Morgunblaðið - 22.08.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Ertu að taka til í …
… garðinum
… geymslunni
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Verðmæti strandveiðiafla ársins er
hátt í 2,7 milljarðar. Aflahæstu bát-
arnir fengu vel yfir 30 tonn og gæti
verðmæti þess afla verið um 10 millj-
ónir, en á meðalbátinn um 3,4 millj-
ónir. Í heild hefur verðmætið aukist
um 14% á milli ára og aflaverðmæti á
bát um 3%, en bátum fjölgaði frá síð-
asta ári. Alls veiddust um 8.700 tonn
á 760 báta, meðalaflinn á bát var því
rúm 11,4 tonn.
Síðasti dagur veiðanna var í gær,
en undanfarið hefur aðeins verið
leyft að veiða á svæðinu frá Horna-
firði að Borgarnesi. Vertíðinni var
eins og áður skipt í fjögur tímabil og
heildarafli hvers mánaðar ákveðinn
fyrirfram á hverju svæði.
35 tonn á móti 18
Vegna fjölda báta á svæðinu frá
Arnarstapa til Súðavíkur og mikillar
sóknar komust bátar þaðan aðeins í
rúmlega 20 róðra. Á hinum svæðun-
um gátu bátar hins vegar farið í um
og yfir 40 róðra. Lundey ÞH, sem
reri á svæðinu frá Húsavík til Djúpa-
vogs, var aflahæst á vertíðinni með
35,4 tonn í 40 róðrum. Til saman-
burðar má nefna að á svæðinu frá
Arnarstapa að Súðavík var Sif SH
aflahæst með 17,7 tonn í 21 róðri.
Þorskur er langstærsti hluti aflans
og hefur þorskafli í róðri strand-
veiðiárin fjögur verið svipaður.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir að strandveiðarnar séu að festa
sig í sessi og menn séu sífellt að ná
betri tökum á veiðum og meðferð
afla. „Strandveiðarnar gengu mjög
vel í sumar. Menn voru vel undir
veiðarnar búnir og allir sem einn á
því að ganga vel um aflann og verðið
á fiskinum var gott,“ segir Örn.
Hætta við aflahámarkið
„Hugsanlega gætum við náð að
auka aflaverðmætið ef fallið væri frá
8.600 tonna þakinu. Þá þyrftu ekki
allir að hrúgast á sjó fyrstu dagana í
hverjum mánuði, en hefðu vissu fyrir
því að nóg væri til skiptanna allan
mánuðinn. Sömu ströngu reglurnar
og gæftir myndu síðan takmarka
aflann. Ég hef enga trú á að aflinn
myndi aukast úr hófi til lengri tíma
litið.“
Ennfremur segir Örn að krafan sé
skilyrt við að aflinn yrði ekki til að
skerða hlutdeild annarra. „Það yrði
bara litið á þetta sem eðlilega viðbót í
veiðunum enda sáralítið ef maður
miðar við heildaraflann.“ Hann seg-
ist vona að fram komi frumvarp
þessa efnis í haust.
Aukið verðmæti aflans
Aflaverðmæti úr strandveiðum sumarsins um 2,7 milljarðar króna Hæstu bátarnir með um 10
milljóna króna verðmæti Örn Pálsson vill að í stað aflaþaks ráði gæftir og fiskgengd hámarki aflans
Aflahæstu bátar Tonn Róðrar
Sif SH 132 17,686 21
Jóh. á ÖkrumAK 180 17,473 20
Mjölnir BA 111 16,006 20
Suðri ST 99 29,245 38
Hafgeir ÍS 117 28,440 37
Gunna Beta ÍS 94 27,982 36
Lundey ÞH 350 35,422 40
Gunnar KG ÞH 34 31,080 43
Hólmi ÞH 56 30,735 42
Hulda SF 197 32,174 38
Sæunn SF 155 31,334 36
Örn II SF 70 28,170 35
Strandveiðar 2012
Strandveiðisvæðin og afli eftir svæðum
A
Svæði
B
Svæði
C
Svæði
D
Svæði
Svæði A B C D Alls
Útgefin leyfi 183 166 160 152 152
Leyfi í notkun 282 164 161 152 759
Afli alls (tonn) 2.890 2.095 2.246 1.498 8.729
Fjöldi landana 4.790 3.783 4.191 3.377 8.729
Afli pr. róður (kg) 603 554 536 444 541
Afli pr. bát (tonn) 10,2 12,8 14,0 9,9 11,5
Viðm.afli 2012 (tonn) 2.860 2.036 2.204 1.500 8.600
Óveitt (tonn) -29,8 -58,8 -42,4 1,967 -129
Veiðihlutfall 101,0% 102,9% 101,9% 99,9% 101,5%
* einn dagur eftir á svæðinu
A
B
C
D*
Hulda SF frá Hornafirði er annar
aflahæsti strandveiðibátur sumars-
ins með hátt í 33 tonn. Unnsteinn
Þráinsson, annar eigandi Huldu,
lét vel af aflabrögðunum og sagði
veðrið nánast alltaf hafa verið gott
og ágætis aflabrögð. Hann var þó
ekki með bátinn nema hluta sum-
ars og hefur einbeitt sér að makríl-
veiðum á Sigga Bessa SF síðustu
vikurnar.
Allir á kafi í útgerð
„Það eru allir í fjölskyldunni á
kafi í útgerð minni báta frá Djúpa-
vogi og Hornafirði og hafa verið
lengur en elstu menn muna,“ sagði
Unnsteinn í spjalli í gær. Það má
til sanns vegar færa því Hólmar
Hallur, sonur hans, tók við
Huldunni að skólanum loknum í
vor, en Unnsteinn færði sig yfir á
Sigga Bessa. Þráinn pabbi hans er
með tvo báta, Birnu og Emilý, í
aflamarki, krókaaflamarki og
strandveiðum. Þar með er ekki öll
sagan sögð því amma og afi Unn-
steins, Hulda Kristófersdóttir og
Sigurður Jónsson, öðru nafni Siggi
Bessa, hafa róið á Glað í strand-
veiðum í sumar.
„Þessir fjórir ættliðir eru hver
með sinn bát og sumir með fleiri
en einn og svo tengist þetta fram
og aftur,“ segir Unnsteinn. Hann
segir að ýmislegt jákvætt megi
segja um strandveiðarnar og sann-
arlega færist aukið líf í hafnir allt í
kringum landið þegar strand-
veiðiflotinn hefji veiðar. Hann hef-
ur líka ýmsar athugasemdir við
þetta kerfi.
Komnir við hliðina á okkur
daginn eftir viðskiptin
„Það voru alveg nógu margir
bátar fyrir og engin nauðsyn á að
stækka flotann til að veiða þessa
fáu fiska sem mátti veiða,“ segir
Unnsteinn. „Við vorum búnir að
eyða stórfé í að kaupa hver annan
út úr greininni, en svo var bara
allt í einu opnuð leið inn aftur.
Þeir voru kannski komnir við hlið-
ina á okkur daginn eftir viðskiptin!
Strandveiðiaflinn er í rauninni
ekki svo mikill að hann skipti
miklu máli fyrir heildina, en samt
fannst mér skrýtið að menn skyldu
geta selt frá sér og byrjað strax
aftur. Það er ábyggilegt að þessi
nýliðun, sem mikið er talað um,
getur verið margvísleg. Svo varð
allt arfavitlaust út í okkur sem
keyptum kvóta og allt hefur verið
gert til að hafa hann af okkur.
Á undanförnum árum hef ég
verið að byggja útgerðina upp og
hef keypt kvóta á Sigga Bessa.
Þegar þessu strandveiðikerfi var
komið á varð ég grautfúll því kvót-
inn var tekinn af okkur. Það var
tvennt til ráða, annaðhvort að
halda áfram að hafa allt á hornum
sér eða taka þátt í ruglinu. Ég
ákvað að kaupa Huldu til strand-
veiðanna,“ segir Unnsteinn.
Ævintýralegur makrílafli
Siggi Bessa SF er kominn með
hátt í 50 tonn af makríl í sumar og
lætur Unnsteinn vel af veiðinni síð-
ustu daga. „Við færðum okkur í
Faxaflóann og fengum ævintýra-
legan afla á sunnudaginn, heil 12
tonn, og það gerist varla betra,“
segir Unnsteinn. Hann gerir þessa
dagana út frá Keflavík og er makr-
íllinn frystur í Þorlákshöfn. „Það
er mikið af makríl í Faxaflóa og
hann hefur verið vaðandi í öllum
fjörum. Stundum er fiskur á hverj-
um öngli, en það er eitthvað ró-
legra yfir þessu í dag.“
Þeir eru með fimm slóða og eru
36 krókar á hverjum slóða. Bún-
aðurinn var smíðaður heima í bíl-
skúr á Höfn að norskri fyrirmynd.
110-120 krónur hafa fengist fyrir
kíló af makríl undanfarið.
Fjórir ættliðir í strandveiðinni
Gott veður og ágætis afli en margt að athuga við strandveiðarnar, segir Unn-
steinn Þráinsson á Höfn Góður gangur í makrílveiðum í Faxaflóa síðustu daga
Morgunblaðið/ÁIJ
Aukið líf Talsverð umsvif fylgja strandveiðunum og fjöldi minni báta var
við bryggju á Hólmavík þegar blaðamaður fetaði sig eftir Skjaldbökuslóð.