Morgunblaðið - 28.06.2012, Síða 12
Grandagarði 8 | Sími: 862 9010 | kokkurinn@kokkurinn.is
veisluþjónusta hinna vandlátu
Kokkurinn hjálpar þér að halda
hina fullkomnu veislu
Árshátíðir
Brúðkaup
Erfidrykkjur
Fermingar
Fundir
Kynningar
Þema
kokkurinn.is
Ferskur fiskur öll
hádegi í Víkinni
Þ
etta hefur verið svolítil
törn að undanförnu en
eigi að síður býsna
skemmilegt og ekki síð-
ur lærdómsríkt verkefni. Hér höf-
um við haft með okkur vaskan
hóp harðduglegra iðnaðarmanna
en við höfum þó reynt af íslensk-
um búhyggindum að gera sem
mest sjálf. Og þá hefur komið
mér á óvart hvað maður getur
glettilega mikið sjálfur. Að hafa
iðnaðarmanninn í blóðinu var
nokkuð sem ég bjóst ekki við,“
segir Örlygur Hnefill Örlygsson,
hótelhaldari á Húsavík.
Uppbygging og útsjónarsemi
Í fyrri viku var Hótel Húsavík-
urhöfði opnað, en á ensku er það
nefnt Húsavík Cape Hótel. Örlyg-
ur Hnefill stendur að þessum
rekstri með fjölskyldu sinni sem
á síðustu misserum hefur verið
að hasla sér völl í ferðaþjónustu.
Nyrðra reka þau gistiheimili í
Reykjahverfi og á Húsavík og nú
bætist hótelið nýja við. Geta Ör-
lygur og hans fólk nú boðið gisti-
pláss fyrir alls 57 gesti – og
stefna hærra.
„Uppbyggingin nú hefur verið
tímafrekt verkefni og kallað á
talsverða útsjónarsemi,“ segir
Örlygur Hnefill um hótelið nýja
sem stendur á svonefndum
Húsavíkurhöfða. Það er í húsi þar
sem eitt sinn var rækjuverk-
smiðja, síðar saltfiskverkun og
loks trésmíðaverkstæði. Nokkur
undanfarin ár hefur húsið hins
vegar staðið autt og var raunar í
frekar bágu ásigkomulagi þegar
nýir eigendur tóku við því – með
breytingar og nýtt hlutverk í
huga.
Verður með sautján herbergi
„Við byrjuðum á því að strípa
húsið algjörlega að innan og
moka gólfunum út til að koma
fyrir nýju lagnakerfi. Svo voru
steypt upp ný gólf, komið fyrir
veggjum og þannig komið fyrir
sjö herbergjum og annarri að-
stöðu sem þarf. Þá eigum við
eftir uppbyggingu á annarri hæð
hússins þar sem eiga að verða
tíu herbergi. Ég vænti þess að sú
aðstaða verði komin í notkun eft-
ir eitt til tvö ár og þá verður
þetta orðið sautján herbergja
hótel á besta stað í bænum,“
segir Örlygur Hnefil.
Ferðasumarið nyrðra fer vel af
stað og gestkvæmt er á Húsavík.
„Veðráttan að undanförnu hefur
verið afskaplega ljúf og á þann
hátt hafa ytri aðstæður unnið
með okkur. En mestu skiptir
samt að hér bjóðist ferðamönn-
um einhver skemmtileg afþreying
og þar býr Húsavík að hvalaskoð-
unarferðunum. Hingað koma
þúsundir innlendra og erlenda
ferðamanna á hverju ári til þess
að sjá þessar undraskepnur hafs-
ins bylta sér úti á haffletinum.
Þetta skapar svæðinu sérstöðu.
Og svo vona ég bara líka að brátt
komi einhver raunveruleg hreyf-
ing í uppbyggingu atvinnulífs hér;
t.d. iðnaðarstarfsemi eins og
lengi hefur verið stefnt að. Slíkt
myndi styrkja stöðu byggð-
arinnar hér mikið – ferðaþjónust-
unnar ekki síst,“ segir Örlygur
Hnefill – sem segir ferðaþjónustu
áhugaverðan og spennandi
starfsvettvang.
Fróðleikur og ferðamenn
„Dagarnir eru oft langir. Maður
er kominn á stjá eldsnemma að
finna til morgunmatinn og svo
bíða önnur verkefni; þrif, inn-
kaup, bókanir, pappírsvinna, út-
vega þetta og hitt, segja fólki til
vegar og svona gæti ég haldið
áfram. Vinnudeginum lýkur oft
ekki fyrr en undir miðnætti og
það er ekki alltaf mikill tími til að
hvílast. En á móti kemur að sól-
ríkir dagarnir gefa manni mikla
orku sem kemur sér vel,“ segir
Örlygur Hnefill sem þykir mikill
fjöldi spænskra ferðamanna í
sumar eftirtektarverður.
„Mér finnst afar lærdómsríkt
að rabba við þessa erlendu
ferðamenn; kynnast viðhorfum
þeirra og heimalöndum. Er að-
eins kominn með tilfinningu fyrir
Spáni; landi og þjóð. Einnig hefur
verið hér talsvert af fólki frá Jap-
önum og Kínverjum sem er ekki
síður áhugavert að rabba við;
enda er flest í heimalöndum
þeirra með allt öðrum brag en
hér á landi.“
sbs@mbl.is
Örlygur Hnefill Örlygsson opnar hótel á Húsavíkurhöfðanum nyrðra
Hafði iðnaðar-
manninn í
blóðinu Hótelið er í byggingu sem áður var rækjuvinnsla og síðar saltfiskverkun. Gera þurfti margvíslegar breytingar á
húsnæðinu fyrir nýtt hlutverk og er þeim raunar enn ekki lokið.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hótelið er fjölskyldufyrirtæki þar sem fólk gengur glatt til verka og leysir
hnútana. Örlygur Hnefill Örlygsson er lengst til vinstri og svo koma
systkini hans, þau Emelía og Gunnar Hnefill.
fasteignir
Sears Tower, sem í dag
nefnist Willis Tower, var
vígður árið 1973 og var
í aldarfjórðung hæsta
bygging heims, 442
metrar.