Morgunblaðið - 22.08.2012, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. Á G Ú S T 2 0 1 2
Stofnað 1913 195. tölublað 100. árgangur
DRAUMURINN VARÐ
AÐ VERULEIKA
ÁRATUGUM SÍÐAR
SIMON
TOLDHAM
DJASSAR
DANIR STYRKJA
ÍSLENSKA
STUTTMYND
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR 33 ÞROSKASÖGUR 30INDVERSKUR MÁLARI 10
Bændur á þremur jörðum í Með-
allandi í Skaftárhreppi stunda nú í
sameiningu ræktun á hveiti, byggi,
nepju og repju og ætla sér að stór-
auka framleiðsluna á næstu árum.
Þeir eru nú að reisa 300 fermetra
þurrkunarstöð og geymslu fyrir
450 tonn af korni. Ræktað er á um
60 hekturum en þær ætla að brjóta
60 ha til ræktunar í ár og tvöfalda
ræktunina á næsta ári. »6
Engir meðalbændur
í Meðallandi
Gróður Bændur gæta að uppskerunni.
Strandveiðar sumarsins skiluðu
hátt í 2,7 milljörðum króna í afla-
verðmæti. Aflahæstu bátarnir fengu
vel yfir 30 tonn og má áætla verð-
mæti þess afla um 10 milljónir. 759
bátar fengu leyfi til strandveiða og
hafa þeir aldrei verið eins margir.
Lundey ÞH var aflahæst á vertíð-
inni með 35,4 tonn í 40 róðrum.
Flestir bátar reru á vesturvæðinu
frá Arnarstapa til Súðavíkur og
gátu þeir aðeins farið í rúmlega 20
róðra á fjögurra mánaða
tímabili þar
sem afli er
takmark-
aður við
ákveðið
hámark í hverjum mánuði. Fram-
kvæmdastjóri Landssambands smá-
bátaeigenda segir að vertíðin hafi
gengið vel og strandveiðarnar hafi
fest sig í sessi. Hann vill að hætt
verði að miða við ákveðið aflahá-
mark. Dæmi eru um að fjórir ætt-
liðir hafi verið á strandveiðunum í
ár. Í samtali við Unnstein Þráinsson
kemur fram að Unnsteinn, sonur
hans, faðir og afi og amma sóttu í
strandveiðikerfinu í sumar á bátum
frá Höfn og Djúpavogi.
Sjálfur er hann nú
af fullum
krafti á
makrílveiðum.
»14
Aflaverðmætið úr strandveiðum
sumarsins var hátt í 2,7 milljarðar króna
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Það sem af er ári hafa sex níger-
ískar konur sótt um hæli hér á
landi en þær eru ýmist barnshaf-
andi eða komu með börn sín með
sér. Að sögn Þorsteins Gunnars-
sonar, staðgengils forstjóra Út-
lendingastofnunar, eru mál þeirra
í vinnslu hjá Útlendingastofnun.
Stofnunin hefur til skoðunar mál
einnar nígerískrar konu til
viðbótar.
Konurnar voru ýmist stöðvaðar í
Leifsstöð eða gáfu sig fram þegar
þær voru komnar inn í landið.
Sumar þeirra voru með fölsuð skil-
ríki. „Þær hafa í sjálfu sér ekki
önnur réttindi en aðrir hælisleit-
endur. Ávallt er reynt að tryggja
öllum þjónustu miðað við aðstæður
og þarfir hverju sinni. En þegar
ákvarðanir eru teknar í málum þar
sem börn eiga í hlut er ákvörðun
einnig tekin með hagsmuni barna
að leiðarljósi í samræmi við barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna,“
segir Þorsteinn aðspurður hvort
sú staðreynd að konurnar eru ým-
ist barnshafandi eða með börn hafi
áhrif á afgreiðslu viðkomandi
mála.
Börn fylgja foreldrum sínum
Þótt hælisleitendur eignist börn
myndar það ekki sjálfkrafa bú-
seturétt hér á landi að sögn Þor-
steins. „Börnin fylgja foreldrum
sínum þannig að ef foreldrið á lög-
heimili eða á að dveljast annars
staðar fylgir barn foreldrum
sínum.“
Konurnar komu ekki saman til
landsins og lítið er vitað um hvort
þær hafi einhver tengsl.
Þorsteinn bætir við að hælisleit-
endur fái þjónustu í samræmi við
samninga sem Útlendingastofnun
hefur gert, m.a. við Reykjanesbæ.
„Í öllum tilfellum er fólki tryggður
aðgangur að heilbrigðis- og lækn-
isþjónustu eftir þörfum. Ef kona
er ólétt og líða fer að barnsburði
er brugðist við því.“ Þess má geta
að ein kvennanna hefur þegar
eignast barn hér á landi.
Hælisleitendum fjölgar
Hælisleitendur hafa í auknum
mæli sótt til Íslands í ár en um
miðjan júlí höfðu 37 einstaklingar
sótt um hæli hér á landi frá upp-
hafi árs. Til samanburðar höfðu 22
umsóknir borist á sama tíma árið
2011. Kristín Völundardóttir, for-
stjóri Útlendingastofnunar, hefur
látið hafa eftir sér að umsóknir
gætu orðið um og yfir hundrað í
árslok.
Sex nígerískar
konur hafa
leitað hælis
Ýmist með börn eða barnshafandi
Taka tillit til hagsmuna barnanna
Hælisleitendur
» Lögfræðingur hjá Útlend-
ingastofnun sem sinnir ein-
göngu afgreiðslu hælis-
umsókna sem eru til efnis-
meðferðar getur afgreitt tvö
mál í mánuði.
» Útlendingastofnun hafði 14
umsóknir hælisleitenda til um-
sóknar í árslok árið 2009, 22 í
árslok 2010 og 44 í árslok
2011.
» Beinn kostnaður af umönn-
un eins hælisleitanda í eitt ár
nemur um 2,6 milljónum
króna.
Grunnskólar landsins hefjast í dag. Yfirleitt fylgir því mikil spenna að
hefja skólagönguna, ekki síst hjá yngstu nemendunum. Ekki er verra að
undirbúa sig og í gær prófaði Kópavogsbúinn Óliver Kristinsson að ganga
leiðina í skólann, ásamt mömmu sinni, Tinnu Dögg Ragnarsdóttur.
Morgunblaðið/RAX
Menntavegurinn prófaður
áður en skólabjallan hringir
Íslenski stoðtækjaframleiðandinn
Össur þarf að greiða um tvær millj-
ónir dollara (239 milljónir króna) á
næsta ári aukalega í sérstakan
skatt sem lagður verður á öll heil-
brigðisfyrirtæki í Bandaríkjunum,
nái Obamacare, heilbrigðislöggjöf
Baracks Obama, fram að ganga í
núverandi mynd.
Jón Sigurðsson, forstjóri Öss-
urar, segir að verði skatturinn að
veruleika dragi úr sölu fyrirtækis-
ins til skamms tíma, en Bandaríkin
eru mikilvægasti markaðurinn
fyrir Össur. » 18
AFP
Forseti Hart er deilt um heilbrigðislöggjöf
Obama í kosningabaráttunni.
Össur þarf jafnvel
að greiða um 239
milljónir í aukaskatt
„Þegar embættið
tók til starfa nán-
ast hálfu ári eftir
hrunið, þá beið nú
ekki eftir okkur
einhver snyrti-
legur stafli af
málum. Málin
hafa verið að ber-
ast frá því að
embættið tók til
starfa – og eru
vel að merkja enn að berast,“ segir
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari.
Í vor sagði Ólafur Þór að mörg
mál væru á lokastigi og að einhver
kraftur ætti að verða í þessu í upp-
hafi sumars. „Það hefur gengið
eftir,“ segir hann.
Í upphafi hafi verið gert ráð fyrir
að reyna að ljúka rannsóknum sem
flestra mála fyrir árið 2014 og enn sé
stefnt að því marki.
Bráðum verða liðin fjögur ár frá
hruni en Ólafur Þór bendir á að all-
mörg þeirra mála sem embættið hafi
til meðferðar hafi sex ára refsi-
ramma og fyrnist því á tíu árum.
„Það er nú borð fyrir báru.“ »20
Borð fyrir báru hjá
sérstökum saksóknara
Ólafur Þór
Hauksson
Ný skáldsaga
eftir Þórarin
Eldjárn kemur út
í haust, en rithöf-
undurinn af-
kastamikli er
með mörg járn í
eldinum. Annan í
jólum frumsýnir
Þjóðleikhúsið
leikritið Macbeth
í nýrri þýðingu
Þórarins og hann ljóðskreytti tvær
barnabækur eftir Eddu Heiðrúnu
Backman, sem koma út í haust.
Þórarinn bendir á að hann á
merkisafmæli á næsta ári en þá
verður hann 64 ára. »26
Þórarinn Eldjárn
með skáldsögu
Þórarinn
Eldjárn