Morgunblaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 31
lensku verk að í mörgum þeirra höf-
um við ýtt á fólk að búa til verk fyrir
hátíðir,“ segir Ragnheiður að lokum,
spurð að því hvort hátíðin fari vax-
andi með ári hverju.
Dagskrá hátíðarinnar og frekari
fróðleik um sýnendur, verk og sýn-
ingarstaði má finna á vefsíðu
hennar, lokal.is. Hátíðin verður
með miðstöð á Kex Hosteli þar
sem nálgast má upplýsingar og
miða kl. 12-19 á meðan á hátíðinni
stendur.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2012
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavík-
ur, og Kristín Steinsdóttir, formaður
Rithöfundasambands Íslands, und-
irrituðu gjafaafsal í fyrradag, 18.
ágúst, á afmælisdegi Reykjavíkur-
borgar, sem felur í sér að Reykja-
víkurborg gefur Rithöfunda-
sambandi Íslands Gunnarshús, að
Dyngjuvegi 8 í Reykjavík, í tilefni af
því að Reykjavík er ein af bók-
menntaborgum UNESCO. Þá gaf
Gunnar Björn Gunnarsson, fulltrúi
fjölskyldunnar og stjórnarformaður
Gunnarsstofnunar, Rithöfunda-
sambandinu ljósmyndir úr einka-
safni af heimili Gunnars Gunn-
arssonar og Franziscu Antoniu
Josephine Jörgensen eiginkonu
hans. Við undirritunina las Pétur
Gunnarsson rithöfundur ljóð Hann-
esar Péturssonar ,,Í húsi við
Dyngjuveg“ og Sigurður Pálsson
rithöfundur sagði söguna um fræið
bak við tréð eða tilurð þess að borg-
in keypti húsið á sínum tíma, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu.
Gunnarshús teiknaði Hannes Kr.
Davíðsson arkitekt og var það byggt
á árunum 1950–52 sem heimili
Gunnars og Franziscu. Reykjavík-
urborg keypti húsið árið 1991 og
hafði þá verið hvatt til þess af Rit-
höfundasambandi Íslands og Banda-
lagi íslenskra listamanna. Húsið er
friðað og er nú miðstöð yfir 400 með-
lima Rithöfundasambandsins og er
Gunnars og verka hans minnst í því
með fjölda viðburða. 6. október n.k.
býður Rithöfundasambandið til op-
ins húss í Gunnarshúsi.
Morgunblaðið/Eggert
Gjöf Jón Gnarr og Kristín Steinsdóttir við undirritun í fyrradag.
Lykillinn að Gunnarshúsi
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
„Þetta er hugmynd sem ég hef lengi verið með í kollinum en fann svo
loks farveg,“ segir Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona um einleiks-
verkið Kameljón sem verður frumsýnt á leiklistarhátíðinni LÓKAL á
morgun, 22. ágúst, í Þjóðleikhúsinu.
„Mig langaði til þess að búa til verk um persónu sem dettur inn í
fólk og aðstæður, einskonar kameljón. Þetta er eiginleiki sem ég kann-
ast við hjá sjálfri mér þótt verkið byggist ekki beint á minni eigin
reynslu,“ segir Álfrún sem skrifaði verkið ásamt systur sinni, Mar-
gréti Örnólfsdóttur, og Friðgeiri Einarssyni sem leikstýrir einnig
verkinu.
Hugmyndarík systir
„Áður hef ég búið til tvær sýningar á svipaðan hátt með félögum
mínum í leikhópnum Ég og vinir mínir en núna langaði mig að hafa rit-
höfund um borð við sköpun verksins. Ég ákvað að fá Margréti systur
mína til liðs við mig því hún er svo hugmyndarík og þar að auki fanta-
góður penni. Hún þekkir leikhúsið vel þó svo hún hafi meira fengist við
bókaskrif og kvikmyndagerð en leikritun fram að þessu,“ segir Álfrún
og viðurkennir að vissulega hafi verið áhætta að hefja svo náið sam-
starf með systur sinni. „Við þekkjumst auðvitað ansi vel en þetta er í
fyrsta skiptið sem við vinnum saman. Það getur gengið á ýmsu í svona
sköpunarferli en sem betur fer gekk það alveg ótrúlega vel og hefur
jafnvel gert okkur enn nánari,“ segir hún. „Það er mjög eðlilegt og
óhindrað flæði á milli okkar, mér leið stundum eins og ég væri með
aukaheila sem gat orðað það sem ég var að pæla. Svo má auðvitað ekki
gleyma þriðja heilanum, honum Friðgeiri, hann kom með gott mót-
vægi við systravélina.“
Meðvirkni og áhrifagirni
Nafn leikverksins vísar til persónu þess sem hagar sér um margt
eins og kameljón að sögn Álfrúnar. „Það geta flestir tengt við eig-
inleika kameljónsins og það er hægt að kalla þetta meðvirkni, áhrifa-
girni og jafnvel hrifnæmi,“ segir hún og bendir á að umræddir eig-
inleikar geti bæði reynst kostir og gallar. „Þetta geta verið frábærir
eiginleikar en um leið haft þær afleiðingar að fólk týnir sjálfu sér,“
bætir Álfrún við. „Sú tilfinning er einmitt það sem kameljónið er að
ganga í gegnum, leitina að sinni eigin persónu. Hún glímir við að svara
spurningum á borð við: „Hver er hin eina sanna ég?“ og „Hvernig á ég
að finna hana?“. Kameljónið hefur greinilega lesið nokkrar sjálfshjálp-
arbækur og reynt mikið að finna þetta eina sanna sjálf,“ segir Álfrún
sem fer sjálf með hlutverk hins síbreytilega kameljóns í verkinu.
Áhorfendur eru mikilvægir en hættulegir kameljóninu
Hún segir einleiksformið vera krefjandi en í raun það eina sem hafi
komið til greina. „Það tók smá-tíma að finna leið til að láta þetta ganga
upp, þar sem vandamál persónunnar er að hún litast af öðru fólki en ég
er bara ein á sviðinu,“ bendir Álfrún á en bætir við að þessi hindrun
hafi í raun hjálpað þeim að gera verkið jafnvel meira spennandi. „Við
erum alla vega orðin mjög ánægð með niðurstöðuna og hlökkum til að
fá fullan sal af áhorfendum sem eru kameljóninu mjög mikilvægir en
einnig hættulegir.“
Einskonar kameljón
Álfrún Helga Örnólfsdóttir flytur einleikinn Kameljón á leiklistarhátíðinni
LÓKAL sem hefst á morgun Systir hennar Margrét kom að skrifum verksins
Ljósmynd/Hulda Sif Ásmundsdóttir
Kameljón „Mig langaði til þess að búa til verk um persónu sem dettur inn í fólk og
aðstæður, einskonar kameljón,“ segir Álfrún Örnólfsdóttir.
ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR!
LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR.
350 KR. SKYRTAN
hreinsuð og pressuð
-ef komið er með fleiri en 3 í einu
Fullt verð 580 kr.
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
- NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is Efnalaug - Þvottahús