Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.05.2012, Qupperneq 38
38 FÓTBOLTINN 2012 SÉRFRÆÐINGUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Morgunblaðið fékk Ólaf Jóhann- esson, fyrrv. landsliðsþjálfara og nú- verandi þjálfara 1. deildar liðs Hauka, til að spá í spilin í Pepsi- deildinni og meta liðin tólf sem spila í deildinni í sumar. Ólafur hefur séð til liðanna á undirbúningstímabilinu og sem landsliðsþjálfari síðustu fjögur árin hefur hann fylgst vel með deildinni og þekkir vel til margra leikmanna sem verða í eld- línunni. KR: Breiður og góður hópur KR var lið ársins á síðustu leiktíð en vesturbæjarstórveldið varð bæði Íslands- og bikarmeistari og gerði afar góða hluti í Evrópukeppninni. „KR-liðið verður feiknalega sterkt í sumar líkt og í fyrra. KR hefur breiðan hóp leikmanna og fyr- ir þetta tímabil hefur liðið fengið til sín nokkra unga leikmenn. Það er spurning hvernig þeir bregðast við þeirri mikilli pressu sem er sett á liðið og að venju er krafan sú að ná í titil. Vissulega misstu KR-ingarnir töluvert þegar Guðjón Baldvinsson og Skúli Jón fóru en ég held að þeim takist að fylla þeirra skörð og ég spái því að KR-ingarnir verði klár- lega í baráttunni um titilinn,“ sagði Ólafur. FH: Munar um Matthías Í fyrsta skipti í mörg náðu FH- ingar ekki að krækja í titil á síðustu leiktíð. Slök byrjun á mótinu reynd- ist Hafnarfjarðarliðinu dýrkeypt og þrátt fyrir góðan endasprett varð hlutskipti FH annað sætið í deild- inni. „Mér líst vel á FH-liðið fyrir tíma- bilið. Heimir hefur verið að taka jafnt og þétt inn af ungum strákum í liðið og þeir koma kannski til með að fá stærra hlutverk núna en oft áður. Það er spurning hvernig þeir svara því en FH-ingar eru með vel skipað lið og það er vel mannað í hverja stöðu, jafnvel tveir góðir í mörgum stöðum. Það er mikill missir fyrir FH að Matthías Vilhjálmsson er horfinn á braut. Hann hefur verið driffjöðrin í liðinu síðustu árin og ég hefði haldið að FH hefði þurft að ná sér í leikmann fyrir hann. Þrátt fyrir þetta held ég að FH verði áfram í toppbaráttu.“ ÍBV: Erfitt sumar ÍBV var í baráttu um Íslands- meistaratitilinn allt fram á síðustu stundu í fyrra en sprakk á limminu á lokametrunum. „Það er eitthvað sem segir mér að sumarið eigi eftir að reynast Eyja- mönnum erfitt. Lykilmenn liðsins hafa verið í meiðslum og það er bú- inn að vera hálfgerður vandræða- gangur á þeim í allan vetur. Ég er svolítið hræddur um að markvarð- arstaðan verði vandamál en heima- völlurinn er ÍBV geysilega drjúgur og hann hefur oft hjálpað þeim í gegnum tíðina. Þegar ÍBV-liðið get- ur stillt upp sínu sterkasta liði þá er það gott en það gæti tekið tíma fyrir það að stilla saman strengi sína,“ segir Ólafur. Stjarnan: Öflugt lið Stjarnan var spútnikliðið á síð- ustu leiktíð en Garðabæjarliðið und- ir stjórn Bjarna Jóhannssonar náði sínum besta árangri frá upphafi með því að lenda í 4. sæti og Stjörnu- menn afrekuðu það að skora flest mörk allra liða í deildinni. „Stjarnan er með öflugt lið og er með mjög sterka leikmenn í flestum stöðum á vellinum. Stjörnumenn- irnir hafa verið heppnir með útlend- ingana og Bjarna hefur tekist að halda vel utan um hlutina í Garða- bænum. Ég held að Stjörnumenn- irnir geri þær kröfur til sjálfs sín að þeir geri betur en í fyrra, nái í Evr- ópusæti eða eitthvað meira. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þeir halda á sínum spilum. Ég tel að þetta geti farið í báðar áttir hjá lið- inu. Það geti blandað sér í baráttuna um titilinn en líka sigið niður og endað um miðja deild.“ Valur: Í miðjuhnoði Valsmenn enduðu í fimmta sæti á síðustu leiktíð. Þeir voru í efri hluta deildarinnar allt tímabilið en gerðu sig aldrei gildandi í alvöru toppbar- áttu. „Enn eitt árið hafa Valsmenn gengið í gegnum talsverðar breyt- ingar á leikmannahópnum. Þeir hafa fengið til sín slatta af leikmönnum úr neðri deildum og það er spurning hvort þeir séu tilbúnir að taka við þeirri pressu að spila í efstu deild. Valsararnir hafa verið upp og ofan á undirbúningstímabilinu og mín til- finning er sú að þeir verði í miðju- hnoði í sumar. Þeir eru að mínu mati ekki með nógu öflugt lið til að blanda sér í toppbaráttu og ég held að þeir verði á svipuðu róli og á síð- asta tímabili,“ sagði Ólafur, sem á árum áður lék með Val og varð Ís- landsmeistari með félaginu. Breiðablik: Ungir lofa góðu Eftir að hafa hampað Íslands- meistaratitlinum í fyrsta og eina skiptið fyrir tveimur árum átti Breiðablik í töluverðu basli á síðustu leiktíð. Blikarnir lentu óvænt í fall- baráttu en náðu að bjarga sér úr klípunni með því að vinna tvo síð- ustu leiki sína. „Blikarnir eru með góðan hóp ungra og flinkra leikmanna í liði sínu sem líta vel út en ég held að Breiðablik vanti tvo til þrjá reynslu- mikla leikmenn til viðbótar til að halda í höndina á þessum strákum. Ungu strákarnir lofa flestir góðu en ég sé fyrir mér að liðið komist ekki ofar en um miðja deild. Það veltur töluvert á því hvernig liðið fer af stað. Það er reynsluleysi í hópnum en ef liðið byrjar mótið vel þá gæti það endað fyrir ofan miðja deild.“ Fylkir: Spurningarmerki Sjöunda sætið var niðurstaðan hjá Fylkismönnum á síðustu leiktíð en varnarleikurinn reyndist Árbæj- arliðinu talsverður höfuðverkur og það fór svo að það fékk á sig flest mörk allra liða í deildinni eða 44. „Það hafa orðið töluverðar breyt- ingar hjá Fylki fyrir sumarið. Fylk- ismennirnir hafa ekki verið sann- færandi á undirbúningstímabilinu og Ásmundur virðist ennþá vera að reyna að púsla saman liðinu sem hann hyggst stilla upp og þá hafa meiðsli sett strik í reikninginn hjá þeim. Fylkisliðið er spurning- armerki. Það getur á góðum degi staðið í öllum liðum en getur líka tapað fyrir öllum en ég held að Fylk- ir muni ekki lenda í fallbaráttu.“ Keflavík: Á sama róli Keflvíkingar voru í bullandi fall- baráttu í fyrra og þurftu sigur í lokaumferðinni gegn Þórsurum til að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu. „Keflavíkurliðið er líkt og Fylkir talsvert spurningarmerki. Það hefur gert bæði góða og slæma hluti í vet- ur og vor. Ég þekki ekki mikið til liðsins en það eru að koma upp ungir og góðir strákar hjá Keflvíkingum sem Zoran hefur unnið með og þekkir til. Það getur hjálpað þeim en ég á frekar von á því að liðið verði að berjast á svipuðum slóðum og í fyrra.“ Fram: Umgjörðin góð Fram náði með frábærum enda- spretti að bjarga sér frá falli á æv- intýralegan hátt í fyrra og á und- irbúningstímabilinu hafa Framarar verið „heitasta“ lið landsins. „Framararnir hafa spilað best af liðunum í deildinni. Þeir hafa verið heilsteyptastir og það hefur hjálpað þeim að þeir hafa spilað flesta leiki á sínu sterkasta liði. Það var gott fyrir þá að fá útlendingana snemma til baka og ég held að Fram geti vel orðið Íslandsmeistari í sumar. Það hefur mannskap til þess og um- gjörðin virðist vera fín í kringum lið- ið um þessar mundir.“ Grindavík: Gætu fallið Guðjón Þórðarson er kominn í brúna hjá Grindvíkingum sem björguðu sér frá falli á ögurstundu með því að vinna ÍBV í Eyjum í lokaumferðinni. „Grindavík hefur verið í basli und- anfarin ár og hefur náð að bjarga sér frá falli á síðustu stundu. Guðjón Þórðarson er vanur því að hafa marga útlendinga og það er alltaf spurning hversu öflugir þeir eru. Það hefur hjálpað Grindavík í gegn- um árin að vera með nokkra heima- menn sem eru oft bestir þegar mest á reynir. Grindavík gæti fallið en það gæti líka komið á óvart í sumar og endað í góðu sæti í deildinni.“ ÍA: Gott sóknarlið Skagamenn eru aftur komnir í hóp þeirra bestu en þeir unnu 1. deildina í fyrra með glæsibrag og ríkir mikil eftirvænting hjá Ak- urnesingum fyrir tímabilið. „Skagamenn hafa staðið sig afar vel í vetur og eru með mjög gott lið að mínu mati, og ekki síst gott sókn- arlið. Varnarleikurinn gæti verið spurningarmerki en útlendingarnir í liðinu eru góðir og koma Jóhannesar Karls er mikill styrkur fyrir liðið og gerir það af verkum að það á mögu- leika á að vinna Íslandsmeistaratit- ilinn.“ Selfoss: Botnbarátta Selfyssingar voru ekki lengi að vinna sér sæti í Pepsi-deildinni á nýjan leik en Logi Ólafsson tók við liðinu í 1. deildinni í fyrra og undir hans stjórn endurheimti Selfoss sæti í deild þeirra bestu. „Ég held að sumarið muni reynast Selfyssingum ansi erfitt. Það er erf- itt að vera með marga útlendinga og ég tala nú ekki um þegar þeir koma á síðustu stundu. Erlendi markvörð- urinn þeirra lítur mjög vel út og hann gæti orðið lykilmaður Selfoss- liðsins í sumar en ég sé ekki annað en að Selfoss verði í botnbaráttu og það þurfi að eiga ansi marga góða leiki til að forðast fallið.“ Morgunblaðið/Golli Líklegir Framarar björguðu sér frá falli í fyrra með ævintýralegum endaspretti og hafa síðan verið nær ósigrandi í vetur. Ólafur Jóhannesson telur að þeir séu nógu sterkir til að fara alla leið í slagnum um Íslandsmeistaratitilinn. Fram og ÍA geta vel hampað Íslandsmeistaratitlinum í sumar  Ólafur Jóhannesson, fyrrv. landsliðsþjálfari, spáir í spilin og metur liðin tólf í Pepsi-deildinni  Fram, ÍA, KR og FH eru líklegustu liðin til að slást um titilinn í sumar að mati Ólafs Sérfræðingurinn » Ólafur Jóhannesson er sér- fræðingur blaðsins í ár en hann þjálfar nú 1. deildar lið Hauka eftir að hafa stjórnað karlalandsliði Íslands und- anfarin fjögur ár. » Undir stjórn Ólafs varð FH Íslandsmeistari 2004, 2005 og 2006 og bikarmeistari 2007. Hann þjálfaði FH líka 1988-91 og 1995. » Ólafur hefur einnig þjálfað ÍR, Skallagrím, Selfoss, Hauka, Þrótt R. og Einherja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.