Morgunblaðið - 22.08.2012, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Eggert
Íslandsvinir Þau eru lífsglöð Baniprosonno listmálari frá Indlandi og kona hans Putul, hér í Reykjavík Art Gallery.
að sleppa ekki hendi af draumum sín-
um. „Ég lærði það snemma á lífsleið-
inni og fer eftir því. Mig dreymdi um
að verða myndlistarmaður og lifa af
því og ég lét þann draum rætast, þó
ég hafi sannarlega þurft að hafa mik-
ið fyrir því, þetta hefur verið hörð
barátta. En allt er það þess virði, því
það fyllir mann hamingju að fylgja
hjartanu. Á listamannsferli mínum
hef ég kynnst frábæru fólki og það er
líka dýrmætt.“
Börnin kenna mér mikið og
halda mér ungum
Hveragerðisbær hefur tekið
Baniprosonno og konu hans opnum
örmum í nánu samstarfi við Listasafn
Árnesinga. Þau hafa dvalið í lista-
mannahúsi bæjarins og haldið fjöl-
mörg námskeið og listasmiðjur fyrir
börn og listgreinakennara. Síðast
þegar þau komu til Íslands dvöldu
þau einnig á Gullkistunni á Laugar-
vatni og voru með listasmiðjur fyrir
börnin þar. „Ég hef í öll skiptin boðið
upp á listasmiðjur fyrir börn á Ís-
landi, rétt eins og ég geri ævinlega
þegar ég held sýningar annars staðar
í heiminum. Það gefur mér mikið að
vinna með börnum. Þau kenna mér
ótalmargt, hjálpa mér að viðhalda
barninu í mér og þau halda mér ung-
um. Ég reyni að kenna þeim hversu
áríðandi það er að halda fast í drauma
sína. Ég hjálpa þeim að vekja sköp-
unarkraftinn í sér og ég læt þau með-
al annars búa til skúlptúra úr trjám
og pappír, furðudýr og fleira. Ég
reyni að hafa þetta skemmtilegt, með
fjörugri tónlist og segi þeim sögur,“
segir Baniprosonno en hann hefur
skrifað margar sögur fyrir börn.
„Konan mín Putul hjálpar mér alltaf
með listasmiðjurnar fyrir börnin,
enda er hún kennari og hefur unnið
með börnum í áratugi. Hún kenndi
börnum frá Tíbet sem komu yfir til
Indlands árið 1949 þegar Kínverjar
tóku þar yfir. Við erum afar stolt af
því að Indland skuli hafa veitt þessum
börnum skjól.“
Fegurð og ró íslenska hestsins
veitir mér innblástur
Hinn síungi Baniprosonno er
sjálfmenntaður listamaður og segist
hafa fæðst með þörf til að teikna. „Ég
var alltaf að teikna og mála sem barn,
en ég hafði engin tól eða efnivið til
þess. Ég dó ekki ráðalaus, heldur bjó
mér til pensil og ég bjó mér til liti úr
kolunum sem notuð voru til að elda
matinn,“ segir hann og bætir við að
nóttin sé hans tími. „Þá teikna ég
mest og þegar konan mín fer á fætur
er gólfið stundum þakið nýjum verk-
um sem ég hef leyft að flæða undan
fingrum mínum yfir nóttina.“ Bani-
prosonno og Putul búa í litlum bæ í
Himalajafjöllunum í Norður-Indlandi
en þau dvelja líka langdvölum í Kal-
kútta. „Við höfum farið víða um ver-
öld og séð margt á lífsleiðinni, en þeg-
ar við komum hingað til litla Íslands
þá heilluðumst við algerlega af
óbyggðunum og víðáttunni. Náttúran
hér er líka svo fjölbreytt. Og fólkið er
alveg dásamlegt. Íslenski hesturinn
hefur líka verið mér mikil andagift og
þess sér merki í nýjustu verkum mín-
um. En verkin mín bera þess einnig
merki að landið mitt Indland er land
litadýrðar, fólksfjölda og fjölbreytts
dýralífs.“
Morgunblaðið/Kristinn
Fíll, fuglar og fólk Áhrifa litríka og fjölbreytta Indlands gætir í verkunum.
Baniprosonno ætlar að dvelja á Ís-
landi í tvo mánuði og sýningin
verður opin alla daga til 2. sept-
ember. Öll verkin eru til sölu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
www.volkswagen.is
Frelsi til
að ferðast
Volkswagen Tiguan
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan
Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá
5.790.000 kr.
Fullkomið leiðsögukerfifyrir Ísland
Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir
aðeins 5,8 l á hverja 100 km.
F
jölskylduhátíðin „Tvær
úr Tungunum“ verður
haldin í Reykholti í
Biskupstungum næst-
komandi laugardag, 25.
ágúst. Margt verður um að vera fyrir
fólk á öllum aldri. Um morguninn
verður hægt að læra undirstöðuatriði
í golfi og fara í knattþrautir sem m.a.
Atli Eðvaldsson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, stjórnar. Fólk getur líka
farið í gönguferð með leiðsögn sagn-
fræðings um svæðið, eða skellt sér í
svokallað rúgbrauðsrölt að hvernum
sem er á svæðinu. Eftir hádegi eru
Aratunguleikarnir í gröfuleikni 2012
sem er afar sérstök keppni, en þar
sýna menn hæfni í að stjórna stórri
gröfu og keppa um bikar. Í fyrra
skáru menn til dæmis niður gúrku of-
an á brauð með stórri gröfu, máluðu
tölustafi á spjald og sitthvað fleira.
Mikil leynd er yfir þrautunum í ár,
svo enginn geti æft sig fyrirfram.
Sterkustu bændur Bláskógabyggðar
takast á í þríþrautinni „járnkarlin-
um“ og Bændaglíma Suðurlands 2012
verður einnig haldin þennan dag, en
hún er haldin til minningar um Sig-
urð Greipsson glímukappa. Svo
bregða menn á leik og takast á í létt-
um þrautum. Tjaldsvæðið í Reykholti
er opið og frítt í sundlaugina sem er
við hliðina. Hápunkturinn verður svo
sveitaball í Aratungu um kvöldið. Þar
koma fram margir landsþekktir
skemmtikraftar, m.a. Þórhallur Þór-
hallsson (sonur Ladda) sem var
fyndnasti maður landsins 2007.
Söngdúettinn „Þú og ég“ kemur fram
og Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar leikur fyrir dansi. Þuríður
Sigurðardóttir söngkona stýrir sam-
komunni. Það eru „Vinir Tungna-
rétta“ sem standa fyrir sveitaballinu,
en það er áhugahópur sveitunga sem
hafa í sjálfboðavinnu unnið að end-
urnýjun og uppbyggingu Tungna-
rétta.
Gestir syngja með á söngkvöldi
Ótal margt verður hægt að gera
sér til dægrastyttingar utan við dag-
skrá, til dæmis verður veitingastað-
urinn Kaffi Klettur opinn alla helgina
og á morgun fimmtudag verður þar
lifandi tónlist. Á föstudag verður mik-
ið stuð því þá er söngkvöld og gestir
syngja með. Í vinnustofu Sigurlínu
Kristinsdóttur í hesthúsinu hennar í
hesthúsahverfinu í Reykholti verða
til sýnis og sölu hestamyndir og
fleira. Þar er líka skemmtilegt mynd-
listarhorn fyrir börn. Á Bjarkarhóli
sem er aftan við Bjarnabúð verður
grænmetis- og sultumarkaður á laug-
ardeginum kl. 14 og þar verður kennt
að hekla blómadúlluteppi. Einnig
verður ofurtilboð á garni, skarti og
slæðum. Á Cafe Mika er hægt að fá
handgert konfekt, alvöru heitt súkku-
laði og ýmsar veitingar og börnin fá
helíumblöðrur. Fyrir þá sem vilja
sækja sér skemmtun utan við Reyk-
holt er vert að minnast á að „Riverj-
et“ siglir allan daginn á Hvítá. Einnig
eru nokkrar garðyrkjustöðvar í
Laugarási sem gaman er að heim-
sækja, t.d. Engi, en þar er lífrænn
grænmetismarkaður með fjölbreytt
úrval af grænmeti og skemmtilegur
völundargarður fyrir börnin. Þeir
sem vilja tjalda annars staðar en í
Reykholti geta tjaldað á tjaldsvæðinu
við fossinn Faxa. Dagskrá og nánari
upplýsingar: sveitir.is og aratunga.is.
Skurður Gúrka skorin í sneiðar með skurðgröfu í fyrra.
Tvær úr Tungunum
fara á stjá um helgina