Morgunblaðið - 22.08.2012, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Kanadíska hljómsveitin Japan-
droids, skipuð Brian King og Dav-
id Browse, er á landinu og spilar í
kvöld á Gamla Gauknum. Tónleik-
arnir eru hluti af tónleikaferðalagi
sveitarinnar frá Vancouver sem
fylgir nú eftir plötu sinni Celebra-
tion Rock.
Breiðskífa þeirra kappa hefur
fengið fína dóma hjá gagnrýn-
endum í Kanada og víðar en hún
er önnur plata sveitarinnar. Þann-
ig valdi tónlistarvefurinn pitch-
fork.com plötu þeirra „bestu nýju
tónlistina“ árið 2010. Tónleika-
gagnrýnendur hafa þá sagt að það
sé ótrúlegt að Japandroids sam-
anstandi af einungis tveimur
hljómsveitarmeðlimum, svo mikill
sé krafturinn í kringum þá. Tón-
leikaferð þeirra Brians Kings og
Davids Prowse er afar þétt bókuð
með tónleikum allt fram í janúar.
Reykjavík er þeirra fimmti áfanga-
staður.
Hljómsveitin Sudden Weather
Change mun hita upp fyrir Jap-
androids en þeir gáfu nýverið út
sína aðra breiðskífu. Hægt er að
kaupa miða í forsölu á midi.is.
Japandroids Hljómsveitin frá Kanada hefur hlotið mjög góða dóma hjá
gagnrýnendum vestanhafs fyrir nýjustu breiðskífu sína, Celebration Rock.
Kraftmikill dúett
frá Vancouver
Hljómsveitin Japandroids á Íslandi
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
Guðmundur Arnar Guðmundsson,
handritshöfundur og leikstjóri, fékk
nýverið styrk frá danska ríkissjón-
varpinu, DR, til þess að framleiða
stuttmyndina sína Hvalfjörður en
DR keypti einnig sýningarrétt á
myndinni. „Framleiðendur okkar
hérna voru rosa-
lega hissa og
ánægðir því við
fengum aðeins
hærri styrk held-
ur en vanalega.
Vegna þess að
þetta er íslensk
mynd er ekki
sjálfgefið að
danska ríkissjón-
varpið vilji kaupa
réttinn á henni og því erum við
rosalega heppnir,“ segir Guð-
mundur.
Saga af bræðrum
Hvalfjörður er 15 mínútna stutt-
mynd sem fjallar um bræður, yngri
bróðurinn Ívar, sem Ágúst Örn B.
Wigum túlkar en hann lék einnig í
Eldfjalli, og Ingvar en það er Einar
Jóhann Valsson sem fer með hlut-
verk hans.
„Einn daginn kemur Ívar að eldri
bróður sínum Arnari þar sem hann
er að reyna taka sitt eigið líf. Ívar
er hræddur og hleypur í burtu og
Arnar eltir hann og fær hann til
þess að lofa sér að segja engum frá
því sem hann hefur séð. Sagan
fjallar um hvernig Ívar meðhöndlar
þetta leyndarmál sem hann getur
ekki talað um og á sama tíma hefur
hann áhyggjur af eldri bróður sín-
um og að hann fari að reyna þetta
aftur. Myndin fjallar um þeirra
samband eftir þetta atvik,“ segir
Guðmundur.
Rúnar Rúnarsson og Saga Film
eru meðframleiðendur að Hvalfirði.
Myndin verður frumsýnd á kvik-
myndahátíð sem fer fram í byrjun
janúar og enda febrúar en að svo
stöddu vildi Guðmundur ekki greina
nánar frá því hvaða hátíð það er.
„Það ræðst af því hvar við náum að
frumsýna myndina hvernig líf hún á
eftir að eiga í framhaldi af því. Engu
að síður erum við bjartsýn með að
hún eigi eftir að fá góða byrjun.“
Árið 2003 útskrifaðist Guð-
mundur úr myndlistarnámi við
Listaháskóla Íslands og lauk síðar
námi í Danmörku við handritsskrif
árið 2007. Hann hefur skrifað og
leikstýrt fleiri stuttmyndum, þar á
meðal teiknimyndinni Þröng sýn
sem var frumsýnd á kvikmyndahá-
tíðinni RIFF árið 2005 og fór svo
víða á erlendar hátíðir. Myndin
vann einnig til verðlauna, m.a. New
Diamonds Award, Karlovy Vary og
European Youth Award ofl. og var
m.a. tilnefnd til Eddunnar árið 2005.
Til viðbótar við stuttmyndina
Hvalfjörð er Guðmundur einnig
leikstjóri stuttmyndarinnar Ártúns
og dönsku stuttmyndarinnar Malou
sem verða frumsýndar á þessu ári.
„Ártún er þroskasaga sem fjallar
um þrjá tólf ára stráka sem alast
upp í smábæ rétt fyrir utan Reyja-
vík. Þá langar að kynnast stelpum
og eignast kærustu. En stelpurnar í
þorpinu hafa ekki áhuga á strákun-
um og þess vegna fara þeir til
Reykjavíkur. Útfrá því þróast sagan
en hlutirnir ganga ekki eins fyrir sig
og strákarnir höfðu vonast til,“ seg-
ir Guðmundur.
Ártún er tekin upp í Garði en
upprunalega hafði Guðmundur ætl-
að sér að taka hana upp í ein-
hverjum af úthverjum Reykjavíkur.
„Það varð hins vegar ekki mikið úr
því vegna þess að úthverfin eru öll
orðin svo rosalega fín. Mér fannst
vanta þennan grófleika í þau og þar
af leiðandi enduðum við á því að
taka myndina í Garði þó að myndin
gerist í raun og veru í Árbænum.“
Þroskasögur
Stuttmyndir Guðmundar eru
margar hverjar þroskasögur. „Allt
sem ég hef skrifað og unnið með
hingað til hefur alltaf verið um
krakka á þessum aldri, oftast að
stíga inn í unglingsárin. Ég held að
miklu leyti vegna þess að fyrir mér
voru þessi ár erfið. Ég gekk í gegn-
um miklar breytingar og þessi
fyrstu unglingsár höfðu mikil áhrif á
mig. En hugsanlega af því að ég er
kominn svona langt frá þeim á ég
auðveldara með að spóla til baka og
upplifa og tengjast þeim upp á
nýtt,“ segir Guðmundur.
Hingað til hefur Guðmundur ein-
ungis sent frá sér stuttmyndir en
um þessar mundir vinnur hann við
gerð kvikmyndar í fullri lengd.
„Ég skrifaði handrit sem heitir
Hjartastingur sem er fyrir kvik-
mynd í fullri lengd. Kvikmyndasjóð-
ur hefur styrkt mig með hana og
handritið að henni hefur verið tilbú-
ið í langan tíma. Ártún og Hval-
fjörður hafa að vissu leyti verið leið
mín til þess að öðlast meiri reynslu
og þekkingu til þess að fara yfir í
kvikmynd í fullri lengd,“ segir Guð-
mundur. „Við stefnum á að byrja að
taka myndina upp eftir tvö ár en
það er búið að vera margra ára ferli
að undirbúa hana.“
Efniviður sóttur í
erfið unglingsár
DR styrkir gerð íslenskrar stuttmyndar og sýnir hana
Þroskasaga Úr stuttmyndinni Ártúni sem segir af 12 ára drengjum.
Guðmundur Arnar
Guðmundsson
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
Þrír dansarar úr dansskólanum
P.A.R.T.S. í Belgíu, þau Védís
Kjartansdóttir, Inga Huld Há-
konardóttir og Simon Portigal,
frumsýna glænýtt verk á Dansverk-
stæðinu í kvöld. Sýningin er hluti af
dagskránni Reykjavík Dance Festi-
val - A Series of Event sem hófst í
gær og stendur til 31. ágúst.
A Series of Event er ekki eiginleg
danshátíð að sögn skipuleggjanda
heldur 10 daga kóreógrafía sem
samanstendur af viðburðum svo sem
málstofum, matarboðum, vinnustof-
um, skyndibókaútgáfu og sýn-
ingamaraþoni. Þrjátíu þekktir dans-
arar taka þátt í þessari fjörugu
dagskrá en markmiðið er að um-
bylta fyrirfram gefnum hugmyndum
um kóreógrafíu.
Áhorfendum er gert kleift að taka
þátt á einn eða annan hátt í viðburð-
unum en aðgangur er ókeypis.
Verkið sem sýnt er í kvöld ber yf-
irskriftina Future standards of li-
ving og í því er fjallað um gildi lík-
amans í ótal mismunandi myndum.
Sýningin hefst klukkan 19.30 og þá
verður verkið einnig á dagskrá á
föstudaginn sem partur af mara-
þondansveislu sem stendur yfir frá
klukkan 18 til 6 morguninn eftir.
Hægt er að taka frá sæti klukku-
tíma áður en viðburðir hefjast og
ærin ástæða til því sætaframboð er
takmarkað. Allir viðburðir verða á
Dansverkstæðinu við Skúlagötu 30.
Áhorfendum hleypt nær
Þrjátíu dansarar þátttakendur í tíu daga dagskrá á veg-
um Reykjavík Dance Festival Fjölbreyttir viðburðir
Dansararnir Védís Kjartansdóttir, Inga Huld Hákonardóttir og Simon
Portigal úr dansskólanum P.A.R.T.S. frumsýna verk á Dansverkstæðinu.
Vefsíða hátíðarinnar: theicel-
andfestival.tumblr.com/
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187