Morgunblaðið - 22.08.2012, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðing
ar í gleri
… og okku
r er nánast
ekkert ómö
gulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga
• Sólvarnargler
• Einangrunargler
• Öryggisgler
• Eldvarnargler
• Speglar
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í skjólveggi
- Í rennihurðir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Með hjálp góðra vina tekst þér að
sigla þínum málum í höfn. Taktu lítil skref í
breytingaátt til að byrja með. Hugmyndir
sem þú hefur sett fram vekja athygli.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kannt að lenda í útistöðum við
samverkamenn þína. Dekraðu við sjálfa(n)
þig með því að eiga rólega stund í einrúmi
hvenær sem þú átt þess kost.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Óvænt rómantískt daður við ein-
hvern leiðir þig í vandræði. Láttu það ekki
koma þér úr jafnvægi heldur auka skilning
þinn og styrk.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Láttu það ekki draga úr þér kjarkinn,
þótt vinir og vandamenn geri lítið með skoð-
anir þínar þessar dagana. Fremur en að láta
það angra þig skaltu auka þekkingu þína.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ótrúlega mikil hamingja færist þér í
fang svo lengi sem þú nærð ekki að láta nei-
kvæðar hugsanir stöðva hana. Að klæðast
og innrétta er ekki duttlungar í þínum aug-
um heldur ábyrgðarhluti.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Rifrildi og ágreiningur setja svip á
daginn og eyðileggja stemninguna. Eina leið-
in til að bæta sambandið er að sætta þig við
hann/hana eins og hann/hún er.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gerðu lista yfir fimm hluti sem þú getur
betrumbætt til að auka tekjur þínar. Láttu
ekki aðra hrifsa til sín það sem í raun er
þitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Mundu að láta athafnir fylgja
orðum þínum svo að þú fáir ekki þá einkunn
að þig sé lítið sem ekkert að marka. Leggðu
þitt af mörkum til að styðja góð málefni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fátt er verðmætara en góður
vinur. Láttu ekki feimni eða stolt koma í veg
fyrir að þú þiggir hjálp því með því veitirðu
öðrum tækifæri til að sýna örlæti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Til að komast inn í ryþma dagsins
skaltu hægja á þér. Hvar viltu vera eftir tíu
ár eða eftir fimm ár? Hvað getur þú gert til
þess að byrja leiðina að settu marki?
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú verður kynntur fyrir persónu
sem getur lagt þér lið með ýmsum hætti.
Gefðu þér tíma til að sinna ástvinum þínum
og öðrum sem þrá félagsskap þinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt það geti verið erfitt að horfast í
augu við eigin mistök skaltu ekki gleyma að
af þeim lærir maður mest. Allt sem þú gerir
gengur vel og hratt fyrir sig.
Í bréfi til Aðalsteins Kristjánssonar
3. maí 1912 skýrir Stephan G. Steph-
ansson afstöðu sína til trúmála, en
hann var mikill efasemdamaður:
„Við göngum duldir þess dóms,
hvort dauðinn sé múr eða dyr,
vængjanna síðasta sig,
eða svif þeirra hærra en fyr.“
Síðar í bréfinu kemst hann svo að
orði: „Ég get virt og skil trúna á
þetta allt, en ég uni ekki við ónýta
rökfærslu fyrir henni, eins og t.d.
Guðmundar míns á Sandi um ein-
staklings-einkennin manns. Hefði
hann ekki hætt á hálfnaðri hugsun,
myndi hann hafa séð, að þau hverfa
manni hér í lífi jafnvel, í ellinni, á
banasænginni.“
Í bréfi til Magnúsar Hinrikssonar
segir hann:
„Sumartíð þér sæl og góð
sé til hags og verka. –
Færi hún þér falleg ljóð,
fjör og heilsu sterka.“
Í bréfi til séra Rögnvalds Péturs-
sonar í mars 1912 segir hann frá Ís-
landsför sinni og hlakkar til með
honum að fá að skreppa nú heim, -
„verst þykir mér, að þú manst svo
lítið, hvernig var, sem von er, því Ís-
land má ekki bera saman við annað
en sjálft sig og allt sem verra er“!
Síðan segir hann. „Á Húsavík kom
ég aldrei. Þar býr „Hulda“ og kveð-
ur um Vík sína:
Kinnar-fjöllin bylgju blá,
und bjartri mjöll,
skjálfa öll í öldugljá,
sem álfahöll.
– – –
Hér er frítt þótt skorti skóg
og skjól sé lítt.
Kveldskin hlýtt og hug-rúm nóg
við hafið vítt.“
Enn segir Stephan í bréfi til séra
Rögnvalds 29. maí 1904: „Gjarnan
skal ég kveða til „lengstu laga“, en
þó óska ég hins fremur, að ég hefði
vit á að þagna, áður en ég verð tóm-
ur svipur af sjálfum mér – því:
Það er ekki allra skálda æfisaga
að halda uppi um elli-daga
óðar-rausn í húsi Braga.“
Í bréfi til Jóns Jónssonar frá Sleð-
brjót 11. des. 1914 segir hann: „Á
ég að segja þér vísu, sem ég endaði
bréf til kunningja míns á í gær. Hún
á eins vel eða illa við daginn í dag.
Þar sem ég gef svínum eru stundum
nokkur sólskríkju- (snowbunting)
-hjón að kroppa. Ég kvað:
Út í fjósin vana-veg
verð ég nú að skrefa –
sólskríkjunnar sakna er ég
svínum hætti að gefa.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sumartíð þér sæl og góð
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
OG ÞETTA ER SÉRLEGA
ÁHUGAVERT FRÍMERKI ...
TÍMI? TUTTUGU OG
ÞRJÁR SEKÚNDUR.
NÝTT MET.
ÞETTA ER SKRÝTIÐ ... TENNURNAR VIRÐAST
RISPA FINGRAFÖRIN.
LJÚFA, VERTU ALLTAF
STOLT AF ÞVÍ AÐ
VERA KONA!
KONUR STANDA
KÖRLUM FRAMAR
AÐ ÖLLU LEYTI!
VIÐ ERUM VIÐ ÞAÐ AÐ
NÁ YFIRHENDINNI ...
EN ÞEIR
HAFA EKKI
HUGMYND
UM ÞAÐ!
GEFÐU MANNI
FISK, OG HANN
ER SADDUR Í
EINN DAG.
KENNDU HONUM AÐ
FISKA, OG HANN
ER SADDUR
ALLA ÆVI.
OPNAÐU
TÚNFISKDÓS OG
KÖTTUR KLESSIR
Á VEGG Á 70 KM
HRAÐA.
Víkverji er ekki alveg tilbúinn aðfallast á að sumri sé farið að
halla, en sér að það verður ekki
umflúið þegar fyrstu haustboðarnir
hafa gert vart við sig. Sunnar og
austar í álfunni byrjuðu atvinnumenn
að sparka bolta um helgina þannig að
tími vetraríþrótta er genginn í garð.
Svo eru skólarnir að hefjast með til-
heyrandi umstangi. Veður eru þó enn
það mild að Víkverji hefur ákveðið að
bíða með að taka fram snjóþrúgurnar
svo að þær séu til taks.
x x x
Víkverji notaði dreggjar sumarsinstil að fara á bikarúrslitaleik
knattspyrnu í Laugardalnum á laug-
ardag. Þar áttust við KR úr Vest-
urbæ og Stjarnan úr Garðabæ.
Stjörnustrákar hafa verið beittir í
sumar, iðulega spilað skemmtilega
knattspyrnu og verið duglegir að
skora. Víkverji var minnugur þess
þegar Þór spilaði KR sundur og sam-
an í bikarúrslitunum í fyrra, átti
urmul færa og skaut hvað eftir annað
í slá án þess að skora. KR sigraði, en
stuðningsmenn liðsins fóru heim
hálfvandræðalegir þótt þeir hefðu
hrósað sigri.
x x x
Leikurinn á laugardag virtist í upp-hafi ætla að stefna í eitthvað svip-
að. Leikmenn Stjörnunnar voru
beittari, fljótari og skeinuhættari.
Það var því algerlega í takti við gang
leiksins þegar Stjarnan komst yfir.
KR-ingar náðu að jafna, en Stjarnan
virtist hafa öll spil á hendi þegar
dæmt var víti á KR í lok fyrri hálf-
leiksins. Garðar Jóhannsson tók vítið
og þrumaði í slána. Varð mönnum að
orði að KR-ingar hlytu að hafa fengið
að nota sömu slána og í fyrra. Í upp-
hafi seinni hálfleiks var sama sláin
aftur á ferðinni, en nú var hún fyrir
KR-ingum. KR-ingar voru mun
sprækari í seinni hálfleik en þeim
fyrri, tókst að komast yfir og halda
forustunni. Garðbæingar geta nagað
sig í handarbökin yfir því að hafa
ekki látið kné fylgja kviði í fyrri hálf-
leik. Hins vegar er rétt að halda því
til skila að leikurinn var frábær
skemmtun og geta bæði lið borið höf-
uðið hátt eftir slíka viðureign, þótt
auðvitað sé súrt að tapa.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ef einhvern ykkar brest-
ur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur
öllum örlátlega og átölulaust, og hon-
um mun gefast. (Jak. 1, 5.)