2012 37 SPÁIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Fyrirliðar, þjálfarar og for- ráðamenn liðanna tólf í Pepsi-deild karla spáðu KR Íslandsmeist- aratitlinum, FH öðru sætinu og Fram því þriðja á hinum árlega kynningarfundi deildarinnar í gær. Keflvíkingum og Selfyssingum er hins vegar spáð falli úr deildinni í haust. Heildartölur úr spánni má sjá hér til hægri og miðað við þær virðast flestir búast við því að deildin skiptist í þrennt í sumar. KR fái helst keppni frá FH, Fram og Stjörnunni um efstu sæt- in, Valur, ÍA, ÍBV og Breiðablik sigli lygnan sjó um miðja deild en Grindavík, Fylkir, Keflavík og Sel- foss verði þau fjögur lið sem berjist fyrir áframhaldandi veru sinni í deildinni. Ef þessi spá er borin saman við þær tvær sem eru á síðunni til vinstri má sjá að margt er svipað með þeim og þær gefa áþekka þrí- skiptingu deildarinnar til kynna. En hversu mikið er að marka spána? Ef litið er á hversu gets- pakir fyrirliðar, þjálfarar og for- ráðamenn voru í fyrra, þá geta ein- hverjir sem fengu slæma útkomu í gær brosað út í annað. Niðurstaðan var nefnilega sú að í lokastöðu Pepsi-deildarinnar um haustið var ekki eitt einasta lið í sama sæti og því hafði verið spáð að vori! Og ekki vorum við á Morgun- blaðinu betri því niðurstaðan var nákvæmlega sú sama í þeirri spá sem við birtum í fótboltablaðinu okkar í mótsbyrjun 2011. Ekkert lið endaði í því sæti sem því var spáð. Í fyrra var það Stjarnan sem ruglaði spekingana mest. Garðbæ- ingar létu svartagallsraus í þeirra garð sem vind um eyru þjóta. Þeim var spáð 10. sæti en enduðu í því fjórða. ÍBV var líka betra en búist var við og endaði í þriðja sæti eftir að hafa verið spáð því fimmta. Hins vegar voru það Breiðablik og Fram sem stóðu ekki undir væntingum og voru bæði í fallbar- áttu eftir að hafa verið spáð 3. og 6. sæti. Blikar enduðu að lokum í sjötta sætinu og Framarar í því ní- unda en bæði liðin voru neðar en það lengst af. Samdóma spár um sigur KR-inga í ár  Keflavík og Selfossi spáð falli  Ekki eitt einasta lið endaði á þeim stað sem spáð var í fyrravor Morgunblaðið/Kristinn Ofarlega Gunnar Örn Jónsson úr Stjörnunni og Sam Tillen úr Fram verða í baráttu um Evrópusæti ef spáin rætist. Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna 1. KR 414 2. FH 373 3. Fram 338 4. Stjarnan 317 5. Valur 257 6. ÍA 256 7. ÍBV 230 8. Breiðablik 198 9. Grindavík 128 10. Fylkir 113 11. Keflavík 107 12. Selfoss 77 Láttu sumarið leika við þig! Tryggingamiðstöðin Síðumúla 24 Sími 515 2000 tm@tm.is afhverju.tm.is J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.