Morgunblaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 8
Orð Guðs Mikill áhugi var á göngumessunni á Hellu sem verður haldin á ný að ári.
Á Töðugjöldum á Hellu, árlegri síð-
sumarshátíð í Rangárþingi ytra, um
síðustu helgi var haldin göngumessa
á laugardeginum í Aldamótaskóg-
inum í landi Gaddstaða. Það var
sóknarpresturinn í Odda, sr. Guð-
björg Arnardóttir, sem stóð fyrir
messunni og tóku 52 þátt í athöfn-
inni á öllum aldri. Messan fór fram á
göngu um skóginn en stoppað var
reglulega þar sem fór fram bæna-
gjörð, ritningarlestrar, sálmasöngur
og prédikun flutt. Allt eins og við er
að búast í hefðbundinni messu í
bænahúsi. Sr. Guðbjörg segir að
þetta form á messu á Töðugjöldum
hafi ekki verið reynt áður þó þær
hafi oft áður verið haldnar undir
berum himni. Hún segir viðtökurnar
hafa verið frábærar og er sannfærð
um að göngumessa verði aftur hald-
in að ári á Töðugjöldum. ipg@mbl.is
Prédikaði yfir söfn-
uðinum í gönguferð
Ljósmynd/Hreinn Óskarsson
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2012
Hótunin sem Steingrímur J.Sigfússon, þáverandi fjár-
málaráðherra og núverandi alls-
herjarráðherra, lét
falla í ársbyrjun
2010 og hljómaði
svo: „you ain’t seen
nothing yet“, er
enn í fullu gildi.
Eins og Morgun-blaðið greindi
frá í gær benti framkvæmdastjóri
fjármála hjá Icelandair Group á
að skattar á fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu hefðu þegar hækkað mikið í
tíð núverandi ríkisstjórnar.
Tekjuskattur á fyrirtæki hefðihækkað um 11%, trygginga-
gjald á laun um 45%, hærra þrep
virðisaukaskatts um 4%, áfeng-
isgjald á bjór um 38%, tóbaks-
gjald um 42% og bensíngjald um
134%.
Og hann tekur dæmi af áhrif-um skatta- og gjald-
skrárhækkana á Flugfélag Ís-
lands, sem hafi numið 114% frá
árinu 2009.
En eins og þáverandi fjár-málaráðherra benti svo eft-
irminnilega á er fjarri því að
skattahækkunum ríkisstjórn-
arinnar sé lokið.
Og til að hótunin verði ekkiorðin tóm líkt og kosninga-
loforð Vinstri grænna er haldið
áfram að hækka skatta á meðan
einhver skattstofn er eftir í land-
inu.
Skattstofninn rýrnar að vísumeð hverri nýrri skattahækk-
un en það veldur engum áhyggj-
um í stjórnarliðinu og lausnin er
sú sama og fyrr: Nýir skattar og
meiri skattahækkanir.
Steingrímur J.
Sigfússon
Sum loforð eru
ekki svikin
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.8., kl. 18.00
Reykjavík 17 skýjað
Bolungarvík 13 heiðskírt
Akureyri 20 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 alskýjað
Vestmannaeyjar 12 skýjað
Nuuk 11 heiðskírt
Þórshöfn 12 léttskýjað
Ósló 16 alskýjað
Kaupmannahöfn 27 léttskýjað
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 27 léttskýjað
Brussel 25 léttskýjað
Dublin 22 léttskýjað
Glasgow 21 léttskýjað
London 25 léttskýjað
París 28 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 25 skýjað
Berlín 27 skýjað
Vín 35 heiðskírt
Moskva 16 skýjað
Algarve 31 heiðskírt
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 30 léttskýjað
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 32 heiðskírt
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 21 léttskýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 24 léttskýjað
Chicago 19 skúrir
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:40 21:23
ÍSAFJÖRÐUR 5:33 21:39
SIGLUFJÖRÐUR 5:16 21:22
DJÚPIVOGUR 5:06 20:55
Mikael Torfason,
nýráðinn rit-
stjóri Fréttatím-
ans, kveðst ekki
ætla að breyta
ritstjórnarstefnu
blaðsins.
„Fréttatíminn
er blað sem er
kurteis gestur á
heimilum fólks á
höfuðborgar-
svæðinu og víðar, með 107.000 les-
endur. Þar hefur mótast mjög fín
ritstjórnarstefna sem hentar mér
mjög vel,“ segir Mikael. Hann seg-
ir sig þó vera rithöfund að upp-
lagi.
„Þannig séð hef ég aldrei gert
neinn rosalega mikinn greinarmun
á því að vera rithöfundur eða
blaðamaður. Það er ekki til neinn
jafngóður texti og sönn saga og
Fréttatíminn hefur verið svona
duglegur við það að búa til vönd-
uð viðtöl,“ segir ritstjórinn.
davidmar@mbl.is
Nýr ritstjóri breytir
ekki stefnunni
Mikael
Torfason
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
VEISLUBAKKI
Tilvalinn fyrir fundi og samkomur
Verð 7.500 kr með brauði
Franskur ferðamaður óskaði á
sunnudag eftir aðstoð lögreglu
vegna umferðaróhapps á Suður-
strandarvegi við Selatanga.
Þegar að var komið reyndist
hann hafa fest bíl sinn rækilega í
sandi utan vegar. Haft var samband
við björgunarsveitina Þorbjörn,
sem fór á vettvang og kom mann-
inum til aðstoðar.
Fastur í sandi