Morgunblaðið - 22.08.2012, Qupperneq 32
„Það er ofsagt að þeir hafi óskað
eftir að fá að loka bænum. Þeir hafa
óskað eftir því að fá bíla fjarlægða á
ákveðnum svæðum og loka fyrir
umferð tímabundið. Einnig þarf að
fjarlægja einhver skilti og annað
því um líkt. Umferð verður einnig
takmörkuð um Fjarðarheiðina. Við
reynum að leggja þeim lið eftir
fremsta megni og við höfum mjög
gaman af þessu,“ segir Vilhjálmur
Jónsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðar,
um fyrirhugaðar tökur í bænum á
kvikmynd leikstjórans Bens Still-
ers, The Secret Life of Walter
Mitty. „Mér skilst að þetta verði í
haust og því ætti takmörkuð um-
ferð að vera í góðu lagi því það er
yfirleitt svo rólegt hjá okkur, sér-
staklega þegar ekkert skip liggur
við höfnina hjá okkur. Fólk er þeg-
ar farið að tjá sig á samskiptasíðum
og tekur vel í þetta.“
Framleiðendur myndarinnar
hafa þó ekki lagt inn formlega
beiðni til sýslumanns en hún er þó
væntanleg. Leyfi og samvinna aðila
eins og Vegagerðarinnar, lögregl-
unnar og bæjarstjórnar hvers sveit-
arfélags þarf að liggja fyrir. Yfir-
leitt gengur það greiðlega fyrir sig
og flestir vilja veg erlendra kvik-
myndaframleiðenda hér á landi
sem mestan.
Önnur sveitarfélög munu einnig
gera viðeigandi ráðstafanir. Magn-
ús Stefánsson, bæjarstjóri Garðsins,
hefur heimilað afnot af bryggjunni
og svæðinu í kring en tökur þar
munu fara fram í lok september.
Þá hafa framleiðendur farið fram
á útlitsbreytingar á tveimur húsum
í Stykkishólmi, ráðhúsinu og hafn-
arvoginni. „Þeir báðu einnig um að
fá að fjarlægja skilti og tvo ljósa-
staura. Mér skilst að þeir séu að
fara yfir kostnaðarliðinn á því,“
segir Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri
Stykkishólms. Um 200 manna töku-
lið er væntanlegt í bæinn í sept-
ember og munu tökur standa yfir í
3-4 daga. Nákvæm dagsetning ligg-
ur ekki fyrir en þó hefur verið
kannað hvort gistipláss sé laust í
Hótel Stykkishólmi en engar pant-
anir liggja þó fyrir.
Þá verður Geirabakarí í Borg-
arnesi lokað í nokkra daga.
thorunn@mbl.is
AFP
Íslandsvinur Ben Stiller undirbýr nú
kvikmyndatökur á Íslandi.
Bæjarfélögin taka vel á móti Stiller
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
„Við höfum haft þrjá menn á okkar
vegum að skoða aðstæður hérlendis
fyrir komandi upptökur. Við höldum í
hann núna og það er því allt klappað
og klárt hvar við tökum upp,“ segir
Eduardo Chacón Zúñiga, söngvari
þungarokkshljómsveitarinnar Sight
of Emptiness sem kemur alla leið frá
Kostaríku.
Hljómsveitin er ákaflega vinsæl í
heimalandi sínu og hefur verið að
stimpla sig inn í alþjóðlega þunga-
rokksheiminum og vakið mikla at-
hygli. Auk þess að taka upp tónlistar-
myndband, meðal annars í
Jökulsárlóni og Vík, ætlar hljóm-
sveitin að halda tónleika hér á landi
og enda með þeim tónleikaferðalag
sem staðið hefur yfir í sumar.
Platan seldist hratt upp
Sight of Emptiness hefur m.a.
komið fram á Bloodstock-tónlistarhá-
tíðinni í Bretlandi og spilaði þar með
Alice Cooper, Machine Head og
Behemoth. Þá hafa félagarnir spilað
með hljómsveitum á borð við At The
Gates, Amon Amarth og Megadeth.
„Við höfum gefið út tvær breið-
skífur, síðast árið 2009 og þar áður
árið 2007,“ segir Zúñiga en fyrri plat-
an seldist upp á fjórum mánuðum
sem er sérlega góður árangur fyrir
þungarokksband en þungarokkið er
þó stór iðnaður í Kostaríku. Sight of
Emptiness heldur tvenna tónleika
hérlendis meðan á dvöl þeirra stend-
ur, annars vegar í TÞM, Tónlist-
arþróunarmiðstöðinni, og svo á
Gamla Gauknum. Tónleikarnir í TÞM
eru í kvöld, húsið verður opnað klukk-
an 19 og upphitunarböndin, íslensku
dauðarokkshljómsveitirnar Angist og
Beneath, stíga á svið klukkan 20. Á
morgun spilar hljómsveitin svo á
Gamla Gauknum og þá verður húsið
opnað klukkan 21.
Komnir til að heilla
„Við efumst ekki um að við munum
finna fallega staði hérlendis til að
mynda á en nýjasta platan okkar er
innblásin af náttúrunni. Lagið sem
við gerum myndbandið við hér á landi
sáum við strax fyrir okkur að taka
upp á Íslandi,“ segir Zúñiga. Nýjasta
og þriðja breiðskífa þeirra kappa var
tekin upp á Kostaríku með sænska
upptökustjóranum Thomas Joh-
ansson sem unnið hefur með ýmsum
þungarokksböndum.
En við hverju mega Íslendingar
búast á tónleikunum? „Eigum við
ekki að segja að við séum komnir
hingað til að heilla ykkur,“ segir
Zúñiga og hlær. „Það er frábært að
enda túrinn okkar hér á landi en tón-
listin sem við spilum í kvöld og annað
kvöld mun koma á óvart. Þetta er
ferskt þungarokk með mörgum mis-
munandi hljóðfærum og í tónlistinni
er afar frumlegur snúningur. Þá er
gífurleg orka í tónlistinni.“
Náttúrutónlist Eduardo Chacón Zúñiga, söngvari þungarokkshljómsveit-
arinnar Sight of Emptiness, segir náttúruna stóran áhrifavald í tónlistinni.
Tónleikar og tón-
listarmyndband
Þungarokk frá Kostaríku í kvöld
Sjáðu
Hverfisgötu 52, 101 Reykjavík
Sími: 561-0075 - sjadu.is
THE EXPENDABLES 2 Sýnd kl. 6 - 8 - 10:10 (Power)
THE WATCH Sýnd kl. 8 - 10:20
PARANORMAN3D Sýnd kl. 4 - 6
BRAVE:HINHUGRAKKA 3D Sýnd kl. 4
INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 5:50 - 8 - 10:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÍSL TEXTI
53.000 MANNS!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
12
16
7
12
L
Íslenskt tal
MEÐÍSLENSKUTALI
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Á
3D
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
BREYTTU ÖRLÖGUM ÞÍNUM!
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.50 - 8 - 10 16
THE WATCH KL. 8 - 10 12
INTOUCHABLES KL. 5.50 12
THE EXPENDABLES 2 KL. 6 - 9 16
THE WATCH KL. 8 - 10.20 12
TO ROME WITH LOVE KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL.5.40 L
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
THE EXPENDABLES 2 LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.2016
THE WATCH KL. 8 - 10.20 12
PARANORMAN 3D KL. 5.45 / 2D KL. 3.30 7
BRAVE: HIN HUGRAKKA 2D KL. 3.30 - 5.45 L
BRAVE: HIN HUGRAKKA 3D KL. 5.45 L
TOTAL RECALL KL. 8 - 10.35 12
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.3.40 / 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
TED KL. 8 12 SPIDER-MAN 3D KL. 10.20 10