Morgunblaðið - 28.06.2012, Page 4
4 finnur.is 28. júní 2012
Ítalska hönnunarhúsið Etro
sýndi herralínu sína fyrir vor/
sumar 2013 í vikunni sem leið
á tískuvikunni í Mílanó. Línan,
sem hönnuð er af Kean Etro,
bar vitni sterkum áhrifum af
fatnaði frá löndum við botn
Miðjarðarhafs og laus snið og
létt efni prýdd margskonar
mynstrum voru allsráðandi.
Sjálfur hefur hönnuðurinn látið
hafa eftir sér þau frægu um-
mæli að fólk sem klæðist
svörtu sé hrætt við að lifa lífinu
til fulls. Af því má ráða að hann
hugsi umrædda línu fyrir lífs-
glaða herra. Hörefni, sem hef-
ur í auknum mæli rutt sér til
rúms hin seinni ár, var ríkjandi
og því aldrei að vita nema hin
arabísku áhrif verði fyrirferð-
armeiri á komandi árum.
Arabískur blær á herralínunni frá Etro
AFP
Tíska innblásin af
Austurlöndum nær
Víðar buxur við
hefðbundinn
jakka og vesti.
Arabísk áhrif
auðséð.
Söngkonan Sunna Gunnlaugs hefur verið á tón-
leikaferð um Bandaríkin til að fylgja eftir disknum
Long Pair Bond. Með í för eru Scott McLemore
trommari og Þorgrímur „Toggi“ Jónsson bassaleik-
ari. Hafa þau komið við á stöðum eins og
Kaliforníu, Oregon og Detroit og eru þessa
dagana að þræða austurströnd Bandaríkj-
anna. Finnur fékk að heyra hvernig túrinn
gengur.
Mánudagur: Fórum snemma á fætur og
héldum af stað til útvarpsstöðvarinnar
KCSM þar sem ég er gestur í þættinum De-
sert Island Picks. Skellum okkur í vín-
smökkun hjá Hawley’s þar sem þetta fína
píanó er til staðar og ég tek lagið.
Þriðjudagur: Við höldum áfram að keyra
norður. Ég veit ekki hvað er áhrifamest,
sólóbreik Bud Powells í laginu Celia, sjúk-
lega gott handgert súkkulaði sem aðdáandi
gaf okkur í Berkeley, öldurnar á Kyrrahaf-
inu, elgarnir að tjilla við veginn eða stærðin
á Redwood -trjánum.
Miðvikudagur: Toggi er að brenna upp í sól-
inni svo að það er hlaupið út í apótek honum
til bjargar. Við sjáum St. Helens í fjarlægð
en meira verður ekki úr túristaathöfnum.
Fimmtudagur: Eftir tónleika fáum við okkur
lífrænt súkkulaði og rauðvín frá Hawley.
Flug til Detroit kl. 6 næsta morgun svo að
við erum einungis 12 tíma í Seattle.
Föstudagur: Eftir 3 tíma svefn förum við út
á flugvöll og fáum svo hræðilegt cappuccino
á Starbucks að ég er helst á því að nú
verði ég að gefa kaffi á bátinn.
Laugardagur: Eftir 4 tíma
svefn brunum við til Kanada.
Landamæradaman grillar okkur
grimmt. Rétt fyrir utan hátíðina
sem við eigum að spila á er veg-
urinn lokaður. Smá panik og vafa-
atriði hvort við náum gigginu en
þetta rétt sleppur fyrir horn.
Sunnudagur: Þvílíkur lúxus að fá
að sofa í 8 tíma. Keyrum til
Rochester með smá stoppi við Ni-
agara-fossana. Sáum á netinu að
New York tónleikar okkar eru í úrval-
inu hjá Time Out New York. Geð-
veikt!
ai@mbl.is
VIKA Í LÍFI SUNNU GUNNLAUGS
Á þeytingi um
Bandaríkin
’Śáum á netinu að New York tón-
leikar okkar eru í úrvalinu hjá
Time Out New York. Geðveikt!
’Éftir 3 tíma svefn för-
um við út á flugvöll
og fáum svo hræði-
legt cappuccino á
Starbucks að ég er
helst á því að nú verði
ég að gefa kaffi á bátinn
Þorgrímur, Sunna
og Scott hafa verið
dugleg að reyna
hin ýmsu kaffihús á
ferð sinni.