Morgunblaðið - 09.07.2012, Qupperneq 3
Fjórtán högga forskot
gufaði upp á lokahringnum
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Bráðabana þurfti til að knýja fram úrslit í karla-
flokki hjá tveimur rótgrónustu golfklúbbum lands-
ins þegar Meistaramótum klúbbanna lauk á laug-
ardaginn.
Hjá Golfklúbbi Reykjavíkur varð Haraldur
Franklín Magnús klúbbmeistari eftir sigur á
Arnóri Inga Finnbjörnssyni eftir bráðabana. Þeir
léku báðir á 8 höggum undir pari samtals. Guð-
mundur Ágúst Kristjánsson var aðeins tveimur
höggum á eftir í þriðja sæti. Arnór Ingi kom sterk-
ur hinn í síðari hluta mótsins en þá lék hann á 67
og 68 höggum eftir að hafa spilað fyrri tvo hringina
á 73 og 70. Haraldur notaði hins vegar aldrei fleiri
en 71 högg. Hann var á 71, 66, 70 og 71 höggi en
Guðmundur Ágúst gaf örlítið eftir á lokahringnum.
Hann lék á 69, 71, 68 og 72. Arnór kreisti fram
bráðabana með glæsilegum hætti þegar hann fékk
fugl á lokaholunni en Haraldur skolla.
Íslandsmeistarinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
sigraði í kvennaflokki og var samtals á höggi undir
pari. Hún sló vallarmetið í Grafarholtinu þegar hún
lék þriðja hringinn á 67 höggum en hina hringina
notaði hún 70, 73 og 75 högg. Sigur hennar var
vægast sagt öruggur því næst kom hin þraut-
reynda Ragnhildur Sigurðardóttir og var hún átján
höggum á eftir Ólafíu.
Miklar sveiflur á lokahring
Kristján Þór Einarsson var ekki lengi að ná
klúbbmeistaratign hjá Keili í Hafnarfirði en hann
gekk í klúbbinn í vor. Kristján sýndi frábæra takta
á lokahringnum og lék þá á 62 höggum og sló vall-
armetið á Hvaleyrinni með því að leika á 9 undir
pari. Gamla metið átti Auðunn Einarsson, 63 högg,
en hann varð um helgina
klúbbmeistari á Ísafirði.
Kristján þurfti
á slíkum hring
að halda því
hann var heil-
um fjórtán
höggum á eftir
Rúnari Arnórs-
syni sem var með
forystu fyrir loka-
hring og níu högg-
um á eftir Íslands-
meistaranum Axel
Bóassyni. Rúnar gaf
eftir og lék á 77
höggum, Axel á 71
höggi en Kristján á
62 eins og áður segir.
Kristján og Axel
þurftu því að fara í
bráðabana og þar
hafði Kristján betur.
Með spilamennsku
sinni á Hvaleyrinni gaf
Axel gagnrýnisröddum
í kringum valið á lands-
liðinu væntanlega byr
undir báða vængi en EM
landsliða fer fram á vellinum í
vikunni. Hann lék á 67, 72, 68 og 71 höggi en
Kristján á 73, 72, 71 og 62 höggum. Rúnar var hins
vegar frábær framan af og lék á 66, 69, 67 og 77
höggum.
Tinna Jóhannsdóttir sigraði með þriggja högga
mun í kvennaflokki og tókst að halda nýkrýndum
Íslandsmeistara í holukeppni, Signýju Arnórs-
dóttur, fyrir aftan sig. Forysta Tinnu var tvö högg
fyrir lokahringinn en hún lék þó jafnt og gott golf á
70, 73, 71 og 73 höggum. Lokadagurinn var hins
vegar ekki góður fyrir systkinin Rúnar og Signýju
því Signý átti einnig sinn versta hring á lokadeg-
inum. Hún lék á 73, 74, 69 og 75 höggum.
Glæsilegt skor hjá Hlyni
Að meistaramótunum loknum er ljóst að margir
snjallir kylfingar ættu að geta mætt með gott
sjálfstraust til leiks á Íslandsmótinu á Hellu síðar í
mánuðinum. Einn þeirra er Hlynur Geir Hjart-
arson sem lengi hefur ætlað sér að vinna stóra tit-
ilinn. Hann minnti á sig á meistaramótinu hjá Golf-
klúbbnum á Selfossi og setti vallarmet þegar hann
lék á 62 höggum, sem er 8 högg undir pari vall-
arins. Samtals var Hlynur á 19 höggum undir pari
eftir fjóra glæsilega hringi, 65, 66, 62 og 68. Á 72
holum missti hann parið aðeins þrisvar sinnum.
Stuðmaður Kristján
Þór Einarsson datt í
stuð á lokahringnum
og vallarmetið á
Hvaleyrinni féll.
Bráðabanar og vallarmet á Meistaramótum golfklúbbanna Mikil dramatík hjá GR og Keili
Morgunblaðið/Golli
Sjóðandi heitur Haraldur Franklín Magnús hefur unnið tvo stóra titla á skömmum tíma og er til alls líklegur á Hellu.
Íslandsmeistarinn Ólafía sýndi hvers hún er megnug og bætti vallarmetið í Grafarholtinu.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012