Morgunblaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það gerir manni gott að eiga trún-
aðarvin til þess að deila með sínum hjartans
málum. Klappaðu sjálfum þér á bakið, eða
leyfðu öðrum að gera það.
20. apríl - 20. maí
Naut Nautið þarf rými þar sem það getur
verið öruggt og skapandi. Þú þarft aldeilis
að taka þér tak ef þú vilt ekki missa allt út
úr höndunum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú fellur ekki í þá freistni að
láta sjálfselskuna ná tökum á þér ættu áætl-
anir þínar að ganga fullkomlega upp. Gerðu
ekki munnlega samninga og hafðu allt á
hreinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Í dag ættir þú að líta yfir allt sem þú
hefur afrekað. Taktu því bara rólega og safn-
aðu þreki svo annað verði upp á teningnum
þegar næsta vinnuvika hefst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gerðu þér grein fyrir hvað hjarta þitt
þráir og gríptu það með báðum höndum.
Svo þegar þér gengur vel skaltu verðlauna
sjálfan þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur verið hrókur alls fagnaðar
að undanförnu og ættir að gefa sjálfum þér
frí frá félagslífinu. Ekki nóg með það heldur
segir þú rétta hluti við rétta fólkið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að taka upp nýtt og betra
vinnulag og forðast að vera með allt á síð-
ustu stundu. Hvað sem þú gerir tekur þú ör-
lögin í þínar hendur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hvert augnablik dagsins þarf
ekki að vera skipulagt. Láttu það ekki hafa
áhrif á þig þótt öfundarmenn þínir séu með
útúrsnúninga.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt erfiðleikar skjóti upp koll-
inum hér og þar eru þeir bara til að sigrast á
og þú hefur gaman af þeirri glímu. Hugsaðu
þig tvisvar um áður en þú kaupir nokkuð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er mikill tilfinningahiti í sam-
skiptum þínum við aðra í dag. Ef þú lendir í
því að hafa ekkert að segja bregður þér
sjálfum alveg jafnmikið og öðrum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Stundum er nauðsynlegt að verja
fé til að styrkja stöðu sína í vinnunni og í
samfélaginu. Treystu á sjálfan þig ef þú vilt
koma einhverju í verk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Tækifærin eru á hverju strái og það
er bara að vera nógu snöggur að grípa gæs-
ina þegar hún gefst. Og þá er bara að láta til
skarar skríða.
Þegar ég setti bækur Guttorms J.Guttormssonar á sinn stað
greip ég næstu bók, „Bréf og rit-
gerðir Stephans G. Stephanssonar“,
og opnaðist þar sem þetta bréf til
Sigurðar Jónssonar frá Víðimýri,
dags. 10. apríl 1898, blasti við mér:
„Vinur, – ég sendi þér „Vorbat-
ann“ í ljóðum – svona.
Svipnum breytir, lagi, lit:
Loftið, sveit og vegur;
á sig veit sín valda slit
Vetur þreytulegur.
Blána lít ég himin hjá
hnúka strýtum bröttum –.
Hjallar ýta allir frá
enni hvítum höttum,
Vona, að rifin verði af sér
veðurdrifin mjöllin;
vita að svifið vorið er
vestan yfir fjöllin.
Vor, sem frjóvi lífgar lund,
litkar mó og víðir,
vetrarsnjó af gili og grund
geisla lófum þíðir.
Hnappa skæra í hárið fá
Hlíðir, ærið snoðnar;
jafnvel hærum Hóla á
hvíti blærinn roðnar.
Klaka æki áin ber,
ísaflækju rastar;
vakrir lækir leika sér –
lífið hækjum kastar.
Einskis rétt ég man til meins
meðan þetta er kveðið -.
Vorsins frétt þig yngi eins
upp og létti geðið!
Svo tek ég þunglamalega ofan
fyrir Breiðfjörð okkar og Þorsteini
mínum, sem kváðu kveða hring-
hendast, en set upp fyrir Eldon og
Ásgeiri.“
Við þetta er svo sem engu að bæta
nema þessari vísu Stephans:
Svefn og leti leita á mig,
lengra get ei skrifað
klúra letrið klessir sig
krumlu get ei bifað.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Listavel kveðið sendibréf
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
VINNUTÍMINN
BÚINN!
HVAÐ
SEGIRÐU,
FÉLAGI?
ÞÚ ERT
SKRÝTINN.
SKO, ÞESSI
„MJALLHVÍT“
ÁTTI ERFITT MEÐ
SVEFN, SKILURÐU?
ÞANNIG AÐ, HÚN FÓR
TIL NORNAR SEM GAF HENNI
EPLI SEM HÚN BORÐAÐI
OG SOFNAÐI.
OG FYRST SVAF HÚN ROSA
VEL - ÞÚ VEIST, FYRSTI GÓÐI
SVEFNINN Í MARGAR VIKUR - EN
ÞÁ KOM HEIMSKUR PRINS OG
KYSSTI HANA SVO HÚN VAKNAÐI!
ÉG DÁIST AÐ HÆFILEIKA
ÞÍNUM TIL AÐ SKYNJA RAUN-
VERULEGT INNTAK ÆVINTÝRA.
EINS OG ÉG SÉ ÞAÐ,
ÞÁ ER EKKI TIL Í
DÆMINU AÐ HÖRFA ...
... EN REYNDAR VIRÐIST
ÁHLAUP EKKI VERA
MÖGULEIKI HELDUR.
VÆNA MÍN,
HEFURÐU SÉÐ
LÁRVIÐARSVEIG-
INN MINN?
JÁ, HEFURÐU ALDREI
HEYRT TALAÐ UM
FLÖSUSJAMPÓ?
Víkverja brá í brún þegar hann lasþýdda frétt á íslenskum vefmiðli
þess efnis að mánudagar væru ekki
verstu dagar vikunnar eins og marg-
ir halda. Þar með talinn Víkverji.
x x x
Í fréttinni kom fram að bak viðþessa álitsherferð mánudaga
væru bandarískir vísindamenn sem
lögðu könnun fyrir 340 þúsund
manns í leit sinni að sannleikanum
um hina illræmdu „slæmu mánu-
daga“. Kom þá í ljós að yfirleitt voru
þátttakendur ekki í verra skapi á
mánudögum en aðra daga. Í raun
var aðeins einn vikudagur sem skar
sig úr, og það voru föstudagar. Þá
voru þátttakendur ofsakátir, enda
helgarfrí í nánd.
x x x
Víkverja hefur lengi grunað aðfréttir af niðurstöðum slíkra
rannsókna séu svo einfaldaðar út-
gáfur að í raun sé aðeins um skrum-
skælingu á sannleikanum að ræða.
En þrennt stendur upp úr þessari
frétt. Í fyrsta lagi að 340.000 þátt-
takendur í bandarískri könnun hafa
annaðhvort rangt fyrir sér, lugu til
um skap sitt eða svöruðu könnuninni
á föstudegi. Í öðru lagi að sam-
kvæmt fréttinni var tilhlökkunin fyr-
ir helgarfríinu meiri gleðigjafi en
helgarfríið sjálft.
x x x
Í þriðja og síðasta lagi verður aðsegjast eins og er að þegar Vík-
verji skrifar þessi orð, á mánudegi,
er honum algjörlega hulið af hverju
vísindamenn sjá ástæðu til að fram-
kvæma slíka könnun, og enn fremur
að til sé einhver sem fæst til að fjár-
magna hana.
x x x
Hver á hér hagsmuna að gæta?Hver fær 340.000 sjálfboðaliða
til að ljúga svona upp í opið geðið á
okkur hinum? Þetta er Víkverja
mikil ráðgáta og ekki á hans auma
mannlega valdi að skilja. Eftir
stendur hins vegar að hér eftir mun
Víkverji nálgast mánudaga af enn
meiri varúð og tortryggni en áður.
Og var þó vart á það bætandi.
Gleðilegan þriðjudag.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Úr fjarlægð birtist Drott-
inn mér: „Með ævarandi elsku hef ég
elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð
mína haldast við þig.“ (Jer. 31, 3.)
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
VINNAN
VERÐUR
SVO MIK
LU
SKEMM
TILEGRI
!
Dynjandi hefur úrval af
heyrnahlífum frá 3M.
Komdu og skoðaðu úrvalið.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is