Morgunblaðið - 09.07.2012, Page 4
Í LAUGARDAL
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Þróttur úr Reykjavík hefur í gegn-
um tíðina nokkrum sinnum komist í
undanúrslit bikarkeppninnar í
knattspyrnu karla, en aldrei lengra.
Nú hefur liðið lagt tvö úrvalsdeild-
arlið, Val og Selfoss, og stefnan er
hiklaust sett á að komast lengra í
keppninni og slá þar með fé-
lagsmetið. Miðað við leik liðsins í
gær þegar það lagði Selfoss 3:0 í átta
liða úrslitunum, þá kæmi það alls
ekki á óvart þó það mætti á aðal-
leikvanginn í Laugardalnum 18.
ágúst, en alla jafna leikur liðið á Val-
bjarnarvellinum.
Það var þar sem Selfyssingar voru
lagðir að velli í gær – og það nokkuð
sannfærandi. Fyrri hálfleikurinn var
bragðdaufur. Bæði lið virtust hrifn-
ust af því að reyna langar sendingar,
svona um það bil 50-70 metra langar,
en því miður rötuðu þær oftar en
ekki á mótherja þannig að ekki varð
úr mikil skemmtun fyrir áhorfendur.
En þeir skemmtu sér samt mjög vel
því stuðningsmannasveitir liðanna
eru öflugar og sungu nær allan fyrri
hálfleikinn. Mikil og góð stemning,
sem sagt. Það er oft talað um að lið
séu að þreifa hvert á öðru fyrstu
mínútur leikja, en þessar þreifingar
voru allan fyrri hálfleikinn að þessu
sinni og þótti mörgum það fulllangur
tími.
Síðari hálfleikur var miklum mun
fjörugri og skemmtilegri. Oddur
Björnsson kom Þrótti yfir með fínu
marki eftir fimm mínútna leik og
eins og oft vill verða með mörk þá
lífgaði það verulega upp á leikinn.
Selfyssingar sóttu mikið, áttu til
dæmis skot í stöng áður en Oddur
gerði annað mark sitt. Rétt áður en
annað markið kom vildu Selfyss-
ingar fá vítaspyrnu er ýtt var hressi-
lega á bak sóknarmanns liðsins og
höfðu þeir eitthvað til síns máls þar.
Varamaðurinn Andri Gíslason
gulltryggði síðan sigur Þróttar með
marki tíu mínútum fyrir leikslok og
fögnuðu Þróttarar að vonum ákaft.
Þróttarar léku bæði vel og af
skynsemi í gær. Allir leikmenn lögðu
sig að fullu fram og það voru ófá
skotin frá Selfyssingum sem komust
ekki alla leið á markið vegna þess að
varnarmenn Þróttar köstuðu sér
fyrir þau og þegar skotin komust á
markið var Ögmundur þar eins og
klettur. Selfyssingar reyndu að
brjóta varnir Þróttar en tókst það
ekki nægilega vel og þegar það tókst
átti eftir að koma knettinum framhjá
Ögmundi markverði og það tókst
ekki að þessu sinni.
Aftasta varnarlína Þróttar var
sterk og miðjumennirnir duglegir og
fremstu menn duglegir og gáfu
varnarmönnum Selfoss ekki mikinn
tíma til athafna. Besti maður leiks-
ins var Oddur en ekki langt að baki
honum má nefna Halldór Hilmisson,
Vilhjálm Pálmason og Erling Jack
Guðmundsson. Annars var það liðs-
heildin hjá Þrótti sem var sterkasta
vopn liðsins í gær, að ógleymdum
Kötturunum, stuðningsmönnum fé-
lagsins. Þeir voru frábærir.
Selfyssingar voru ekki nægilega
beinskeyttir í gær og trúlega var
þetta einn lélegasti leikur liðsins í
sumar. En það verður hins vegar
ekki tekið af Þrótturum að þeir léku
vel og hungraði greinilega í að kom-
ast áfram í keppninni. Það má benda
á, Selfyssingum til málsbóta, að þeir
urðu að stilla upp svo til nýrri vörn
vegna meiðsla og leikbanns. Það
breytir því hins vegar ekki að leik-
menn verða að mæta til leiks með
viljann til að vinna.
Þróttarar enn og
aftur í undanúrslit
Búnir að leggja tvö úrvalsdeildarlið Stefna í úrslitin
Morgunblaðið/Golli
Barátta Varnarjaxlinn Erlingur Jack Guðmundsson hefur betur í baráttunni við Selfyssinginn Robert Sandnes.
kom inná sem varamaður á 85. mín-
útu hjá KR, í sínum fyrsta leik á
tímabilinu, og hans fyrsta verk var
að taka nettan þríhyrning við Óskar
sem þannig slapp inní vítateig ÍBV
og skoraði.
Og tveimur mínútum síðar skor-
aði Óskar sigurmarkið með hörku-
skoti af 25 metra færi, 2:1. KR var
þar með komið í undanúrslit, fyrst
liða, en ÍBV sat eftir með sárt enn-
ið, eftir að hafa verið yfir í tæpar 70
mínútur í leiknum.
Sýndu að breiddin er góð
Dramatískur endir í leik tveggja
hörkuliða, sem sýndu að það er ekki
tilviljun að þau eru bæði talin líkleg
til að slást um Íslandsmeistaratit-
ilinn í ár. KR-ingar hafa sýnt það
nokkurn veginn frá byrjun móts og
Eyjamenn síðustu vikurnar.
En bæði komu þau löskuð til
leiks í gær, sérstaklega Eyjamenn,
því hjá þeim voru Christian Olsen
og Tonny Mawejje meiddir og
Brynjar Gauti Guðjónsson og
George Baldock í banni. Magnús
Gylfason átti hinsvegar sterka
menn á bekknum og sýndi að
breiddin í hópnum er ansi góð. Ey-
þór Helgi Birgisson og Gunnar Már
Guðmundsson komu báðir inní byrj-
unarliðið í fyrsta skipti á tímabilinu
og settu mark sitt á leikinn. Eyþór
BIKARINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég þarf að bæta mig í markaskor-
uninni,“ sagði KR-ingurinn Óskar
Örn Hauksson í viðtali hér í Morg-
unblaðinu í síðustu viku. Óhætt er
að segja að hann hafi tekið sjálfan
sig á orðinu því þessi leikni kant-
maður úr Njarðvík hefur skorað
þrjú af fjórum mörkum Vest-
urbæinga síðan. Í gær var hann
heldur betur hetja þeirra og skoraði
bæði mörkin í dramatískum 2:1 bik-
arsigri gegn ÍBV á Hásteinsvelli –
og skoraði þau bæði á síðustu fimm
mínútum leiksins.
Allt þar til Óskar jafnaði metin á
86. mínútu leit út fyrir að hann yrði
í hlutverki skúrksins. ÍBV komst
yfir á 17. mínútu með fallegu marki
frá Eyþóri Helga Birgissyni, en á
57. mínútu gátu KR-ingar jafnað
þegar þeir fengu vítaspyrnu. Þór-
arinn Ingi Valdimarsson braut á
Emil Atlasyni.
Óskar fór á punktinn, rétt eins og
hann gerði gegn Fylki síðasta
fimmtudag. Nú brást honum boga-
listin, Abel Dhaira varði vel, og ÍBV
virtist ætla að fylgja því eftir og slá
bikarmeistarana úr keppni.
Nei, ekki aldeilis. Björn Jónsson
með glæsilegu marki og hann var
líflegur í framlínunni allan tímann,
og Gunnar kom með styrk og kraft
á miðjuna. Þar sem reyndar Guð-
mundur Þórarinsson var í aðal-
hlutverki. Sá ungi Selfyssingur hef-
ur heldur betur fest sig í sessi hjá
ÍBV.
KR-ingar voru áfram án Kjartans
Henrys Finnbogasonar en ljóst er
að fleiri Vesturbæingar geta skorað
mörk. Óskar hafði aðeins gert eitt
mark í deild og annað í bikar í sum-
ar þegar áðurnefnt viðtal var tekið
fyrir tæpri viku en nú er hann
skyndilega orðinn annar marka-
hæsti leikmaður liðsins. Innkoman
hjá Birni Jónssyni var góð. Þessi
efnilegi sóknarmaður hefur lítið
komist af stað enn með sinn feril
vegna þrálátra meiðsla en sýndi á
þessum fáu mínútum sem hann lék
að hann getur orðið KR góður liðs-
auki seinni hluta tímabilsins.
Tók sig á orðinu
Óskar Örn Hauksson var bjargvættur KR-inga í bikarslagnum í Eyjum
Undir í 70 mínútur en eru komnir í undanúrslit eftir tvö mörk Óskars í lokin
Í FO
Tóm
toma
Fyri
inn á
inn y
inga
strák
myn
sum
En
bolta
sigri
Grin
greid
fagm
unar
kom
leyft
erfit
Skip
og b
„N
arso
bolta
víkin
heim
fyrri
varn
gerð
men
færi
Þa
í hin
feng
skey
arsk
fyrir
og va
andl
aðili
F
h
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012
Valbjarnarvöllur, bikarkeppni karla,
Borgunarbikarinn, 8-liða úrslit,
sunnudag 8. júlí 2012.
Skilyrði: Með miklum ágætum, and-
vari og þéttur rigningarúði.
Mörk: 1:0 Oddur Björnsson 50., 2:0
Oddur Björnsson 72., 3:0 Andri
Gíslason 80.
Skot: Þróttur 6 (6) – Selfoss 17(9).
Horn: Þróttur 6 – Selfoss 9.
Lið Þróttar: (4-4-2) Mark: Ögmund-
ur Ólafsson. Vörn: Helgi Pétur
Magnússon, Erlingur Jack Guð-
mundsson, Karl Brynjar Björnsson,
Hlynur Hauksson. Miðja: Oddur
Björnsson, Hallur Hallsson, Halldór
Arnar Hilmisson, Guðfinnur Þórir
Ómarsson (Andri Gíslason 57.).
Sókn: Arnþór Ari Atlason (Kristinn
Steinar Kristinsson 85.), Vilhjálmur
Pálmason (Davíð Sigurðsson 83.).
Lið Selfoss: (4-4-2) Mark: Ismet
Duracak. Vörn: Sigurður E.Guðlaugs-
son (Tómas Leifsson 57.), Agnar
Bragi Magnússon, Babacar Sarr, Ro-
bert Sandnes. Miðja: Ólafur Karl Fin-
sen, Jon André Röyrane, Jón Daði
Böðvarsson, Joe Tillen. Sókn: Mous-
tapha Cissé, Viðar Örn Kjartansson
(Ingólfur Þórarinsson 76.).
Dómari: Þóroddur Hjaltalín jr.
Áhorfendur: Tæplega 600.
Þróttur R. – Selfoss 3:0
Hásteinsvöllur, bikarkeppni karla,
Borgunarbikarinn, 8-liða úrslit,
sunnudag 8. júlí 2012.
Skilyrði: Gott veður og góður völlur,
þó fullþurr á köflum.
Mörk: 1:0 Eyþór Helgi Birgisson 17.,
1:1 Óskar Örn Hauksson 86., 1:2 Ósk-
ar Örn Hauksson 88.
Skot: ÍBV 14 (9) – KR 12 (8).
Horn: ÍBV 4 – KR 3.
Lið ÍBV: (4-4-2) Mark: Abel Dhaira.
Vörn: Arnór E. Ólafsson, Rasmus
Christiansen, Matt Garner, Þórarinn
Ingi Valdimarsson. Miðja: Víðir Þor-
varðarson (Andri Ólafsson 90.),
Gunnar Már Guðmundsson, Guð-
mundur Þórarinsson, Ian Jeffs
(Ragnar Leósson 76.) Sókn: Eyþór
Helgi Birgisson (Aaron Spear 85.),
Tryggvi Guðmundsson.
Lið KR: (4-3-3) Mark: Hannes Hall-
dórsson. Vörn: Haukur H. Hauksson,
Grétar S. Sigurðarson, Aron Jós-
epsson, Gunnar Þ. Gunnarsson
(Guðmundur R. Gunnarsson 24.)
Miðja: Bjarni Guðjónsson (Egill
Jónsson 90.), Baldur Sigurðsson,
Viktor B. Arnarsson. Sókn: Emil Atla-
son (Björn Jónsson 85.), Þorsteinn
Ragnarsson, Óskar Örn Hauksson.
Dómari: Magnús Þórisson.
Áhorfendur: 1.083.
ÍBV – KR 1:2
Sigurmarkið Óskar Örn Hauksson fagnar ef