Morgunblaðið - 22.08.2012, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Þú átt betri samskipti
Þú verður virkur þáttakandi á mannamótum, getur sinnt
vinnu og námi betur og tekið þátt í félagslífinu með ReSound
heyrnartækjum því þau hjálpa þér að halda uppi samræðum í
hvaða hljóðumhverfi sem er.
Fáðu heyrnartæki til reynslu og heyrðu lífið hljóma eins og það er.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Komdu í greininguhjá faglærðumheyrnarfræðingi
Sími 568 5170
Chanel kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 22-24 ágúst
Snyrtifræðingur frá Chanel kynnir nýju haustlitina og veitir faglega
ráðgjöf um allt það nýjasta frá Chanel.
Verið velkomin
Haustið 2012 frá Chanel er komið
Efnahags- og viðskiptaráðherra ætl-
ar að leggja fram frumvarp um neyt-
endalán á ný í upphafi þings í sept-
ember og verður það lítið breytt frá
fyrra frumvarpi. Frumvarpið nær til
svokallaðra smálána.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá efnahags- og viðskiptaráðuneyt-
ið. Frumvarp sem ráðherra lagði
fram á síðasta þingi var ekki afgreitt
á síðasta þingi.
Veiting smálána fellur ekki undir
ákvæði núgildandi laga um neyt-
endalán þar sem að lánssamningar
sem gilda skemmri tíma en þrjá
mánuði eru undanskildir gildissviði
laganna. Í frumvarpi til nýrra laga
um neytendalán er lagt til að ákvæði
þess gildi um öll neytendalán óháð
fjárhæð, þ.m.t. smálán. Frumvarpið
tekur tillit til laga og reglna sem
gilda á EES-svæðinu.
Tekið á smálánum
Væntanlegt frumvarp mun eink-
um taka á smálánum með tvennum
hætti. Í öllum auglýsingum, sem
varða lánssamninga þar sem gefnar
eru upplýsingar um vexti eða tölur
varðandi kostnað neytandans af lán-
inu, verður gerð krafa um að fram
komi staðlaðar upplýsingar, s.s. um
útlánsvexti, árlega hlutfallstölu
kostnaðar, lánsfjárhæð og lengd
lánssamnings. Fyrir og við samn-
ingsgerðina sjálfa eru síðan enn ít-
arlegri upplýsingakröfur. Neytend-
ur ættu því að vera vel upplýstir um
þau kjör sem lánveitendur bjóða.
Frumvarpið kveður einnig á um að
mat á lánshæfi neytanda skuli fara
fram áður en lánssamningur er gerð-
ur.
Samkvæmt frumvarpinu mun
neytandi hafa rétt til að falla frá
samningi innan 14 daga án þess að
tilgreina ástæðu. Slík réttindi hafa
hingað til aðeins átt við um láns-
samninga sem komið er á með fjar-
sölu.
Eftirlit með framkvæmd laga um
neytendalán er hjá Neytendastofu
og gerir frumvarpið ráð fyrir að svo
verði áfram. Lagt er til að Neytenda-
stofa muni hafa ríkar heimildir til að
bregðast við brotum gegn lögunum
og ákvörðunum stofnunarinnar.
Frumvarp um
neytendalán
lagt fram aftur
Töf Frumvarp um neytendalán
verður lagt fram á ný á næsta þingi.
Frumvarpið nær yfir svonefnd smálán
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Samtök atvinnulífsins telja engar
sýnilegar forsendur fyrir meiri launa-
hækkunum 1. febrúar 2013 umfram
það sem samið hefur verið um í kjara-
samningum.
„Málið er að við
sáum að greining-
ardeild Íslands-
banka var að gefa
frá sér verðbólgu-
spár fyrir næsta
ár og þar var verið
að láta að því
liggja að það væri
ekkert ólíklegt að
laun myndu
hækka umfram
það sem samið er
1. febrúar. Við sjáum enga forsendu
til þess,“ segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins. Hann telur þó allar líkur á því
að kaupmáttur muni aukast.
„Við sjáum fram á það að þegar
menn fara að skoða þróun mála í jan-
úar þá eru yfirgnæfandi líkur á því að
kaupmáttur muni hafa aukist. Það er
möguleiki á því að opna kjarasamn-
ingana miðað við janúarlok en það eru
ákveðnar forsendur sem liggja til
grundvallar. Meginforsendan snýr að
kaupmættinum,“ segir Vilhjálmur.
Óþarfa væntingar
„Við viljum ekki að menn fari að
búa til einhverjar væntingar um meiri
launahækkanir í febrúar sem síðan
yrði grundvöllur fyrir hærri verð-
bólguspám en ella á næsta ári. Við
viljum ekki að það sé verið að spinna
upp verðbólguvæntingar á þessum
forsendum. Þess vegna erum við að
senda þetta frá okkur,“ segir fram-
kvæmdastjórinn. Í yfirlýsingu frá
Samtökum atvinnulífsins sem send
var út í gær kemur einnig fram að litl-
ar líkur séu á því að krónan muni
lækka mikið á næstu mánuðum líkt
og segir í spá greiningardeildarinnar.
„Það er ekkert hægt að segja að
eitthvað hafi farið úrskeiðis hjá grein-
ingardeild Íslandsbanka. Ef þetta er
þeirra skoðun þá er hún bara það,“
segir hann að lokum.
Ekki forsend-
ur fyrir meiri
hækkunum
Vilhjálmur
Egilsson
Gagnrýnir verðbólguspá grein-
ingardeildar Íslandsbanka
Úr yfirlýsingu SA
» Í samningunum er opnunar-
ákvæði en til að virkja það
þurfa forsendur að hafa brost-
ið. Meginforsendan er að kaup-
máttur hafi aukist.
» Yfirgnæfandi líkur eru til
þess að kaupmáttarforsenda
kjarasamninganna standist
enda hafa laun hækkað tölu-
vert umfram verðlag á árinu.
» Gengi krónunnar sem hefur
farið hækkandi að undanförnu
mun væntanlega ekki lækka
skarpt aftur á næstu mán-
uðum.
„Flestar hækkanir á þjónustu á veg-
um borgarinnar lenda á foreldrum
og öðrum uppalendum því yfirleitt
er um að ræða þjónustu er tengist
börnum og unglingum.“ Þetta segir í
ályktun Heimilis og skóla – lands-
samtaka foreldra.
Í ályktuninni segir að foreldrar
hafi kvartað undan verðhækkun á
nemakortum í Strætó, en þau kost-
uðu 20 þúsund krónur í fyrra og
giltu í níu mánuði en 38.500 krónur
núna og gilda í ár.
„Vissulega gilda kortin lengur, en
margir framhaldsskólanemar á höf-
uðborgarsvæðinu nýta sér einkum
Strætó yfir skólamánuðina. Auk
þess eru það yfirleitt foreldrar sem
standa straum af þessum kostnaði
og þykir okkur sífellt seilst lengra í
pyngju þeirra.“
Á það er bent að hækkun gjalda,
auka skipulagsdagar og fleira í þeim
dúr sé kostnaður sem leggist beint á
fjölskyldur. Marga muni um minna,
segir í tilkynningunni.
Hækkanir koma við
pyngju foreldra
Við vinnslu fréttar á forsíðu blaðsins
í gær voru þau mistök gerð að um-
mæli, sem höfð voru eftir Aðal-
björgu Birnu Guttormsdóttur, deild-
arstjóra hjá Umhverfisstofnun, voru
eignuð Kristínu S. Jónsdóttur, sér-
fræðing hjá UST. Hlutaðeigandi eru
beðnar velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
- nýr auglýsingamiðill
569-1100