Morgunblaðið - 22.08.2012, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
✝ Gerður Jó-hannsdóttir
fæddist á Selalæk í
Vestmannaeyjum
3.3. 1926. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 13.8. 2012. For-
eldrar Gerðar voru
Jóhann Vilhjálms-
son útgerðarmaður,
f. að Húnakoti í
Þykkvabæ 13.7.
1893, d. 23.6. 1967,
og Lilja Hannesdóttir, f. að Roð-
gúl á Stokkseyri 23.6. 1899, d.
19.4. 1964. Systir Gerðar var
Kristín Hanna Jóhannsdóttir, f.
24.8. 1922, d. 20.9. 2006. Hanna
2011, d. 2011. b) Sigríður Þóra, f.
9.3. 1977, gift Ingólfi Kristjáni
Guðmundssyni, c) Sigurður Már,
f. 2. 8. 1982, kvæntur Dröfn
Helgadóttur. Gerður útskrifaðist
úr Húsmæðrakennaraskóla Ís-
lands 1950, kenndi í Húsmæðra-
skólanum að Laugarvatni 1952 –
1979. Gerður giftist árið 1979
Agli Sigurðssyni mennta-
skólakennara, f. 30.10. 1935. For-
eldrar hans voru Jóna Magnea
Grímsdóttir, f. 3.2. 1916, d. 16.1.
1972, og Sigurður Guðmundsson,
f. 22.5. 1914, d. 7.4. 2005. Þau
fluttust til Reykjavíkur 1979.
Gerður hóf fyrst störf í banda-
ríska sendiráðinu, þá í gagn-
fræðaskólum, síðan í Mjólk-
ursamsölunni og svo í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og kenndi þar til 70 ára aldurs.
Útför Gerðar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag 22. ágúst
2012 kl. 15.
var gift Sigurði
Guðmundssyni, f. á
Stokkseyri 23.6.
1920, d. 25.5. 1981.
Dætur Hönnu og
Sigurðar eru 1)
Lilja, f. 26.6. 1942
og 2) Guðrún f. 16.1.
1951, maki Valur
Þorvaldsson, f. 15.4.
1945. Börn þeirra
eru: a) Hanna Lilja,
f. 22.4. 1975, d. 14.8.
2011, gift Gísla Kristbirni Björns-
syni og eru börn þeirra: i) Þor-
kell Valur f. 2003, ii) Guðrún Fil-
ippía f. 2007, iii) Sigríður Hanna
f. 2011 og iv) Valgerður Lilja f.
Nú þegar hún Gerður Hulda
Jóhannsdóttir kveður okkur eft-
ir svo langa og nána samfylgd,
lútum við höfði og minnumst í
virðingu og þökk allra ljúfu
stundanna sem við fengum að
eiga saman.
Í fámennum fjölskyldum
verður vægi hvers og eins mik-
ið, og meðal afkomenda foreldra
Gerðar, þeirra Lilju og Jóhanns
á Selalæk í Vestmannaeyjum,
sem nú telur aðeins sjö manna
hóp auk maka, var forystuhlut-
verk Gerðar ótvírætt. Aðstæður
réðu því að hún varð eiginkonu
minni Guðrúnu, systurdóttur
sinni, strax í bernsku sem önnur
móðir, og þar af leiðandi varð
hún mér síðar önnur tengda-
móðir og afkomendum okkar
viðbótar-amma og langamma.
Öll áttum við hana heila og
óskipta í öllum þessum mikil-
vægu hlutverkum, og var Gerð-
ur jafnan ótvíræður foringi okk-
ar allra, kraftmikil og
hugmyndarík, frumleg og djörf,
en umfram allt skemmtileg. Við
hrifumst öll með, en hlutur okk-
ar sumra varð þó stundum að
vera einhvers konar demparar,
bara vegna þess hve miklu flat-
ari og hversdagslegri við vorum
sjálf.
Fyrri hluta starfsævi sinnar
átti Gerður glæsilegan feril við
Húsmæðraskóla Suðurlands á
Laugarvatni, þar sem hún starf-
aði þétt við hlið Jensínu Hall-
dórsdóttur skólastjóra í nær
þrjá áratugi. Svo ólíkar sem
þær voru, báðar mjög mikilhæf-
ar, bættu þær hvor aðra upp og
mynduðu saman fjölvirkt teymi
sem lyfti í raun Grettistaki. Þar
stóð skáli um þjóðbraut þvera,
sem miðlaði þekkingu, verk-
menningu og framfarahug til
unga fólksins í héraðinu og
hafði þar mikil og heillavænleg
áhrif um langan tíma.
Þegar Gerður um miðjan ald-
ur giftist Agli Sigurðssyni
stærðfræðikennara, fluttu þau
frá Laugarvatni til Reykjavíkur
og áttu þar heimili og störf síð-
an. Þá var hún nær sínu fólki og
naut samskiptanna og var sér-
staklega áhugasöm um líf og
þroska barnanna. Lífið hefur
auðvitað reynst okkur blandað-
ur pakki eins og flestum, en það
eru góðu og glöðu stundirnar
sem alltaf skipta okkur mestu
máli.
Það var aldrei lognmolla
kringum Gerði Huldu Jóhanns-
dóttur. Henni var áskapað að
ganga fram fyrir skjöldu, vera
miðpunktur samfunda og miðla
gleði. Minnisstætt er, þegar
Margrét Þórhildur danadrottn-
ing var hér í opinberri heimsókn
snemma á ferli sínum og fór þá
m.a. að Gullfossi og Geysi. Fyrir
lá að bílalest drottningar mundi
fara um Laugarvatn á leið sinni
til Reykjavíkur, en án viðkomu.
Þarna sá Gerður kost á að gera
hlut Laugarvatns veglegri og
tók málin í sínar hendur þótt
tími væri naumur. Hún hafði
skjót ráð; farið var um staðinn
með gæruskinn og rituðu íbúar
Laugarvatns nöfn sín á holdros-
ann. Síðan var safnast saman
uppi á vegi, og þegar drottn-
ingin nálgaðist sté Gerður fram
og stöðvaði bílalestina og flutti
drottningu kveðju Laugvetninga
og afhenti henni gæruskinnið að
gjöf. Þetta atvik er mjög lýsandi
um æviferil Gerðar, sem ein-
kenndist fyrst og fremst af frjó-
um huga, drift og stöðugri sókn
eftir jákvæðara mannlífi og
meiri gleði.
Hér er margt að þakka og
margs að minnast, og það er
mikil birta yfir minningum.
Valur Þorvaldsson.
Kær vinkona og einstök kona,
Gerður Hulda Jóhannsdóttir,
hefur nú kvatt samferðafólk sitt,
eftir merkilegt ævistarf og erfið
veikindi. Hún skilur eftir sig
stórt skarð í hugum vina sinna,
eiginmanns og allra aðstand-
enda.
Við vorum skólasystur í Hús-
mæðrakennaraskóla Íslands ár-
in 1948-50. Gerður var strax ein
af sterkustu stoðum þess hóps
er hóf þar nám haustið 1948, og
ásamt Jensínu vinkonu sinni
tóku þær að sér margvísleg
ábyrgðarstörf að náminu loknu.
Þær stóðu saman af einstakri og
einlægri vináttu og létu sér fátt
fyrir brjósti brenna. Lengst
störfuðu þær saman við Hús-
mæðraskóla Suðurlands á Laug-
arvatni. Þar eignuðust þær stór-
an hóp nemenda, sem virti þær
og dáði. Margir munu minnast
þess og þakka þeim giftudrjúg
störf þar. Þangað var ánægju-
legt að heimsækja þær, njóta
gestrisni þeirra og glaðværðar í
skólastarfinu og ýmislegs er þar
var í boði.
Gerður var einstaklega einörð
og glaðvær í sinni. Hún var góð
frásagnarkona og hafði næmt
auga fyrir öllu skoplegu í um-
hverfi sínu. Það hafa því verið
ánægjulegir fundir er við höfum
hist skólasysturnar og minnst
gamalla samverustunda, þar
sem Gerður hefur endursagt
okkur ýmsa viðburði og spaugi-
leg atvik úr skólalífinu í HKÍ.
Margra ánægjustunda er að
sakna og margt að þakka.
Gerður stundaði framhalds-
nám við Háskólann í Árósum í
Danmörku einn vetur. Einnig
sinnti hún matreiðslustörfum
við sendiráð Íslands í London
um nokkurt skeið, auk ýmissa
annarra mikilvægra verka.
Eftir margra ára kennslu á
Laugarvatni flutti Gerður til
Reykjavíkur. Hún hélt áfram
kennslu um skeið, og þau Egill
bjuggu sér fagurt heimili, nutu
samvistanna og voru dugleg að
ferðast bæði innanlands og ut-
an. Hún hefur ætíð borið veik-
indi sín vel og forðast að láta
þau hamla störfum sínum eða
ferðalögum þeirra. Aðdáunar-
vert er hve vel þau hafa staðið
saman og notið þess að skoða
sig um bæði hér heima og er-
lendis.
Gerður var sterk persóna,
einlæg og einörð í framgöngu og
góðviljug. Við skólasystur henn-
ar úr HKÍ þökkum að leiðarlok-
um allar ánægjulegu samveru-
stundirnar og biðjum henni
allrar blessunar. Við sendum
eiginmanni hennar, Guðrúnu
frænku hennar og öðrum að-
standendum einlægar samúðar-
kveðjur.
Sigríður
Kristjánsdóttir.
Í hvert sinn sem ég heyri tal-
að um „lífskúnstnera“ dettur
mér ósjálfrátt Gerður í hug.
Gerður var vinkona hennar
mömmu og hún var mér afar
kær. Ég geymi dýrmætar minn-
ingar, einkum úr barnæsku, um
þessa margbrotnu, stór-
skemmtilegu konu sem var
öðruvísi en allar aðrar konur.
Þegar við systkinin vorum
börn, veltum við stundum fyrir
okkur gæðum mæðra vina okk-
ar og í okkar huga voru eftirlát-
samar mæður bestar. Við höfð-
um viðmið og viðmiðið var
Gerður. Hún var „betri“ en aðr-
ar konur. Hjá Gerði máttum við
„allt“.
Gerður bjó í Heimakletti á
Laugarvatni og þar dvöldum við
oft á tíðum, einkum á sumrin.
Ljómi hvíldi yfir Laugarvatni
þar sem okkur var ætíð tekið
opnum örmum og ævintýrin
biðu okkar við hvert fótmál.
Hvergi í veröldinni var meira líf
og fjör þar sem fátt var bannað.
Þar fórum við ein út á bát þegar
okkur sýndist, fengum gos á
virkum dögum, máttum vaka
eins lengi og gátum og glamra á
orgelið þegar við vildum. Gerður
fór með okkur í bíltúr út um
hvippinn og hvappinn, söng
fyndnustu söngtextana og
keypti nammi í kílóavís. Hvergi
var meira hlegið og hvergi var
til meira af jólaskrauti eða fleiri
páskaungar þegar viðkomandi
hátíðir gengu í garð.
Gerður var líka mega-skvísa
sem fór til útlanda, meira að
segja til Spánar og kom brún
heim með gjafir handa okkur,
var „slönguleg“ með síða gull-
eyrnalokka og ég horfði á hana
opinmynnt, gagntekin af að-
dáun. Þær gerðust ekki flottari í
þá daga.
Seinna giftist Gerður honum
Agli og þau fluttu til Reykjavík-
ur. Það var mikið gæfuspor. Þau
voru afar ólík en einstaklega
samhent og alltaf var gott að
koma á heimili þeirra og finna
sig þar jafn velkomna og fyrr.
Ég minnist Gerðar með þakk-
læti og söknuði í huga og Agli
færi ég innilegar samúðarkveðj-
ur.
Ragnheiður
Matthíasdóttir.
Gerður Hulda
Jóhannsdóttir
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Rvk • s. 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við
fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu
og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
DAGMAR GUÐMUNDSDÓTTIR,
sem lést á Dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík
sunnudaginn 12. ágúst, verður jarðsungin frá
Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 24. ágúst kl.
14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðmundur Bergþórsson, Matthildur K. Friðjónsdóttir,
Þorsteinn Bergþórsson,
Ásdís U. Bergþórsdóttir, Helgi Kr. Gunnarsson,
Hrönn Bergþórsdóttir, Björgvin Ármannsson,
Freyja E. Bergþórsdóttir, Þórarinn S. Hilmarsson,
Björk Bergþórsdóttir, Guðni Sigurðsson,
Aron K. Bergþórsson, Kristín B. Karlsdóttir,
Jóhanna Bergþórsdóttir.
✝
Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
sr. HJARTAR HJARTARSONAR,
Hlíðarvegi 11,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær Friðbjörn Sigurðsson
krabbameinslæknir og starfsfólk
Landspítalans við Hringbraut.
Unnur Axelsdóttir,
Stefanía Hjartardóttir,
Sveinn Hjörtur Hjartarson, Sigurveig H. Sigurðardóttir,
Þórunn Ingibjörg Hjartardóttir, Sveinn B. Larsson,
Axel Garðar Hjartarson, Rannveig Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
MARINÓS SIGURBJÖRNSSONAR,
Heiðarvegi 12,
Reyðarfirði.
Margrét Einarsdóttir,
Steinunn Marinósdóttir, Sigurður V. Benjamínsson,
Einar Marinósson, Ólafía K. Kristjánsdóttir,
Sigurbjörn Marinósson, Sigríður St. Ólafsdóttir,
Marinó Már Marinósson, Sigríður Lísa Geirsdóttir,
Guðný Soffía Marinósdóttir, Haraldur Kr. Haraldsson,
Gauti Arnar Marinósson, Hulda Sverrisdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HÁLFDÁN STEINGRÍMSSON,
fv. prentsmiðjustjóri,
sem andaðist á Landspítalanum, Landakoti,
miðvikudaginn 15. ágúst, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. ágúst
kl. 13.00.
Ingibjörg Steindórsdóttir,
Steindór Hálfdánarson, Sólrún Björnsdóttir,
Stella Petra Hálfdánardóttir, Lárus Halldórsson,
Kristín Hálfdánardóttir, Gunnar Hilmar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir minn,
AGNAR GAUTUR ÞÓR NORLAND,
lést á Landspítalanum í Fossvogi að morgni
sunnudagsins 19. ágúst.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Ástmundur Agnar Norland.
✝
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
SÓLEY GUÐSTEINSDÓTTIR HÓLM,
lést í Michigan í Bandaríkjunum laugardaginn
18. ágúst.
Hún verður jarðsett í Michigan föstudaginn
24. ágúst.
Svanrós Hólm,
Davíð Hólm,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁSTU LÚÐVÍKSDÓTTUR,
fyrrverandi kennara,
Þúfubarði 2,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir umönnun og
ástúð.
Gunnar Geirsson, Guðfinna Kristjánsdóttir,
Lúðvík Geirsson, Hanna Björk Lárusdóttir,
Hörður Geirsson, Jóhanna S. Ásgeirsdóttir,
Ásdís Geirsdóttir, Jón Páll Vignisson,
Þórdís Geirsdóttir, Guðbrandur Sigurbergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar föður okkar, tengdaföður og afa,
EINARS MARKÚSSONAR,
Funalind 1,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og hjúkrunarþjónustu Karitas.
Markús Einarsson, Hólmfríður Pálsdóttir,
Árni Dan Einarsson, Sigrún Dan Róbertsdóttir,
Kristín Einarsdóttir, Jón Karlsson
og barnabörn.