Morgunblaðið - 22.08.2012, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
falleg minning á fingur
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
16
6
6
Giftingarhringar
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.si
M
ig hafði dreymt um að
koma til Íslands frá
því ég var lítill
drengur. Draumur-
inn varð svo að veru-
leika fyrir nokkrum árum þegar ég
kynntist íslenskri myndlistarkonu,
Öldu Sigurðardóttur, í gegnum vin
minn í Kalkútta, en hún kaupir af
honum indverskar vörur sem hún sel-
ur í verslun sinni á Selfossi. Hún bauð
mér að koma hingað til lands og halda
myndlistarsýningu, sem ég og gerði.
Núna er ég að koma hingað í fjórða
sinn og er orðinn ástfanginn af Ís-
landi,“ segir Baniprosonno, listmálari
frá Indlandi, sem opnaði sýningu á
málverkum sínum og teikningum í
Reykjavík Art Gallery á Menningar-
nótt. Tilefni Íslandsheimsóknar hans
í þetta sinn er áttræðisafmæli hans
núna í ágústmánuði.
Hefur þurft að hafa fyrir því
að lifa af myndlistinni
„Ég sá Ísland fyrst á hnattlíkani
í skólanum mínum á Indlandi þegar
ég var sex ára. Aðeins einn bær var
merktur inn á kortið og hann hét
skrýtnu nafni: Reykjavík. Þá ákvað
ég að fara til þessarar litlu eyju einn
góðan veðurdag. Það varð ekki fyrr
en ég var kominn á áttræðisaldur, en
ég var þó alltaf með hugann við þessa
eyju á ferðum mínum um heiminn,
þar sem ég hef víða haldið myndlist-
arsýningar. Ævinlega þegar ég stóð
við opið haf, þá benti ég út á sjó og
sagði: Þarna einhvers staðar er
Reykjavík. Ég ætla þangað,“ segir
hann og hlær en bætir við af meiri al-
vöru að það skipti miklu máli í lífinu
Halda skal fast
í drauma sína
Hann sá Ísland fyrst á hnattlíkani í skólanum sínum á Indlandi þegar hann var
sex ára og ákvað að fara þangað einn góðan veðurdag. Áratugum síðar varð
draumurinn að veruleika. Indverski listmálarinn Baniprosonno heillaðist af
landi og þjóð og heldur nú upp á áttræðisafmælið með myndlistarsýningu.
Listasmiðja Þau hjónin njóta þess að starfa með íslenskum börnum.
Morgunblaðið/Kristinn
Fákur og kona Íslenski hesturinn hefur verið Baniprosonno innblástur.
Ef þér finnst skemmtilegt að skoða
fallega hluti – sama hvort þeir eru
í formi innanhússhönnunar, fatn-
aðar eða umhverfis – ættir þú að
líta inn á síðuna inspired-design.
Þar er allt fullt af fallegum mynd-
um sem gleðja augað og sýna
manni hvað lífið er fullt af fal-
legum og litríkum hlutum.
Á síðunni má sjá myndir af ótrú-
lega rómantískum stofum, fal-
legum borðskreytingum, blúnd-
ustuttbuxum, krúttlegum
gæludýrum, girnilegum kökum og
fullt af fallegu glingri og fylgi-
hlutum. Að skoða myndirnar á
þessari vefsíðu er í raun eins og að
skoða glæsilegt hönnunar- og
tískublað. Sjón er sögu ríkari og
hægt að gleyma sér góða stund á
þessari vefsíðu.
Vefsíðan www,inspired-design.tumblr.com
Krútt Á vefsíðunni er að finna fallegar myndir af öllu milli himins og jarðar.
Glingur, skreytingar og gæludýr
Aldrei er góð vísa of oft kveðin og
það er alveg lífsnauðsynlegt að borða
vel af ávöxtum og grænmeti. Enda
eru slíkar fæðutegundir stútfullar af
alls konar mikilvægum vítamínum og
bætiefnum sem efla skrokkinn.
Ávaxtasalat er auðvelt að taka með
sér í skólann eða vinnuna og er
skemmtilegt bæði fyrir munn og
augu að borða slíkt. Svo er gott að
muna eftir engifer og öðrum slíkum
„töfrahráefnum“ nú þegar margir eru
farnir að sjúga upp í nefið og haustið
nálgast með kvefpestum sínum. Þá
er betra að reyna að styrkja ónnæm-
iskerfið eins og hægt er.
Endilega …
… borðið ávexti
og grænmeti
Morgunblaðið/Valdís Thor
Fallegt Litríkir ávextir í krukku.
Það er gömul saga og ný að já-
kvæðni skiptir miklu máli í daglegu
amstri. Eins skiptir máli að halda
innvolsinu jafn góðu og hylkinu utan
um. Til að fara nú vel út í daginn
má mæla með því að stilla vekj-
araklukkuna aðeins fyrr en venju-
lega. Þannig getur þú gefið þér að-
eins lengri tíma í að vakna og þarft
ekki að hlaupa um heimilið í stres-
skasti með morgunverðarskál í ann-
arri hendi. Næsta ráð hljómar eins
og klisja en það getur virkað að búa
til lista yfir það sem gleður mann.
Heilinn gleymir nefnilega stundum
öllu því jákvæða og þá er fínt að
eiga listann til að renna yfir ef
manni líður ekki nógu vel.
Þriðja ráðið hljómar undarlega en
ku virka og það er að þefa af sí-
trónu. Vísindamenn við háskólann í
Tel Aviv komust að því með rann-
sóknum að sítruslykt og þá sér-
staklega af sítrónu getur dregið úr
þunglyndi og bætt líðan okkar. Sí-
trónulyktin ku kynda undir serótón-
ínbúskap heilans en það hormón sér
einmitt til þess að andlega hliðin
vísi frekar upp en niður. Þessi ráð er
að finna á www.ivillage.co.uk.
Betri heilsa
Sítrónulykt kyndir undir
seratónínbúskapnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sítrusilmur Það ku vera mjög gott fyrir andlega heilsu að þefa af sítrónum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.