Morgunblaðið - 22.08.2012, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Heildarlausnir í hreinlætisvörum
Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700
Hafðu samband og fáðu tilboð
sími 520 7700 eða sendu línu
á raestivorur@raestivorur.is
raestivorur.is
Við erum með lausnina fyrir þig
Sjáum um að birgðastaða hreinlætis-
og ræstingarvara sé rétt í þínu fyrirtæki.
Hagræðing og þægindi fyrir stór og
lítil fyrirtæki, skóla og stofnanir.
Viltu halda fjárhagsáætlun –
líka þegar kemur að hreinlætisvörum?
AFP
Íbúar þorps á Indlandi við trúarathöfn fyrir framan
dauðan fíl í almenningsgarði við landamærin að Nepal.
Indverskir dýralæknar og skógarverðir höfðu reynt að
bjarga lífi fílsins sem varð fyrir byssukúlum þegar íbú-
ar þorps í Nepal réðust á fílahjörð nálægt landamær-
unum í vikunni sem leið.
Beðið fyrir föllnum fíl á Indlandi
Ósló. AFP. | Fjölskyldur þeirra sem
biðu bana í árásum norska fjölda-
morðingjans Anders Behrings Brei-
vik 22. júlí í fyrra eru ekki sammála
um hvort hann sé sakhæfur eða
ósakhæfur vegna geðveiki. Þær eru
hins vegar á einu máli um að hann
megi aldrei aftur ganga laus.
„Ef þessi maður er ekki ábyrgur
gerða sinna lagalega, hvað þá með
nasistana?“ spurði Claude Perreau,
faðir 25 ára manns sem beið bana í
skotárás Breivik í Útey. „Hann er
kannski utangarðsmaður í samfélag-
inu en hann er ekki geðveikur, eins
og sjá má af því hvernig hann skipu-
lagði glæpinn og eyddi tveimur árum
í að undirbúa hann.“ Breivik hefur
sjálfur sagt að það versta sem gæti
komið fyrir hann væri að væri að
hann yrði dæmdur ósakhæfur vegna
geðveiki.
„Það skiptir ekki miklu máli fyrir
okkur hvort hann verður dæmdur
sakhæfur eða ósakhæfur, mikilvæg-
ast er að honum verði meinað að
koma aftur í samfélagið það sem eft-
ir er,“ sagði Perreau.
Christian Bjelland, varaformaður
félags fjölskyldna fórnarlambanna,
tók í sama streng og sagði að engin
þeirra vildi að Breivik yrði leystur úr
haldi síðar. „Það er líka hans vegna:
það er svo margt fólk sem hefur
misst ástvini sína, foreldra, börn eða
systkin, að hann myndi ekki vera
óhultur ef hann yrði látinn laus.“
Segja mikilvægast að Brei-
vik gangi aldrei aftur laus
Þeir sem misstu ástvini ekki á einu máli um sakhæfi
Dómur væntanlegur
» Dómur verður kveðinn upp
yfir Anders Behring Breivik á
föstudaginn kemur.
» Dómstóll í Ósló úrskurðar
þá hvort Breivik eigi að fara í
fangelsi, eins og verjendur
hans hafa óskað eftir, eða í
réttargeðsjúkrahús.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Forystumenn repúblikana lögðu í
gær fast að Todd Akin, einum
frambjóðenda þeirra, að hætta við
framboð til öldungadeildar Banda-
ríkjaþings eftir að hann dró í efa
að „sönn nauðg-
un“ gæti leitt til
þungunar. Akin
lét orðin falla í
sjónvarpsviðtali
á sunnudag þeg-
ar hann færði
rök fyrir þeirri
skoðun sinni að
fóstureyðingar
væru aldrei rétt-
lætanlegar.
Repúblikanar óttast að ummælin
torveldi Mitt Romney, forsetaefni
þeirra, að auka fylgi sitt meðal
kvenna og óflokksbundinna kjós-
enda í kosningunum í nóvember.
Romney fordæmdi ummælin, sagði
þau „móðgandi, óafsakanleg og
röng“. Barack Obama forseti tók í
sama streng og notaði tækifærið til
að gagnrýna andstöðu margra
repúblikana við fóstureyðingar.
Ummælin gætu einnig torveldað
repúblikönum að ná meirihluta í
öldungadeildinni, en til þess þurfa
þeir að bæta við sig fjórum þing-
sætum. Akin er í framboði í Mis-
souri, einu ríkjanna þar sem repú-
blikanar eru taldir eiga mesta
möguleika á að vinna þingsæti af
demókrötum.
Fær ekki fjárhagsaðstoð
A.m.k. tveir þingmenn repúblik-
ana í öldungadeildinni hvöttu Akin
til að draga sig í hlé. The Was-
hington Post sagði að Akin hefði
verið skýrt frá því að hann fengi
enga peninga frá nefnd repúblik-
ana sem veitir frambjóðendum
flokksins fjárhagslega aðstoð í
kosningum til öldungadeildarinnar.
Markmiðið væri að knýja Akin til
að draga sig í hlé.
Í viðtalinu hafði Akin eftir lækn-
um að mjög sjaldgæft væri að
nauðgun leiddi til þungunar. „Ef
um er að ræða sanna nauðgun hef-
ur kvenlíkaminn leiðir til að reyna
að loka fyrir þetta allt,“ sagði
hann.
Áætlað hefur verið nauðganir
leiði til meira en 32.000 þungana í
Bandaríkjunum á ári hverju.
Talin torvelda
repúblikönum að
ná meirihluta
Ummæli um
nauðganir setja
flokkinn í vanda
Todd Akin
Todd Akin
hefur beðist
afsökunar á
ummælum
sínum og ját-
að að hann
hafi „notað
röng orð á
rangan hátt“.
Hann er ekki
eini stjórnmálamaðurinn sem er
í vandræðum vegna umdeildra
ummæla um nauðganir. Breski
þingmaðurinn George Galloway
var gagnrýndur í gær fyrir að
halda því fram að enginn fótur
væri fyrir nauðgunarásökunum
á hendur Julian Assange, stofn-
anda WikiLeaks, vegna þess að
kynmök við sofandi konu væru
ekki nauðgun. Lögfræðingar
sögðu að þetta væri rangt og
lögin væru skýr; samþykki
þyrfti alltaf að vera fyrir hendi
við kynmök, að sögn breska
blaðsins The Guardian.
Galloway
gagnrýndur
HVAÐ ER NAUÐGUN?
George Galloway
Geimferðastofnun Bandaríkjanna,
NASA, hefur skýrt frá því að hún
hyggist senda geimfar til Mars árið
2016 til rannsaka innviði reiki-
stjörnunnar.
„Er misgengi á Mars eins og á
jörðinni? Hversu umfangsmikið er
það? Hvers konar „Marsskjálftar“
verða?“ sagði talsmaður NASA,
Lindley Johnson, þegar fréttamenn
spurðu hann hvaða spurningum
markmiðið væri að svara.
Geimfarið nefnist InSight og
verður kyrrstætt, ólíkt geimvagn-
inum Curiosity sem lenti á Mars
fyrir tveimur vikum og hefur sent
litmyndir af yfirborði reikistjörn-
unnar. InSight verður skotið á loft í
mars 2016 og geimfarið á að lenda
á Mars hálfu ári síðar.
Geimfarið verður með skjálfta-
mæli til að rannsaka skorpuhreyf-
ingar og tæki sem mælir varma-
flæði úr kjarnanum. Geimvísinda-
menn vona að leiðangurinn auki
þekkingu þeirra á þróun bergreiki-
stjarna sólkerfisins, meðal annars
jarðar. Fjallað er um leiðangur In-
Sight á Stjörnufræðivefnum:
stjornufraedi.is.
Geimvísindi
Geimfar á að
rannsaka
Marsskjálfta
Ljósmynd/NASA
InSight Marsfarið á að veita innsýn
í innviði reikistjörnunnar.
Ný rannsókn bendir til þess að of-
fita geti hraðað andlegri hrörnun.
Vísindamenn telja að þetta megi
hugsanlega rekja til breytinga á
efnaskiptum, m.a. of mikils sykurs
og kólesteróls í blóði. Rannsóknin
náði til 6.000 Breta á aldrinum 35-
55 ára. Þeir tóku minnis- og vits-
munapróf þrisvar sinnum á tíu ár-
um. Í ljós kom að þeim sem voru of
feitir hnignaði mun hraðar andlega
að meðaltali en öðrum þátttak-
endum. Vísindamennirnir segja að
rannsaka þurfi niðurstöðuna betur,
til að mynda áhrif erfða og hversu
lengi fólkið hefur verið of feitt.
Skýrt er frá rannsókninni í tímarit-
inu Neurology.
Heilsa
Offita slæm fyrir heilann