Morgunblaðið - 22.08.2012, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Það verður engin stórkostleg viðhöfn enda er þetta nú ekkimerkisafmæli nema auðvitað að því leytinu til að þver-summan er níu, sem er þrisvar sinnum þrír. Merkisafmælið
verður auðvitað á næsta ári þegar maður verður „sixty four“, sem
er eiginlega orðið merkilegra en þegar maður verður 65 ára,“ segir
Þórarinn Eldjárn rithöfundur, sem fagnar 63 ára afmæli sínu í dag.
Að sögn Þórarins ætlar hann að bjóða fjölskyldu sinni, börnum og
barnabörnum, systkinum sínum og afkomendum þeirra í fiskisúpu.
Aðspurður hvort hann eigi von á mörgum gestum í boðið segir Þór-
arinn að þarna verði eflaust á fjórða tug gesta.
„Ég hef verið mjög ánægður með þá sem standa að Reykjavíkur-
maraþoninu en þeir hafa verið svo vinsamlegir við mig að halda
maraþonið á nákvæmlega þessum degi bæði þegar ég varð fimm-
tugur og þegar ég varð sextugur, ég er ekki ennþá búinn að athuga
hvernig þetta verður þegar ég verð sjötugur, ef ég lifi, vonandi
verða þeir til í að hafa þetta líka þannig þá,“ segir Þórarinn.
Mikið er framundan hjá Þórarni en hann ætlar að gefa út nýja
skáldsögu í haust, þá er hann búinn að ganga frá nýrri þýðingu á
leikritinu Macbeth fyrir Þjóðleikhúsið sem frumsýnt verður annan í
jólum, þá sá hann um að ljóðskreyta tvær barnabækur eftir Eddu
Heiðrúnu Backman sem koma út í haust. skulih@mbl.is
Þórarinn Eldjárn er 63 ára í dag
Morgunblaðið/Eggert
Merkisafmæli Þórarinn Eldjárn segir 64 ára afmælið á næsta ári
vera merkisafmæli og vísar þar til dægurlagatexta Pauls McCartney.
Gefur út nýja
skáldsögu í haust
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Emilía Líf Bjarkadóttir og
Arndís Indiana Arnars-
dóttir héldu tombólu bæði í
Spönginni og hjá Nettó í
Kópavogi. Þær söfnuðu dóti
hjá ættingum og vinum og
heima hjá sér og seldu. Þær
gáfu Rauða krossi Íslands
ágóðann, 10.364 kr.
Hlutavelta
Seltjarnarnes Rakel fæddist 20. febr-
úar. Hún vó 4.120 g og var 53 cm. For-
eldrar hennar eru Ragnheiður G.
Magnúsdóttir og Þorvaldur S. Krist-
jánsson.
Nýir borgarar
Akureyri Egill Berg fæddist 10. nóv-
ember kl. 9.19. Hann vó 4.575 g og var
54 cm langur. Foreldrar hans eru Guð-
laug Ásta Gunnarsdóttir og Kristján
Baldur Valdimarsson.
Þ
orsteinn fæddist á Grund
í Svarfaðardal, lauk
stúdentsprófum frá MA
1959, embættisprófi í
læknisfræði frá HÍ
1966, doktorsprófi í svæfingalækn-
isfræði frá Gautaborgarháskóla
1981 og kennaraprófi í sömu grein
1983.
Þorsteinn var kandídat og aðstoð-
arlæknir á Landspítalanum, aðstoð-
arlæknir á Sahlgrenska sjukhuset í
Gautaborg, fastráðinn aðstoðaryf-
irlæknir þar frá 1974, sérfræðingur
á Landspítalanum, svæfinga- og
gjörgæsludeid, frá 1977, var sér-
fræðingur á Landspítalanum, svæf-
inga- og gjörgæsludeild, frá 1981,
veitti deildinni þar forstöðu frá 1985
og var yfirlæknir gjörgæsludeildar
Landspítalans 1991-2005.
Þorsteinn var stundakennari við
Gautaborgarháskóla, dósent í svæf-
ingalæknisfræði og forstöðumaður
sérgreinarinnar víð læknadeild HÍ
frá 1981 og kenndi hjúkrunarfræð-
ingum í framhaldsnámi.
Þorstein sat í stjórn Svæfinga-
læknafélags Íslands 1978-84, var
formaður þess 1980-84, fulltrúi Ís-
lands í stjórn Nordisk Anaesthesio-
logisk Forening 1979-85, varaforseti
þess 1991-93, forseti 1993-95 og að-
alritari 1997-2002.
Þorsteinn hefur verið golfdómari
um langt árabil, sat í stjórn Golf-
Þorsteinn Svörfuður Stefánsson, fyrrv. yfirlæknir, 75 ára
Á gjörgæslunni Þorsteinn ásamt Sigrúnu Snorradóttur aðstoðardeildarstjóra, Baldvini Bjarnasyni og Lilju Björt
Baldvinsdóttur og Marianne Holm deildarstjóra í tilefni af gjöf til deildarinnar frá Pfaff.
Les latínu og grísku
Afmælisbarnið Þorsteinn Svörfuður Stefánsson, fyrrv. yfirlæknir, á svæf-
ingalæknaþingi fyrir nokkrum árum.