Morgunblaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 11
Samsett Saumað upp úr gömlum húsgögnum.
Nemendur útskrifast með góða
tækniþekkingu frá skólanum og
möppu sem þeir geta notað til að
koma sér á framfæri síðar meir.
En skólinn aðstoðar einnig
nemendur við slíkt eftir námið.
Næst á dagskrá hjá mér er að fara í
smásumarfrí en taka síðan þátt í
tveimur keppnum á Ítalíu og Norð-
ur-Spáni síðar í sumar,“ segir Kol-
brún.
Fatnaður úr húsgögnum
Lokaverkefni Kolbrúnar var
nokkuð óhefðbundið en í því end-
urnýtti hún húsgögn í fatnað og var
verkefnið því bæði skapandi og um-
hverfisvænt.
„Hugmyndin kviknaði út frá því
að hér í Barcelona setur fólk alltaf út
á þriðjudögum húsgögn sem það vill
ekki nota og getur þá hver sem er
hirt það sem hann vill. Þetta fannst
mér fallegt fyrirkomulag þar sem ég
hef ætíð verið hrifin af endurnýt-
ingu. Ég var því á hlaupum um borg-
ina til að ná mér í húsgögn sem ég
sagaði niður, tók í sundur og nýtti.
Ég bjó til fjögur heildarútlit sem ég
sýndi á lokasýningunni og eru þau
öll með bútum eða bitum úr hús-
gögnum. Svo bjó ég líka til fylgihluti
úr gömlum úrum og hálsfestum sem
ég hef sankað að mér. Fólk keypti
ekki hugmyndina alveg strax en síð-
an sló hún í gegn,“ segir Kolbrún.
Kolbrún hefur gert fatnað fyrir
sína fastakúnna inni á milli og segist
alltaf vera að spá og spekúlera.
Næst á dagskrá er að fylgja fylgi-
hlutalínunni eftir og búa til nýja línu
sem hún stílar þá inn á íslenska
kúnnahópinn sinn. Kolbrún stefnir
því á að vera með annan fótinn
heima þó að hún segist ekki endilega
ætla að koma heim í bráð.
Stílhreint Glæsilegur kjóll úr smiðju Kolbrúnar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2012
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
• Sólvarnargler
• Einangrunargler
• Öryggisgler
• Eldvarnargler
• Speglar
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í skjólveggi
- Í rennihurðir
Sérfræðing
ar í gleri
… og okku
r er nánast
ekkert ómö
gulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga
Í sumarfríinu finnst ekki bara full-
orðna fólkinu skemmtilegt að hafa
eitthvað að lesa. Yngstu lestrarhest-
arnir vilja líka geta gripið í skemmti-
lega bók áður en farið er að hátta í
sumarbústaðnum eða úti á palli þeg-
ar sólin skín. Enda er jú fátt eins
notalegt og að sitja úti í góðu veðri
og lesa skemmtilega bók.
Nú er komin út ný bók sem gæti
ratað í bakpokann fyrir næstu ferð.
Hún segir af honum Skúla skelfi sem
lendir í ýmsum ævintýrum og heitir
þessi bók Skúli skelfir og íþróttadag-
urinn. Í bókinni ákveður Skúli að
grípa til eigin ráða nú þegar íþrótta-
dagurinn nálgast. Skúli hlakkar
nefnilega ekki til því árið áður vann
hann ekki í einni einustu grein, öfugt
við Finn fullkomna sem auðvitað stóð
sig með prýði. Ákveður Skúli því að
beita sér í þeirri íþrótt sem hann er
bestur í, klækjum og stríðni, og úr
verður skemmtilegasti íþróttadagur
fyrr og síðar. Þessi bók fyrir unga
lestrarhesta er þýdd af Guðna Kol-
beinsyni og er bæði litrík og
skemmtileg með stóru letri sem
hentar vel fyrir byrjendur í lestri.
Bókin er gefin út af Forlaginu.
Fyrir unga lestrarhesta
Skelfir Skúli prakkarast í bókinni.
Skúli skelfir
prakkarast
Istituto Europeo di Design
eða IED hefur verið starf-
ræktur frá árinu 1966
og býður nám meðal
annars í hönnun,
tísku og sjónrænum
listum. Skólinn er
rekinn í Mílanó, Róm,
Tórínó, Feneyjum,
Madrid, Barcelona, São
Paulo og Ríó de
Janeiro.
IED skólann í Barce-
lona sækja rúmlega
1.000 nemendur frá yfir
80 löndum.
ALÞJÓÐLEGUR SKÓLI
Nám í þremur löndum
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar („big-band“) hefur þegið boð
um að halda tvenna tónleika á
næstu ráðstefnu International So-
ciety of Music (ISME) sem haldin
verður í borginni Þessaloniki á
Grikklandi, dagana 15.-20. júlí 2012.
ISME-samtökin voru stofnuð af
UNESCO árið 1953 og standa reglu-
lega fyrir menntaráðstefnum um
tónlist
Léttsveit Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar telur 17 hljóðfæraleikara
og stjórnandi er Karen J. Sturlaugs-
son.
Sveitin mun ljúka undirbúningi
sínum fyrir Grikklandsferðina með
tónleikum í Stapa, Hljómahöllinni í
Reykjanesbæ, í kvöld, miðvikudaginn
11. júlí, kl. 20.00. Á tónleikunum
verður leikin sú stórsveitatónlist
sem Léttsveitin hefur undirbúið sér-
staklega vegna Grikklandsferð-
arinnar, auk annarra laga sem sveit-
in hefur á efnisskrá sinni. Þegar
tónleikahaldi á ISME-ráðstefnunni í
Þessaloniki lýkur, fer Léttsveitin í
tónleikaferð um Grikkland og mun
m.a. halda tónleika í borginni Mara-
þon og í höfuðborginni Aþenu.
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Íslenskir stórsveitarhljómar fá
að óma víðs vegar um Grikkland
Léttsveit Hljómsveitarmeðlimir á góðri og sumarlegri stund.
Fylgihlutir Gömul úr og skartgripir sem skart.
Ljósmyndir/María Guðrún Rúnarsdóttir