Morgunblaðið - 22.08.2012, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
FYRIR
ALVÖRU
KARLMENN
Fæst á hársnyrtistofum
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Ef Obamacare nær fram að ganga í
núverandi mynd mun íslenski stoð-
tækjaframleiðandinn Össur þurfa að
greiða um tvær milljónir dollara (239
milljónir króna) á næsta ári aukalega
í sérstakan skatt sem lagður verður á
öll heilbrigðisfyrirtæki í Bandaríkj-
unum. Þetta segir Jón Sigurðsson,
forstjóri Össurar, í samtali við Morg-
unblaðið og nefnir að skatturinn sé
umdeildur. „Þetta eru 2% af sölu okk-
ar í Bandaríkjunum,“ segir hann.
Til skamms tíma mun löggjöfin
draga úr sölu fyrirtækisins, að sögn
Jóns, því henni fylgi að beitt sé
ströngu kostnaðaraðhaldi, og t.d.
gervilimir séu dýr vara. Hann vonar
þó að fólk sjái að það sé skynsam-
legra að leyfa fólki að fá gervilimi en
að láta það hafa hjólastól, svo það geti
auðveldlega stundað vinnu.
Jón bendir á að löggjöfin þýði að
fleiri verði tryggðir, þótt hinir ný-
tryggðu séu mikið til ungt fólk sem að
meðaltali verða ekki fyrir miklum
áföllum eins og aflimunum. Auk þess
megi, samkvæmt Obamacare, ekki
mismuna tryggingatökum eftir
sjúkrasögu, sem Jón segir að komi
fyrirtækinu vel, þ.e. það verði að
tryggja fólk þótt það hafi áður glímt
við veikindi.
Hann er áhugasamur um að heil-
brigðiskerfið í Bandaríkjunum taki
stórstígum breytingum, þar sem það
sé afar dýrt og órökrétt. Takist að
koma böndum yfir það og smíða
skynsamlegt kerfi væri það jákvætt
fyrir Össur, og myndi auðvelda sölu.
Bandaríkin eru mikilvægasti
markaðurinn fyrir Össur en þar fer
fram um helmingurinn af sölunni.
Obamacare er heilbrigðislöggjöf,
sem Barack Obama Bandaríkjafor-
seti beitti sér fyrir. „Þetta er ekki um
garð gengið. Ef repúblikanar sigra í
forsetakosningunum er óvíst hvað
verður um lögin. En það bendir allt
þess núna að Obama nái aftur kjöri,“
segir Jón.
Eitt af markmiðum laganna er að
tryggja sem flestum Bandaríkja-
mönnum heilsugæslu. Það á að gera
með því að skylda ríki Bandaríkjanna
til að bjóða þeim, sem minnst hafa
milli handanna, aðild að heilsugæslu-
kerfinu Medicaid, að því er fram hef-
ur komið í fréttum. Um er að ræða
uppstokkun á tryggingakerfinu. Í
Bandaríkjunum er það atvinnurek-
andinn sem borgar tryggingarnar, og
ef fólk missir vinnuna, er það ekki
tryggt. Skipti fólk um vinnu, þarf það
nýjar tryggingar. Samkvæmt Oba-
macare á meðal annars að leyfa for-
eldrum að hafa börnin sín á sínum
tryggingum lengur en áður var eða til
26 ára aldurs. Sömuleiðis verður
tryggingafélögum bannað að setja
hámarkstryggingarfjárhæð í samn-
inga, þ.e. fólk getur lent í því að hafa
verið mikið veikt lengi, en fær allt í
einu bréf frá tryggingafélaginu, um
að sjúklingurinn hafi nýtt alla þá fjár-
muni sem hann á rétt á til sjúkra-
trygginga.
Barack Obama vill
skattleggja Össur
Obamacare mun sækja tvær milljónir dollara í vasa Össurar
Morgunblaðið/Heiðar Kristjánsson
Forstjóri Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, vonar að fólk sjái að það sé
skynsamlegra að leyfa fólki að fá gervilimi en að láta það hafa hjólastól.
Obamacare minnkar sölu
» Bandaríkin eru mikilvægasti
markaðurinn fyrir Össur en þar
fer fram helmingurinn af sölu
fyrirtækisins.
» Til skamms tíma er líklegt
að löggjöfin muni leiða til þess
að sala fyrirtækisins dragist
saman vegna mikil kostnaðar-
aðhalds, en gervilimur er dýr
vara.
Einn þekktasti
fjárfestir heims,
George Soros,
hefur keypt tæp-
lega 2% hlut í
enska knatt-
spyrnufélaginu
Manchester Unit-
ed fyrir 40,7
milljónir Banda-
ríkjadala, jafn-
virði tæplega 5
milljarða íslenskra króna. Frá
þessu er greint á fréttavef Breska
ríkisútvarpsins (BBC), en þar segir
ennfremur að um sé að ræða A-
hlutabréf sem gefa ekki jafnmikið
atkvæðamagn og B-hlutabréf. Sér-
fræðingar telja að Soros hafi séð
kauptækifæri í félaginu í ljósi vænt-
inga um frekari tekjur Manchester
United af sjónvarpsréttindum.
Manchester United-félagið var
skráð á bandarískan hlutabréfa-
markað fyrr í mánuðinum og var
félagið metið á rúmlega 2,3 millj-
arða dala. Frá skráningu hinn 10.
ágúst hefur gengi hlutabréfa fé-
lagsins hins vegar lækkað um 6,7%.
Fram kemur í frétt BBC að So-
ros, sem er 82 ára gamall, hafi áður
velt fyrir sér fjárfestingum í knatt-
spyrnufélögum. Talið er að hann
eigi um 25 milljarða Bandaríkja-
dala í fjárfestingarsjóðum sínum.
Glazer-fjölskyldan fer með ráð-
andi hlut í knattspyrnufélaginu og
hefur gert það frá árinu 2005. Hátt
í helmingur þeirrar upphæðar sem
safnaðist í hlutafjárútboði fyrir
skráningu félagsins á markað verð-
ur notaður til þess að greiða upp
skuldir Manchester United. Af-
gangurinn mun hins vegar renna til
Glazer-fjölskyldunnar. Alls söfn-
uðust 233 millónir dala í útboðinu.
Soros
kaupir í
Man. Utd
Kaupir 2% hlut
á 40 milljónir dala
Fjárfestir
George Soros.
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam
70,7 milljörðum króna á fyrstu fimm
mánuðum ársins borið saman við
57,3 milljarða á sama tíma fyrir ári.
Aflaverðmæti hefur því aukist um
13,4 milljarða, eða um 23,4% á milli
ára, að því er fram kemur í nýjum
tölum frá Hagstofu Íslands.
Mestu munar um aflaverðmæti
botnfisks sem nam 45,5 milljörðum á
tímabilinu og jókst um 16,2% frá
árinu 2011. Verðmæti þorskafla var
um 24 milljarðar og nam aukningin
um 11,4% á milli ára. Aflaverðmæti
ýsu nam 6,8 milljörðum.
Verðmæti uppsjávarfisks jókst
hins vegar um 56,6% frá árinu 2011
og skýrist sú aukning fyrst og fremst
af loðnuafla að verðmæti 13 milljarð-
ar króna, borið saman við 8,7 millj-
arða fyrstu fimm mánuði ársins
2011.
Aflaverðmæti
eykst um 23,4%
70,7 milljarðar fyrstu 5 mánuði ársins
Morgunblaðið/ÞÖK
Þorskur Aflaverðmæti þorsks var 24 milljarðar fyrstu fimm mánuði ársins.
● Dótturfélag Ís-
landsbanka í New
York, Glacier Sec-
urities, leiddi fyr-
irtækjaráðgjöf til
Compania Pes-
quera Camanchaca
S.A. við sölu á
dótturfélagi þess í
Ekvador, en félagið
heitir Pesquera
Centromar S.A.
Camanchaca er leiðandi sjávarútvegs-
fyrirtæki skráð á hlutabréfamarkaðinn í
Santiago í Síle. Kaupandi Centromar er
hópur fjárfesta frá Perú leiddur af Con-
gelados Peruana del Pacífico-
CONPEPAC S.A.
helgivifill@mbl.is
Ráðleggur í S-Ameríku
Íslandsbanki er
líka í New York.
● Greining Íslandsbanka spáir því að
vísitala neysluverðs hækki um 0,4% í
ágúst frá mánuðinum á undan. Hækk-
unin kemur í kjölfar 0,7% lækkunar í
júlí. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða
verðbólga aukast lítillega, úr 4,6% í
4,7%. Spáin gerir ennfremur ráð fyrir
því að verð á fötum og skóm hækki um
ríflega 5% milli mánaða.
Á næsta ári spáir Greining Íslands-
banka að verðbólga muni reynast um
4,1% að meðaltali.
Spá meiri verðbólgu
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+01-/+
+2.-11
+,-03,
2.-+1+
+1-,.4
+23-.3
+-5,05
+1,-,/
+51-14
++,-35
+00-.1
+2+-+2
+,-0,1
2.-23
+1-,41
+23-31
+-4.20
+0.-4
+50-+/
2.1-2/43
++,-/2
+00-43
+2+-51
+,-,44
2.-20,
+0-..,
+23-1+
+-4.12
+0+-.5
+50-41
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á